Persónuvernd
Þingeyjarsveit er umhugað um persónuvernd í starfsemi sinni og leggur áherslu á lögmæta, sanngjarn og gagnsæja meðferð persónuupplýsinga. Sveitarfélagið vinnur eftir lögum um persónuvernd og vinnslu persónuuplýsinga nr. 90/2019 Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018
Persónuverndarstefna
Þingeyjarsveit hefur sett sér persónuverndarstefnu og var hún samþykkt í sveitarstjórn 13. apríl 2023. Í stefnunni má finna upplýsingar um stefnu sveitarfélagsins varðandi persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga svo sem söfnun þeirra, varðveislu og öryggi.
Persónuverndarfulltrúi
Persónuverndarfulltrúi Þingeyjarsveitar er Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður hjá lögmannstofunni Pacta www.pacta.is. Persónuverndarfulltrúinn tekur við fyrirspurnum og ábendingum sem einstaklingar kunna að hafa varðandi persónuvernd hjá Þingeyjarsveit á netfangið personuvernd@thingeyjarsveit.is
Fyrirspurnir um eigin persónuupplýsingar og meðferð eigin persónuupplýsinga má senda á thingeyjarsveit@thingeyjarsveit.is