Fara í efni

Útskrift úr grunnskóla - verklagsreglur um frávik

Málsnúmer 2505013

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 26. fundur - 08.05.2025

Lögð fyrir fræðslu- og velferðarnefnd drög að verklagsreglum grunnskóla vegna nemenda sem útskrifast fyrr eða seinna úr grunnskóla. Unnið af skólaþjónustu Þingeyjarsveitar í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs og skólastjóra grunnskóla Þingeyjarsveitar.
Fræðslu- og velferðarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og beinir þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 59. fundur - 22.05.2025

Á 26. fundi fræðslu- og velferðarnefndar var eftirfarandi bókað undir lið 3 varðandi drög um verklagsreglur grunnskóla vegna nemenda sem útskrifast fyrr eða seinna ú grunnskóla sem unnin voru af skólaþjónustu Þingeyjarsveitar í samráði við sviðsstjóra fjölskyldusviðs og skólastjóra grunnskóla Þingeyjarsveitar.

"Fræðslu- og velferðarnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og beinir þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar."
Til máls tók: Ragnhildur.

Sveitarstjórn samþykkir framlagðar verklagsreglur og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að kynna þær fyrir skólastjórnendum og birta á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?