Þingeyjarsveit auglýsir eftir starfsmanni við félagsstarf eldri borgara í Mývatnssveit

Laus er 25% staða starfsmanns við félagsstarf eldri borgara í Þingeyjarsveit. Um er að ræða skipulag, undirbúning og umsjón á samverustundum eldri borgara. Samverustundir eru tvisvar í viku, annarsvegar í Mývatnssveit og hins vegar til skiptis í Þingeyjarskóla og Stórutjarnaskóla.

Starfið sem um ræðir er 25% starf við félagsstarf eldri borgara í Mývatnssveit, einn dag í viku. Starfmaður verður í samstarfi við starfsmenn félagsstarfsins á láglendinu.

Allar frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri fjölskyldumála, Ásta F. Flosadóttir á netfangið: asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is.

Starfið hentar öllum kynjum og eru áhugasamir einstaklingar hvattir til að sækja um, óháð kyni.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er framlengdur til 25. september. Skila skal umsóknum á skrifstofur Þingeyjarsveitar, eða á netfangið umsokn@thingeyjarsveit.is