Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
1.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 38
Málsnúmer 2610001FVakta málsnúmer
Til máls tóku undir lið 2, "Leikskólar Þingeyjarsveitar - starfsmannavelta og mannekla": Nanna, Knútur, Freydís, Hallgrímur Páll og Eyþór Kári.
Sveitarstjórn tekur undir með bókun fræðslu- og velferðarnefndar frá fundi 12. október 2026 og lýsir áhyggjum af starfsmannaveltu og manneklu í leikskólum sveitarfélagsins. Kennarar og starfsfólk í leikskólum Þingeyjarsveitar vinna mikilvæg störf í þágu barna og samfélagsins og áríðandi er að tryggja að starfsaðstæður séu góðar.
Til máls tóku undir lið 8, "Beiðni um reglubundna viðveru hjúkrunarfræðings á Laugum": Eyþór Kári, Knútur, Nanna og Hallgrímur Páll.
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina og þau atriði hennar sem þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar eru tekin fyrir undir sérstökum dagskrárliðum.
2.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 33
Málsnúmer 2609004FVakta málsnúmer
Til máls tóku undir lið 1, "Gjaldskrár 2027": Eyþór Kári og Dóra Rún.
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina og þau atriði hennar sem þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar eru tekin fyrir undir sérstökum dagskrárliðum.
3.Skipulagsnefnd - 55
Málsnúmer 2610002FVakta málsnúmer
Til máls tók undir lið 6, "Garður stofna lóð fyrir spennistöð - merkjalýsing": Hallgrímur Páll.
Til máls tók undir lið 1, "Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun": Eyþór Kári.
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina og þau atriði hennar sem þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar eru tekin fyrir undir sérstökum dagskrárliðum.
4.Umhverfisnefnd - 37
Málsnúmer 2610004FVakta málsnúmer
Til máls tóku undir lið 1, "Samráðsgátt stjórnvalda - tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði": Knútur, Hallgrímur Páll, Katrín og Nanna.
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina og þau atriði hennar sem þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar eru tekin fyrir undir sérstökum dagskrárliðum.
5.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 30
Málsnúmer 2609002FVakta málsnúmer
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
6.Þingeyjarsveit - starfshópur um eignastefnu - fundargerðir
Málsnúmer 2506055Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
Sveitarstjórn hyggst ljúka eignastefnu byggðri á vinnu eignastefnunefndar í upphafi næsta árs. Varðandi félagsheimilin vill sveitarstjórn hleypa af stokkunum átaksverkefni varðandi nýtingu á félagsheimilum sveitarfélaganna til að þau nýtist samfélagi og menningu sem best. Sveitarstjóra falið að hefja undirbúning að uppstillingu íbúasamráðs um nýtingu félagsheimilanna meðal annars með því að auglýsa eftir hugmyndum á heimasíðu sveitarfélagsins, t.d. í sambandi við verkefnið "Virkjum íbúana".
Samþykkt samhljóða.
7.Til sveitarstjórnar - spurningar um meint vanhæfi sveitarstjóra
Málsnúmer 2610057Vakta málsnúmer
Erindi barst frá Haraldi Sverrissyni með spurningum vegna umfjöllunar RÚV um viðskiptatengsl Katrínar Sigurjónsdóttur og rekstraraðilum Fiskþurrkunar á Laugum.
Sveitarstjórn harmar að verið sé að elta ólar við að tortryggja Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Sveitarstjórn finnst umfjöllun Ríkisútvarpsins um málið vera á hæpnum forsendum og lýsir fullu trausti og stuðningi við Katrínu í störfum sveitarstjóra og telur hana almennt ekki vera vanhæfa til að fjalla um málefni fiskþurrkunar Samherja á vettvangi sveitarfélagsins. Vanhæfi er þó metið í hvert skipti líkt og í öllum málum sem sveitarstjórn fjallar um.
Katrín, sem hóf störf 5. ágúst sl., gerði í aðdraganda ráðningar sveitarstjórn ljóst eignarhald sitt í því félagi Samleið ehf. sem selur þjónustu sem meðal annars Samherji kaupir. Ekki var horft til þess frekar við mat á umsóknum. Við mat umsækjenda var Katrín valin hæfust vegna marga þátta.
Sveitarstjórn hafði því vitneskju um eignarhald sveitarstjóra í Samleið ehf. við ráðningu hennar. Sú staða hefur ekki komið upp að hún hafi verið talin vanhæf í málum er varða Samherja eða Laugafisk, sem á sér að einhverju leiti skýringu í því að einungis hefur eitt mál komið á borð sveitarstjórnar eftir að hún kemur til vinnu, sem var kynning á rannsókn á blaðgrænu sem er hluti af vöktunaráætlun. Viðbrögð sveitarstjórnar í því máli voru að fela starfsmanni sveitarfélagsins að fylgja eftir aðgerðum sem sveitarfélagið hefur verið að vinna að til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum sem stafa af fráveitukerfi þess. Hæfi er alltaf til skoðunar og borið upp eftir því sem við á, en í tilfelli Katrínar hefur ekki á það reynt, enda hefur sveitarstjórn engar stjórnsýsluákvarðanir tekið í málinu frá því hún hóf störf hjá Þingeyjarsveit
Ákvarðanir sveitarstjórnar eru opinberaðar í fundargerðum og öllum frjálst að rýna þær.
Sveitarstjórn telur ekki þurfa lögfræðilega álitsgerð um áðurgreindar ráðstafanir og afgreiðslur, en hefur leitað lögfræðiráðgjafar varðandi viðbrögð við vanhæfisásökunum.
Sveitarstjórn felur oddvita að svara bréfritara og birta yfirlýsingu á heimasíðu sveitafélagsins.
Samþykkt samhljóða.
8.Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 - skýrsla kjörstjórnar Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2609082Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn þakkar kjörstjórn og öðru starfsfólki fyrir vel unnin störf við framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
9.Öldungaráð - skipan fulltrúa 2026 -2030
Málsnúmer 2609073Vakta málsnúmer
Málinu var frestað á síðasta fundi sveitarstjórnar og leitað eftir tilnefningum hjá félögum eldri borgara í sveitarfélaginu. Engar tilnefningar bárust.
Samþykkt samhljóða.
10.Mývatnssveit - eldsneytissala Reykjahlíð
Málsnúmer 2610038Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti á 23. fundi þann 28. ágúst 2019 að eldsneytissala verði færð af miðsvæði Reykjahlíðar og að möguleg staðsetning verði utan verndarsvæðis Mývatns og Laxár. Sveitarstjórn er kunnugt um samtal um framtíðarstaðsetningu eldsneytissölu.
Sveitarstjórn staðfestir stefnu fyrri sveitarstjórnar um að eldsneytissala verði færð af miðsvæði Reykjahliðar og komið fyrir utan verndarsvæðis Mývatns og Laxár. Sveitarstjóra falið að kanna stöðu á viðræðum um staðsetningar eldsneytissölu í Reykjahlíð.
Samþykkt samhljóða.
11.Brunavarnaráætlun 2026 - 2031
Málsnúmer 2609047Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
12.Norðurorka - aukaaðalfundur 2026
Málsnúmer 2610016Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkti áður í tölvupósti að sveitarstjóri sæti fundinn og færi með atkvæði fyrir hönd sveitarfélagsins.
13.Byggðastofnun - sterkari byggðir
Málsnúmer 2610039Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að kanna nánar möguleika sveitarfélagsins til þátttöku í verkefninu og leggja mat á ávinning fyrir sveitarfélagið.
Samþykkt samhljóða.
14.Tjarnir hf. - ársreikningur 2025
Málsnúmer 2609035Vakta málsnúmer
Lagt fram.
15.Greið leið ehf. - Hluthafafundur 23. október 2026
Málsnúmer 2610046Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að sitja fundinn og fara með atkvæðisrétt fyrir hönd Þingeyjarsveitar.
Samþykkt samhljóða.
16.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög
Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggja til umræðu samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög. Unnið hefur verið að formfestu stuðnings við íþróttafélög í sveitarfélaginu.
Sveitarstjórn þykir miður hve málið hefur tafist fram úr hófi. Sveitarstjórn frestar málinu en boðar til vinnufundar í næstu viku um samningana með það að markmiði að afgreiða málið á næsta fundi sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
17.Vegagerðin - varðandi reiðleiðir á aðalskipulagi yfir brú yfir Skjálfandafljóti
Málsnúmer 2610050Vakta málsnúmer
Reiðleiðir eru sýndar á aðaluppdrætti þar sem gert er ráð fyrir umferð. Núverandi reiðleið er því sýnd á aðaluppdrætti, þar sem ekki liggur fyrir hvaða þróun verður með tilkomu nýrrar brúar.
Sveitarstjórn hefur ekki áhuga á eignarhaldi á núverandi brú en gerir ekki athugasemd við áframhaldandi notkun sem göngu/hjóla/reiðleið, og bendir einnig á að veitur nota brúna sem lagnaleið. Sveitarstjórn bendir Vegagerðinni á að ræða við viðkomandi aðila, þ.e. hestamannafélög og veitufyrirtæki.
Sveitarstjóra falið að koma bókun á framfæri við Vegagerðina.
Samþykkt samhljóða.
18.Vegagerðin - Norðausturvegur um Skjálfandafljót - Náma B Ljósvetningabúð
Málsnúmer 2610051Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
19.Innviðaráðuneytið - mál S 191 2026 Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga
Málsnúmer 2610037Vakta málsnúmer
Settar eru fram tillögur að 30 mælikvörðum og skilgreindum viðmiðum sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma.
Umsagnarfrestur er til 13. nóvember 2026.
Frestað.
20.Umhverfis- og samgöngunefnd - 59. mál - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 1382011(fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn)
Málsnúmer 2610041Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
21.Umhverfis- og samgöngunefnd - til umsagnar 88. mál - endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá
Málsnúmer 2610040Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn sér ekki ástæðu til að senda inn umsögn um málið á þessu stigi.
Samþykkt samhljóða.
22.Laugafiskur - áform um veitingu bráðabirgðaheimildar
Málsnúmer 2610008Vakta málsnúmer
23.Umhverfis- og orkustofnun - umsókn Samherja Íslands ehf. um bráðabirgðaheimild
Málsnúmer 2610042Vakta málsnúmer
Frestur til að skila umsögn var til 15. október og samþykkti sveitarstjórn fyrirliggjandi umsögn í tölvupósti.
Umsögn Sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar send UOS.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar telur starfsemi fiskþurrkunar að Laugum hafa verulega þýðingu fyrir atvinnulíf og nærsamfélag. Starfsemin á sér langa sögu á Laugum og hefur verið mikilvægur hluti atvinnulífs á svæðinu um áratugaskeið. Þar starfa um 20 manns og starfsemin nýtir þjónustu og innviði í nærsamfélaginu, meðal annars með verulegum kaupum á heitu vatni af Hitaveitu Reykdæla.
Að mati sveitarstjórnar gæti áframhaldandi stöðvun starfseminnar því haft alvarleg áhrif, fyrst og fremst á starfsfólk og fjölskyldur þeirra, en einnig á atvinnulíf og samfélag á Laugum og í nærliggjandi byggðum. Í fámennum samfélögum hefur brotthvarf starfa hlutfallslega mikil áhrif og dregið úr nauðsynlegri fjölbreytni atvinnulífs.
Sveitarstjórn telur þó jafnframt rétt að horfa til málsins í víðara samhengi þar sem að starfsemin hefur um árabil haft umtalsverð áhrif á lífsgæði íbúa í nágrenninu og í ljósi breyttra atvinnuhátta með auknu vægi ferðaþjónustu þá reynir enn frekar á lágmörkun umhverfisáhrifa af starfseminni. Að því sögðu þá má með réttu segja að sveitarstjórn yrði með þeim fyrstu að fagna því ef það fyndist önnur starfsemi sem betur samræmdist aðstæðum og umhverfi, til að nýta húsnæði og aðstöðu sem og það heita vatn sem er í boði.
Sveitarstjórn telur að þótt áhrif áframhaldandi stöðvunar geti þannig orðið veruleg, þá sé ekki sjálfgefið að þau verði öll varanleg. Það er svigrúm á Laugum til nýsköpunar og þróunar hvort sem er með breyttri starfsemi á núverandi grunni eða nýjum verkefnum sem betur samræmast nærumhverfi og áherslum samfélagsins.
Í úrskurði Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála var starfsleyfi starfseminnar fellt úr gildi vegna þess að ekki lágu fyrir fullnægjandi upplýsingar til að tryggja að starfsemin leiddi ekki til hnignunar vatnshlota sem gætu orðið fyrir áhrifum. Jafnframt var sérstaklega bent á þá vernd sem Laxá í Aðaldal nýtur með sérlögum.
Sveitarstjórn bendir á að mikilvægt er að brugðist verði við þeim atriðum sem úrskurðurinn leiddi í ljós og að atvinnustarfsemi á svæðinu geti farið saman við vernd umhverfis og góð lífsskilyrði íbúa.
Sveitarstjórn telur því mikilvægt að við mat á umsókn um bráðabirgðaheimild verði annars vegar horft til þeirra verulegu samfélags- og atvinnuhagsmuna sem tengjast starfseminni og hins vegar til þess að rekstur hennar verði að geta samræmst þeim kröfum sem gerðar eru til umhverfisverndar og þeirra sjónarmiða sem fram koma í úrskurði úrskurðarnefndarinnar.
Lagt fram til kynningar.
24.HSN - breyting dvalarrýma í hjúkrunarrými - stuðningur til sjálfstæðrar búsetu
Málsnúmer 2610013Vakta málsnúmer
"Fræðslu- og velferðarnefnd þakkar fyrir tilkynninguna en telur að jafnframt þurfi frekari upplýsingar um áætlun HSN á þessari framkvæmd og áhrif hennar á stöðu þjónustuþega í Þingeyjarsveit. Einnig er þörf á að fá upplýsingar um tímaramma á þessu ferli.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að kalla eftir nánari upplýsingum um þetta mál. "
Sveitarstjórn tekur undir bókun um að óska eftir frekari skýringum og felur sveitarstjóra að kalla eftir þeim.
Samþykkt samhljóða.
25.Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun
Málsnúmer 2308006Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd fagnar staðfestingu aðalskipulagsins."
Sveitarstjórn tekur undir fagnaðarlæti skipulagsnefndar. Sveitarstjórn þakkar Árna Geirssyni skipulagsráðgjafa, öllum þeim skipulagsfulltrúum og sveitarstjórnum sem komu að endurskoðun aðalskipulagsins fyrir góða vinnu.
Samþykkt samhljóða.
26.Vegagerðin - beiðni um staðsetningu stoppistöðvar Aðaldalsvegar
Málsnúmer 2609034Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að staðsetningu stoppistöðvar við félagsheimilið Ýdali og leggur til að staur með merkingum verði settur upp í samráði við húsvörð austast á bílaplaninu fremur en við aðalinngang. Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að ræða við Vegagerðina um aðkomu þeirra að lýsingu á svæðinu. Skipulagsnefnd hvetur Vegagerðina til að skoða aðrar stoppistöðvar í sveitarfélaginu með það að markmiði að auka öryggi og bæta þjónustu.
Málinu vísað til sveitarstjórnar."
Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulagsnefndar og gerir að sinni. Sveitarstjórn bendir á nauðsyn þess að góð lýsing sé við stoppistöðina.
Samþykkt samhljóða.
27.Skógarmelar - deiliskipulag
Málsnúmer 2603067Vakta málsnúmer
"Skipulagsnefnd telur ekki þörf á viðbrögðum við fram komnum athugasemdum og felur skipulagsfulltrúa að svara Vegagerðinni vegna vegtenginga. Skipulagsnefnd vekur athygli á að óheimilt er að hefja framkvæmdir innan svæðisins fyrr en að skipulagsferli og leyfisveitingum er lokið.
Málinu vísað til sveitarstjórnar og lagt til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða bókun skipulagsnefndar.
28.Íþrótta- og æskulýðsstarf - seinni úthlutun styrkja 2026
Málsnúmer 2609067Vakta málsnúmer
"ÍTM þakkar fyrir sýndan áhuga og leggur til við sveitarstjórn að eftirfarandi styrkir verði veittir: Skákfélagið Goðinn 100.000 vegna skákmóts, Umf. Efling 350.000 vegna húsaleigu hjá Laugaskóla og búnaðarkaup, Þjálfi 350.000 vegna æskulýðsstarfs og mótahalds."
29.UMF Efling - formlegt erindi til sveitarstjórnar um íþróttastefnu
Málsnúmer 2610005Vakta málsnúmer
"ÍTM leggur til við sveitarstjórn að samstarfssamningar við íþróttafélögin verði kláraðir sem allra fyrst. Í skólastefnu Þingeyjarsveitar er sérstaklega fjallað um samþættingu skóla, íþrótta- og frístundastarfs. Nefndin hvetur skólastjórnendur til þess að hafa það í huga við stundatöflugerð.
ÍTM leggur til við sveitarstjórn að gerð verði heildstæð stefna um íþróttir, tómstundir og menningarmál fyrir nefndina og sveitarfélagið til þess að starfa eftir. Jafnframt verði búnaðarmál í íþróttahúsum og sölum til íþróttaiðkunar könnuð."
Sveitarstjórn þakkar stjórn Ungmennafélagsins Eflingar fyrir erindið og þann metnað sem félagið sýnir í þágu íþrótta- og æskulýðsstarfs innan sveitarfélagsins. Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi öflugs íþróttastarfs fyrir börn og ungmenni og telur mikilvægt að áfram sé unnið að því að skapa sem best skilyrði fyrir fjölbreytta þátttöku í slíku starfi.
Sveitarstjórn felur oddvita að svara erindinu í samráði við sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
30.Menningarmál - seinni úthlutun styrkja 2026
Málsnúmer 2606056Vakta málsnúmer
"ÍTM þakkar fyrir þær fjölmörgu umsóknir sem bárust vegna menningarmála. Því miður sá nefndin sér ekki fært að styrkja alla umsækjendur. ÍTM leggur til við sveitarstjórn að eftirfarandi hljóti styrki: Leikdeild Eflingar 300.000 vegna kaupa á tæknibúnaði, Umf. Einingin 150.000 til að koma blaðinu Neista á tölvutækt form, Urðarbrunnur 200.000 vegna örnefnaskráningar, Bryndís Fjóla 150.000 vegna Álfastígs og Félag sauðfjárbænda 100.000 vegna hrútasýningar.
Að auki leggur nefndin til að gerður verði samstarfssamningur vegna Brúarkynninga og að viðbót verði gerð við samstarfssamning Mývetnings vegna menningarviðburða."
Sveitarstjórn samþykkir tillögur ÍTM um styrki vegna menningarmála.
Samþykkt samhljóða.
31.Úrvinnslusjóður - greiðslur til sveitarfélaga vegna hreinsunar plastvara á víðavangi 2025 og 2026
Málsnúmer 2609064Vakta málsnúmer
"Innan Þingeyjarsveitar hafa víða verið skipulögð hreinsunarátök auk einstaklingsframtaks við að tína rusl á víðavangi. Umhverfisnefnd óskar eftir því að sveitarfélagið útbúi leiðbeiningar til þeirra félagasamtaka og einstaklinga sem framkvæma þau hreinsunarátök svo hægt sé að sækja um fjárveitingar skv. reglum Úrvinnslusjóðs. Umhverfisnefnd leggur til að þeim fjármunum verði svo varið til að styrkja hreinsun úrgangs á víðavangi. "
Sveitarstjórn frestar erindinu.
32.Stofnun félagasamtaka um björgun Kristnesspítala
Málsnúmer 2610048Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn ítrekar mikilvægi endurhæfingarstarfsemi á Kristnesi og hvetur sveitarstjórnarfulltrúa sem og fulltrúa félagasamtaka til að kynna sér málið.
Samþykkt samhljóða.
33.Samtök orkusveitarfélaga - fundargerði 2026-2030
Málsnúmer 2608074Vakta málsnúmer
34.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer
35.Stjórn Norðurorku - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608081Vakta málsnúmer
36.Samtök orkusveitarfélaga - fundargerði 2026-2030
Málsnúmer 2608074Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjórn þakkar Landsvirkjun fyrir mjög góðar móttökur og gott samtal um sameiginleg hagsmunamál.
Fundi slitið.
Oddviti óskaði eftir að bæta máli 7 á dagskrá fundarins, með afbrigðum: Til sveitarstjórnar - spurningar um meint vanhæfi sveitarstjóra.
Samþykkt samhljóða.