Störf við félagsstarf eldri Þingeyinga

Auglýst eru störf við félagsstarf eldri borgara í Þingeyjarsveit. Um er að ræða skipulag, undirbúning og umsjón á samverustundum eldri borgara. Samverustundir eru tvisvar í viku, annarsvegar í Mývatnssveit og hins vegar til skiptis í Þingeyjarskóla og Stórutjarnaskóla.

Störfin sem um ræðir eru:
20 - 25% starf við félagsstarf eldri borgara í Mývatnssveit
tvö 20 - 25% störf við félagsstarf eldri borgara í Þingeyjar-/Stórutjarnaskóla

Allar frekari upplýsingar veitir verkefnastjóri fjölskyldumála, Ásta F. Flosadóttir á netfangið: asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is.

Störfin henta öllum kynjum og eru áhugasamir einstaklingar hvattir til að sækja um, óháð kyni.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 16. ágúst. Skila skal umsóknum á skrifstofur Þingeyjarsveitar, eða á netfangið umsokn@thingeyjarsveit.is