Sorpmál í Þingeyjarsveit

Terra (áður Gámaþjónusta Norðurlands) sér um sorphirðu í Þingeyjarsveit.

Bæklingur fyrir flokkun á rusli í Þingeyjarsveit
Helstu spurningar af íbúafundum er varðar flokkun og endurvinnslu
Almennar spurningar af íbúafundum

Sorpílát við hvert heimili
Gámaþjónusta Norðurlands sér um sorphirðu við heimili í Þingeyjarsveit. Búið er að dreifa þremur sorpílátum á hvert heimili í sveitarfélaginu sem Gámaþjónustan losar með reglubundnum hætti. Nánari upplýsingar um losun sorpíláta ásamt sorphirðudagatali má nálgast HÉR

 

Gámavellir Þingeyjarsveitar eru staðsettir í landi Stórutjarna og í landi Grímsstaða í Mývatnssveit. Á gámavöllunum er starfsmaður sem tekur á móti fólki og metur farma sem komið er með.

Vellirnir eru opnir öllum sem þangað leita. Íbúar sveitarfélagsins og sumarbústaðareigendur fá klippikort sem skoðast sem aðgöngumiði að gámavelli. Rekstraraðilar geta komið á gámavöllinn og greiða fyrir losun á sorpi eftir gjaldskrá um sorphirðu í Þingeyjarsveit sem samþykkt er af sveitarstjórn.

Gámavöllur í landi Stórutjarna
Opnunartími:

miðvikudaga: 16:00-18:30
föstudaga: 16:00-18:30 
laugardaga: kl. 10:00-12:00

Umsjónarmaður gámavallarins heldur úti Facebook síðu fyrir völlinn þar sem settar eru inn tilkynningar. Síðan heitir: Gámasvæðið Stórutjörnum.

Gámavöllur í landi Grímsstaða
Opnunartími:
miðvikudaga 15:00-16:00
Laugardaga 10:00-12:00

Klippikort
Allir greiðendur sorphirðugjalda, heimili og sumarbústaðir, geta nálgast klippikort á skrifstofu sveitarfélagsins eða á gámavellinum á opnunartíma. Með sorphirðugjöldunum fylgir eitt klippikort á ári. Ef kortið klárast er hægt að kaupa nýtt kort á 8300kr á skrifstofu sveitarfélagsins. Eitt klipp á klippikortinu er 0,25 rúmmetrar, heildar rúmmetra fjöldi á hverju korti eru 4 rúmmetrar. Einungis er tekið klipp af förmum sem eru gjaldskyldir. Rekstraraðilar fá ekki klippikort en þeir geta losað á gámavelli og er þá rukkað fyrir í samræmi við gjaldskrá sveitarfélagsins.

Klippikortið gildir einnig að gámavelli á Akureyri.

 

 

Gjaldskyldur úrgangur og endurvinnslu úrgangur
Hér til hægri má sjá hvaða úrgangur ber Úrvinnslugjald og hvaða úrgang er hægt að losa á gámavelli án þess að nota klippikort eða greiða fyrir.

 

Allur úrgangur sem fellur undir gjaldskylt þurfa rekstraraðilar að greiða fyrir á gámavelli og heimili þurfa að sýna klippikort sem starfsmaður klippir af í samræmi við rúmmál farms. Úrgangur sem fellur undir endurvinnslu flokkinn þarf ekki að greiða fyrir og ekki er tekið klipp af klippikortum. Steinefni og garðaúrgangur er losaður án endurgjalds á gámavelli.

 

Mikilvægt er að allir sem koma með farma á gámavöll séu búnir að forflokka og rúmmálsminnka farminn eins og kostur er á.

Garðaúrgangur
Á gámavelli verður gámur fyrir garðaúrgang. Einnig verður staðsettur gámur á Laugum fyrir garðaúrgang yfir sumartímann.

Dýrahræ
Ekki er tekið við dýrahræjum á gámavelli við Stórutjarnir. Rekstraraðilum er bent á sorpmóttökur á Akureyri og Húsavík. Rekstraraðilar greiða fyrir eyðingu á dýrahræjum eins og öðrum úrgangi sem þeir koma með.

Umsjónarmenn sorpmála eru Hermann Pétursson og Lárus Björnsson.
Sími: 5121800
Netföng: hermann@thingeyjarsveit.is og larus@thingeyjarsveit.is