Um sveitarfélagið
Þingeyjarsveit – þar sem náttúra, tækifæri og samfélag mætast
Þingeyjarsveit varð til við sameiningu Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar árið 2022. Sveitarfélagið er landmesta sveitarfélag Íslands og nær yfir um 12% af flatarmáli landsins. Íbúar eru tæplega 1.600 og búa víðs vegar um fjölbreytt og fallegt landsvæði.
Þingeyjarsveit býr yfir einstakri náttúrufegurð og fjölbreyttri náttúru. Hér eru meðal annars Mývatn, Goðafoss, Herðubreið, Askja, Aldeyjarfoss, Herðubreiðarlindir og víðerni Ódáðahrauns. Jarðhitasvæði, eldfjöll, fossar, vötn og víðáttumikil óbyggðasvæði gera sveitarfélagið að einni fremstu náttúruperlu landsins. Sveitarfélagið er heilsueflandi samfélag þar sem útivist og náttúrunánd eru í forgrunni. Fjöll, dalir, hraun og hálendi bjóða upp á ótal möguleika til gönguferða, hjólreiða, hestamennsku, veiða og annarrar útivistar allt árið um kring. Hér gefst tækifæri til að njóta kyrrðar, víðerna og ósnortinnar náttúru sem fá svæði á Íslandi geta boðið upp á.
Atvinnulíf í Þingeyjarsveit er öflugt og fjölbreytt. Ferðaþjónusta og landbúnaður eru stærstu atvinnugreinarnar, en einnig eru matvælaframleiðsla, skógrækt, fiskvinnsla og þjónusta mikilvægir þættir í atvinnulífinu. Sveitarfélagið býr yfir ríkulegum orkuauðlindum og innan þess eru jarðvarmavirkjanirnar Kröflustöð, Þeistareykjastöð og Gufustöðin í Bjarnarflagi, auk Laxárvirkjunar í Laxárgljúfrum.
Þingeyjarsveit leggur áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og góða innviði. Öll heimili eru tengd ljósleiðara og sveitarfélagið býður upp á góð skilyrði fyrir fjarvinnu og staðsetningaróháð störf. Hér gefst tækifæri til að njóta gæða dreifbýlisins án þess að fórna tengingu við umheiminn.
Menntun og menning eiga sterkan sess í samfélaginu. Þrír grunnskólar starfa í sveitarfélaginu; Stórutjarnaskóli, Þingeyjarskóli og Reykjahlíðarskóli, auk leikskóla- og tónlistarskóladeilda. Framhaldsskólinn á Laugum þjónar einnig svæðinu. Öflugt menningarstarf blómstrar í sveitarfélaginu, meðal annars í leiklistar- og söngstarfi, en þar má nefna Söngfélagið Sálubót og Karlakórinn Hreim.
Íþrótta- og félagslíf er fjölbreytt og kröftugt. Góð aðstaða til íþróttaiðkunar er bæði í Reykjahlíð og á Laugum, þar sem glæsileg sundlaug stendur íbúum og gestum til boða. Þá eru golfvellir á Laugum, í Reykjahlíð og í Fnjóskadal, auk fjölmargra annarra tækifæra til útivistar um allt sveitarfélagið.
Þingeyjarsveit er samfélag tækifæra þar sem öflug þjónusta, fjölbreytt atvinnulíf, rík menning og einstök náttúra skapa aðlaðandi umhverfi til búsetu, starfa og lífsgæða.