1. fundur

Fundargerð

Fræðslu- og velferðarnefnd 2022-2026

29.08.2022

1. fundur

Fræðslu- og velferðarnefnd 2022-2026

haldinn Ýdölum mánudaginn 29. ágúst kl. 14:30

Fundarmenn

Gunnhildur Hinriksdóttir, Sigurður Narfi Rúnarsson, Sigrún Jónsdóttir, Linda Björk Árnadóttir, Sigurbjörn Árni Arngrímsson 

Starfsmenn

Alma Dröfn Benediktsdóttir í gegnum fjarfundarbúnað.

Fundargerð ritaði: Alma Dröfn Benediktsdóttir, Verkefnastjóri.

 

Dagskrá:

1. Kjör varaformanns fræðslu- og velferðarnefndar - 2208015
Formaður leggur til að Sigurður Narfi verði kosinn varaformaður fræðslu- og velferðarnefndar.
Samþykkt

2. Erindisbréf fræðslu- og velferðarnefndar - 2208014
Lagt til kynningar drög af erindisbréfi fræðslu- og velferðarnefndar.
Nefndin leggur til að bætt verði við samþykktina í 2.gr að auki sitji starfsmaður nefndarinnar fundinn og riti fundargerð.
Nefndin telur mikilvægt að áheyrnarfulltrúar hafi möguleika á að koma inn á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað þegar verið er að ræða þeirra málefni.
7.gr að starfsmaður riti fundargerð.
8.gr að skýrt komi fram hvernig nefndarmenn afboða sig á fundi og kalli inn varamann í sinn stað.
Samþykkt

3. Fundadagatal 2022-2023 - 2208013
Formaður lagði fram tillögu að fundadagatali fyrir 2022-2023.
29. ágúst
21. sept
19. okt
16. nóv
14. des
18. jan
15. feb
15. mars
19. apríl
17. maí
7. Júní
Samþykkt

4. Minnisblöð undirbúningsstjórnar - 2208007
Lagt til kynningar minnisblað starfshóps undirbúningsstjórnar um skólastarf.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram

5. Starf æskulýðs- og tómstundafulltrúa - 2206024
Verkefnastjóri kynnti starf æskulýðs- og tómstundafulltrúa sem hóf störf í nýju sameinuðu sveitarfélagi í haust.
Nefndin lýsir yfir ánægju sinni að ráðið hefur verið í starf tómstunda- og æskulýðsfulltrúa fyrir sameinaðs sveitarfélags.
Lagt fram

6. Samvinna á unglingastigi - 2208016
Verkefnastjóri kynnti samvinnu Reykjahlíðarskóla og Þingeyjarskóla á unglingastigi.
Nefndin þakkar verkefnastjóra yfirferðina og lýsir yfir ánægju sinni með að samstarfið sé komið af stað.
Lagt fram

7. Endurskoðun samninga um félags- og skólaþjónustu - 2208005
lagt fram bréf undirbúningsstjórn vegna sameiningar sveitarfélaganna þar sem farið var á leit við Norðurþing að endurskoðunarákvæði í samningum yrði virkjað í kjölfar sameiningarinnar og gengið til viðræðna um framtíðarfyrirkomulag á velferðar- og skólaþjónustu sveitarfélagsins. Fulltrúar sveitarfélagsins hafa óskað eftir að Norðurþing sendi upplýsingar um fjölda og eðli mála í málaflokknum.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram

8. Menntasókn í norðri - 2208017
Verkefnið Menntasókn í norðri í samvinnu við Ásgarð ráðgjafaþjónustu hefur hlotið styrk úr Sprotasjóði upp á 1,9 mkr. Styrknum er ætlað að koma af stað þróunarverkefnum í skólamálum með það markmið að fara ótroðnar slóðir við sköpun framtíðarsýnar í sveitarfélaginu.
Nefndin er ánægð með að styrkur hafi fengist til verkefnisins og mun hann nýtast vel við þróun nýrrar skólastefnu og mótun framtíðarsýnar fyrir sveitarfélagið en mikilvægt er að sú vinna fari af stað sem fyrst.
Lagt fram

9. Ósk um aukna þjónustu nemanda með sérþarfir - 2208035
Óskað um aukna aukna þjónustu nemanda við Stórutjarnaskóla.
Nefndin hefur kynnt sér málið og er samþykk því að reynt verði eftir fremsta megni að koma á móts við þarfir nemandans.
Lagt fram

10. Skipun fulltrúa í öldungaráð - 2208040
Lagt fram erindi félagsmálastjóra Norðurþings þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til að vera hluti af sameiginlegu öldungaráði. Formaður leggur til að Ingvar Vagnsson verði tilnefndur.
Nefndin samþykkir að fyrirkomulagið verði óbreytt að svo stöddu en jafnframt að athugað verði hvort grundvöllur sé fyrir skipan öldungaráðs í sveitarfélaginu. Nefndin samþykkir að Ingvar Vagnsson verði tilnefndur fulltrúi Þingeyjarsveitar í ráðið.

11. Staðfesting á skipun notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks. - 2208041
Í erindi frá Norðurþingi er óskað eftir afstöðu Þingeyjarsveitar til þess að notendaráð í málefnum fatlaðs fólks verði óbreytt.
Nefndin leggur til að fyrirkomulagið verði óbreytt.

 

Fundi slitið kl. 16:45.