Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
1.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 25
Málsnúmer 2505001FVakta málsnúmer
2.Byggðarráð - 38
Málsnúmer 2505002FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
3.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 26
Málsnúmer 2505003FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
4.Skipulagsnefnd - 36
Málsnúmer 2504007FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
5.Umhverfisnefnd - 26
Málsnúmer 2505004FVakta málsnúmer
Fundargerðin er staðfest.
6.Byggðarráð
Málsnúmer 2305033Vakta málsnúmer
Eyþór Kári lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd minnihluta:
Minnihluti telur að það sé mikil framför í því að leggja niður byggðarráð og fjölga fundum í sveitarstjórn. Með því að auka samtal og funda oftar í sveitarstjórn verður ákvarðanataka og skilvirkni betri.
Minnihluti styður að leggja niður byggðarráð enda höfum við áður lagt fram samhljóma tillögu.
Oddviti lagði fram eftirfarandi bókun:
Byggðarráð var stofnað um mitt ár 2023 vegna fjölda fyrirliggjandi verkefna sem tengdust sameiningu sveitarfélaganna. Nú eru flest verkefnin að komast í fastar skorður og hefur byggðarráð því þjónað þeim tilgangi sem til var ætlast.
Sveitarstjórn samþykkir að fella byggðarráð úr samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar.
Samþykkt samhljóða.
7.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2206003Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða ofangreinda breytingu og vísar til annarrar umræðu.
8.Framkvæmda- og veitunefnd - skipan nefndar
Málsnúmer 2505073Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn tilnefnir Jónu Björgu Hlöðversdóttur, Knút Emil Jónasson og Harald Bóasson til setu í nefndinni. Til vara, Árna Pétur Hilmarsson, Gerði Sigtryggsdóttur og Halldór Þorlák Sigurðsson.
Samþykkt samhljóða.
9.Eignastefna
Málsnúmer 2503072Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög og skipar Jónu Björgu Hlöðversdóttur, Gerði Sigtryggsdóttur og Eyþór Kára Ingólfsson. Starfsmaður er Margrét Hólm Valsdóttir.
Samþykkt samhljóða.
10.Fjárhagsáætlun 2025 - viðaukar
Málsnúmer 2502055Vakta málsnúmer
11.Jarðhiti jafnar leikinn - umsókn um styrk
Málsnúmer 2504061Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn fagnar átaki umhverfisráðherra og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að senda inn tvær umsóknir í sjóðinn.
Samþykkt samhljóða.
12.Mýsköpun - aðalfundur 2025
Málsnúmer 2505051Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
13.Ferðafélag Akureyrar - staða fjallaskála og ósk um styrk
Málsnúmer 2505006Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins og felur sveitarstjóra að afla frekari gagna.
Samþykkt samhljóða.
14.Samnorrænn starfshópur um heimsmarkmið SÞ
Málsnúmer 2505054Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir þátttöku í verkefninu.
Samþykkt samhljóða.
15.Kornsamlag Þingeyinga GG2023 - aðalfundarboð 2025
Málsnúmer 2505059Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
16.Markaðsstofa Norðurlands - aðalfundur 2025
Málsnúmer 2505078Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
17.Veitur úttekt
Málsnúmer 2311003Vakta málsnúmer
"Í skýrslunni er gerð úttekt á fráveitu og ofanvatnskerfi ásamt hitavatnsveitu og kaldavatnsveitu í þéttbýlum sveitarfélagsins. Verkefnið snerist um að greina ástand kerfanna og gera viðhalds- og framkvæmdaáætlun til allt að 10 ára. Byggðarráð vísar skýrslunni til umfjöllunar í sveitarstjórn."
Sveitarstjórn vísar skýrslunni til umhverfis- og framkvæmdasviðs til undirbúnings fyrir fjárhagsáætlun 2026.
Samþykkt samhljóða.
18.Birkihraun 6 - söluferli
Málsnúmer 2505005Vakta málsnúmer
"Byggðarráð samþykkir að ganga að hærra tilboði í eignina Birkihraun 6. Sveitarstjóra er falið að svara tilboðinu í samræmi við afgreiðslu byggðarráðs með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar."
Samþykkt samhljóða.
19.Víkingurinn 2025 - heimsókn í sveitarfélagið - umsókn um styrk
Málsnúmer 2504024Vakta málsnúmer
"Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd telur þetta verkefni áhugavert og mælir með því við sveitarstjórn að greiða götu félags kraftamanna svo hægt sé að halda viðburð í Þingeyjarsveit tengdan Víkingnum 2025."
Sveitarstjórn þakkar áhuga kraftamanna á sveitarfélaginu en getur ekki orðið við erindinu að þessu sinni.
Samþykkt samhljóða.
20.Menningarmál - úthlutun menningarstyrkja 2025 fyrri úthlutun
Málsnúmer 2505004Vakta málsnúmer
"Nefndin leggur til við sveitarstjórn að eftirtaldir aðilar hljóti styrk: Landablanda með kvartettinum Norðangarra, 50.000 kr. Landsbyggðaráðstefna Félags þjóðfræðinga á Íslandi 2025, haldin í Þingeyjarsveit, 270.000 kr. Vorfagnaður Hreims í tilefni 50 ára afmælis, 100.000 kr. Kvenfélag Fnjóskdæla vegna 120 ára afmæli Kvenfélags Fnjóskdæla, 100.000 kr."
Samþykkt samhljóða.
21.Gjaldskrár 2025
Málsnúmer 2410003Vakta málsnúmer
"Gjaldskrárdrögin samþykkt með áorðnum breytingum."
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að birta þær á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
22.Útskrift úr grunnskóla - verklagsreglur um frávik
Málsnúmer 2505013Vakta málsnúmer
"Fræðslu- og velferðarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og beinir þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar."
Sveitarstjórn samþykkir framlagðar verklagsreglur og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að kynna þær fyrir skólastjórnendum og birta á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
23.Verkefnastjórn í grunnskólum - minnisblað
Málsnúmer 2505011Vakta málsnúmer
"Nefndin samþykkir breytingu á verkefnastjórnun í skólunum næsta skólaár og beinir því til sveitarstjórnar að staðfesta afgreiðsluna."
Samþykkt samhljóða.
24.Skóladagatal 2025-2026 - Reykjahlíðarskóli, Stórutjarnaskóli og Þingeyjarskóli
Málsnúmer 2505014Vakta málsnúmer
"Fræðslu- og velferðarnefnd samþykkir skóladagatölin fyrir sitt leyti og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar."
Samþykkt samhljóða.
25.Lundarbrekka 4 - umsókn um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar
Málsnúmer 2505010Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd telur framkvæmdina vera í samræmi við aðra skógrækt í nágrenninu. Skipulagsnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna áformin fyrir nágrönnum og leita umsagna umhverfisnefndar, Minjastofnunar og Vegagerðarinnar um framkvæmdina. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að fela skipulags og byggingarfulltrúa að að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um jákvæðar umsagnir."
Samþykkt samhljóða.
26.Reykjahlíðarþorp - breyting á skipulagi - Klappahraun 6 raðhús
Málsnúmer 2503009Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd þakkar innkomnar athugasemdir en telur fyrirhugaða breytingu í takt við ákvæði gildandi skipulags um sveigjanlegar lóðir í samræmi við eftirspurn. Samantekt með svörum við athugasemdum verður birt í skipulagsgátt. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsbreytingin verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Samþykkt samhljóða.
27.Deiliskipulag Þeistareykjavirkjunar, Toppþrýstingsvirkjun - breyting á skipulagi
Málsnúmer 2503008Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd samþykkir minniháttar breytingu á byggingarreit R-14. Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að tillagan, þannig breytt, verði samþykkt skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Samþykkt samhljóða.
28.RECET - ósk um samstarf
Málsnúmer 2409020Vakta málsnúmer
"Nefndin fagnar verkefninu og leggur til við sveitarstjórn að Þingeyjarsveit verði áfram þátttakandi í verkefninu."
Sveitarstjórn samþykkir áframhaldandi þátttöku í verkefninu.
Samþykkt samhljóða.
29.Atvinnuveganefnd - til umsagnar 298. mál - veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða - veiðistjórn grásleppu
Málsnúmer 2505061Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
30.Atvinnuveganefnd - til umsagnar 279. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald - skammtímaleiga, gagnaöflun og rekstrarleyfi
Málsnúmer 2505062Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
31.Samband íslenskra sveitarfélaga - skipan bakhóps til ráðgjafar og stuðnings kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum
Málsnúmer 2504049Vakta málsnúmer
32.Mótun framtíðarinnar - viðhorf nærsamfélagsins til vonarsvæðis Norðausturlands og stjórnun hafsvæðisins
Málsnúmer 2505015Vakta málsnúmer
33.Huldustígur ehf. - ráðstefna og vinnustofa - óáþreifanlegur menningararfur tengdur náttúruvættum
Málsnúmer 2505071Vakta málsnúmer
Ráðstefnan er haldin af Huldustíg ehf. Hulda náttúruhugvísindasetur og Rannsóknasetrið í Þingeyjarsveit eru samstarfsaðilar og koma með fræðilegan vinkil á viðfangsefnið.
34.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir
Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer
35.Stjórn Norðurorku - fundargerðir
Málsnúmer 2305038Vakta málsnúmer
36.Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir
Málsnúmer 2404003Vakta málsnúmer
37.Svæðisráð norðursvæðis - fundargerðir
Málsnúmer 2311077Vakta málsnúmer
38.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir
Málsnúmer 2306029Vakta málsnúmer
39.Landskerfi bókasafna - aðalfundur 2025
Málsnúmer 2504005Vakta málsnúmer
40.Ársþing 2025 - samþykkt þinggerð
Málsnúmer 2505072Vakta málsnúmer
41.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026
Málsnúmer 2209048Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 14:17.