Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit vantar húsvörð til starfa

Helstu viðfangsefni og ábyrgð húsvarðar
• Hefur umsjón og eftirlit með Stórutjarnaskóla, skólalóð, innanstokksmunum og tækjum
• Sér til þess að viðhaldi sé sinnt á húsnæði og innanstokksmunum í samráði við skólastjóra og umsjónamann fasteigna Þingeyjarsveitar
• Annast lítilsháttar viðhald
• Sinnir öryggismálum er varða húsnæði, lóð, tæki, nemendur og starfsmenn
• Skipuleggur ræstingar í samráði við skólaliða
• Sér um daglega opnun Stórutjarnaskóla og tryggir lokun í lok dags


Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi er kostur
• Reynsla og þekking á sambærilegum störfum er kostur
• Geta sinnt lítilsháttar viðhaldi húsnæði, tækjum og búnaði skólans
• Góð færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.


Stórutjarnaskóli stendur í Ljósavatnsskarði og er samrekinn leik- grunn- og tónlistarskóli með um 45 nemendur frá 1 árs til 16 ára aldurs. Öll starfsemi skólans er í sama húsnæði. Skólinn er Grænfánaskóli og Heilsueflandiskóli og leggur áherslu á að búa nemendum og starfsfólki fjölbreytt leik- náms- og starfsumhverfi sem eflir alhliða heilsu og þroska. Haustið 2022 hóf skólinn innleiðingarferli teymisvinnu/kennslu. Stórutjarnaskóli er í góðu samstarfi við nágrannaskóla sína og tekur einnig þátt í þróunarstarfi með skólum erlendis.
Starfshlutfall er 100% og eru laun samkvæmt kjarasamningum.
Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2023.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2023.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband í síma 4643220/8483547 eða í gegnum netfangið birnada@storutjarnaskoli.is
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.
Umsókn skal senda á netfangið birnada@storutjarnaskoli.is