Húsaleigubætur

Athygli er vakin á nýjum lögum um húsnæðisbætur sem tóku  gildi 1. janúar 2017.  Húsnæðisbætur  koma í staðinn fyrir húsaleigubætur sem sveitarfélög hafa greitt út.

Ríkið greiðir út húsnæðisbætur og verður það gert hjá Greiðslustofu húsnæðisbóta sem staðsett er að Ártorgi 1 á Sauðárkróki, en greiðslustofan er undirdeild hjá Vinnumálastofnun.

Sveitarfélög munu þó áfram greiða húsnæðisbætur til ungmenna í námi fram að 18 ára aldri, sem og sérstakar húsnæðisbætur eftir reglum sem þau munu setja sér.

Leigjendum er hér með bent á að huga sem fyrst að því að sækja um húsnæðisbætur, en það er gert á heimasíðu Greiðslustofu húsnæðisbóta, www.husbot.is.  Tekið er við umsóknum, en húsnæðisbætur verða greiddar út í fyrsta skipti um mánaðarmót janúar/febrúar. 

Til að sækja um húsnæðisbætur þarf að hafa rafræn skilríki eða Íslykil.  Þeir sem hafa ekki slík skilríki nú þegar ættu því ekki að bíða boðanna með að sækja um þau.

Ungmennum innan 18 ára aldurs er bent á að sækja áfram um húsnæðisbætur til sveitarfélagsins, en í þeim mánuði sem 18 ára aldri er náð, tekur greiðslustofan við.  Þau þurfa því að huga að því að sækja þangað tímanlega fyrir 18 ára afmælið.

Hægt er að prenta út eftirtalin eyðublöð, fylla þau út og skila á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugum.

Húsnæði/búseta
Umsókn um húsaleigubætur

Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir félög/félagasamtök