Lausar lóðir

Í Þingeyjarsveit eru víða skipulagðar lóðir lausar til úthlutunar. Um er að ræða þrjár lóðir á Laugum, tvær lóðir á Stórutjörnum og þrettán lóðir í einkaeigu í landi Brekku í Aðaldal. Í deiliskipulagi þéttbýlis við götuna Víðigerði í Aðaldal eru skipulagðar lóðir undir raðhús og einbýli. Í Reykjahlíð eru lausar parhúsalóðir og einbýlishúsalóðir.

Að neðan má sjá umræddar lóðir en til að fá frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við byggingarfulltrúa á skrifstofu Þingeyjarsveitar. Sími á skrifstofu sveitarfélagsins er 464-3322 eða á netfangið rognvaldur.hardarson@thingeyjarsveit.is 

Til að fá frekari upplýsingar vegna íbúðarlóða í landi Brekku, Aðaldal er bent á að hafa samband við Reyni B. Ingvason í síma 893-1018
Til að fá frekari upplýsingar vegna íbúðarlóða í landi Skógahlíðar, Fnjóskadal er bent á að hafa samband við Bergljótu Þorsteinsdóttur í síma 464 3297

Reykjahlíð

Í Reykjahlíð eru lausar parhúsa- og einbýlishúsalóðir.

Lóð 2 er parhúsalóð
Lóðir 3, 7, 10 og 12 eru einbýlishúsalóðir

Skipulagsskilmálar
Skipulagsuppdráttur

Í landi Reykhlíðunga eru tvö íbúðarhús á deiliskipulagi.

2 hús á reit I4
1 hús á reit I3

Skipulagsskilmálar og uppdráttur

Laugar

Við Lautavegur 12 og 14 eru lausar lóðir fyrir einbýli/tvíbýli eða fjórbýli á tveimur hæðum
Við Lautaveg 1 er laus lóð undir einbýlishús á 1 hæð ásamt bílageymslu
Sjá skipulagsuppdrátt og skilmála

 

 

Stórutjarnir

  • Melgata 2 fyrir einbýlishús eða parhús á einni hæð
  • Melgata 4 fyrir einbýlishús eða parhús á einni hæð

Sjá skipulagsuppdrátt og skilmála

 

Þéttbýli í Aðaldal

Parhúsalóðir - á einni hæð
Víðigerði 4, 6, 8 og 10
Lóðum verður úthlutað í hækkandi röð, og eru því lóðir 4 og 6 næstar til úthlutunar.

Einbýlishúsalóðir - á einni hæð
Víðigerði 3, 5, 7, 9, 11, 13, 15,17, 19, 21 og 23.
Lóðum verður úthlutað í hækkandi röð, og eru því lóðir 3 og 5 næstar til úthlutunar.

Sjá skipulagsuppdrátt og skilmála

Brekka í Aðaldal (í einkaeigu)

í Brekku eru skipulagðar 14 íbúðarhúsalóðir á stærðarbilinu 2500-4500 m2. Búið er að byggja á einni lóð og eru því 13 lausar til afhendingar. Lóðirnar eru í einkaeigu.

Sjá skipulagsuppdrátt og skilmála

  

 

Skógahlíð, Fnjóskadal

Við Skógahlíð í Fnjóskadal eru til reiðu 9 íbúðarhúsalóðir skammt frá gangnamunna Vaðlaheiðarganga.
Lóðirnar eru um 4100 - 5872 fm. Heimilt er að byggja 1- 2 hæða hús að hámarki 400 fm að stærð.

Sjá skipulagsuppdrátt og skilmála.