Leikskólakennarar óskast til starfa í Barnaborg og Krílabæ

Leikskólakennarar óskast til starfa í leikskóladeildum Þingeyjarskóla, Barnaborg og Krílabæ

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Þingeyjarskóli í Aðaldal er með um 100 nemendur á leik- og grunnskólaaldri, þar af rúmlega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.
Við Þingeyjarskóla eru lausar stöður:

- Leikskólakennara við leikskóladeildina Barnaborg á Hafralæk í 100% starf.
- Leikskólakennara við leikskóladeildina Krílabæ á Laugum í 60-80% starf.

Möguleiki er á húsnæði á staðnum. Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í síma 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

Skólar Þingeyjarsveitar leggja áherslu á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra. Mikið samstarf er milli námshópa innan skólana og teymiskennsla öflug. Skólar Þingeyjarsveitar eru í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og samfélagið í sveitinni. Áhersla er á umhverfismennt og heilsueflandi skólastarf. Skólarnir hafa lagt rækt við ríkar tónlistarhefðir.

Við leitum að fólki sem:

  • umhugað um velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins.
  • hefur afburða góða samskiptahæfni og metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni með nemendum.
  • hefur áhuga á skólaþróun og skapandi kennsluháttum.
  • er jákvætt og sveigjanlegt, sjálfstætt í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði.
  • er samstarfsfúst og lausnamiðað, tilbúið að takast á við ný og spennandi verkefni í samstarfi og teymisvinnu.
  • er með viðeigandi menntun eða menntun sem nýtist í starfi.

Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 15. október og skal umsóknum skilað til skólastjóra, johannrunar@thingeyjarskoli.is
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og afrit af leyfisbréfi ef við á. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.