Fara í efni

Vegagerðin - varðandi reiðleiðir á aðalskipulagi yfir brú yfir Skjálfandafljóti

Málsnúmer 2610050

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 88. fundur - 22.10.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur fyrirspurn frá Vegagerðinni varðandi reiðleið sem gert er ráð fyrir í nýsamþykktu aðalskipulagi yfir þá brú sem verður aflögð þegar ný brú verður tekin í notkun. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hvort fyrri afstaða sveitarstjórnar til eignarhalds eldri brúarinnar hafi breyst vegna fyrirhugaðrar notkunar hennar sem hluta reiðleiðarinnar.
Til máls tók: Hallgrímur Páll.

Reiðleiðir eru sýndar á aðaluppdrætti þar sem gert er ráð fyrir umferð. Núverandi reiðleið er því sýnd á aðaluppdrætti, þar sem ekki liggur fyrir hvaða þróun verður með tilkomu nýrrar brúar.

Sveitarstjórn hefur ekki áhuga á eignarhaldi á núverandi brú en gerir ekki athugasemd við áframhaldandi notkun sem göngu/hjóla/reiðleið, og bendir einnig á að veitur nota brúna sem lagnaleið. Sveitarstjórn bendir Vegagerðinni á að ræða við viðkomandi aðila, þ.e. hestamannafélög og veitufyrirtæki.

Sveitarstjóra falið að koma bókun á framfæri við Vegagerðina.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?