Brunavarnaráætlun 2026 - 2031
Málsnúmer 2609047
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 87. fundur - 01.10.2026
Fyrir sveitarstjórn liggja drög að rafrænni brunavarnaáætlun fyrir tímabilið 2026 - 2031.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 88. fundur - 22.10.2026
Fyrir sveitarstjórn liggja drög að rafrænni brunavarnaáætlun fyrir tímabilið 2026 - 2031 en sveitarstjórn frestaði afgreiðslu á síðasta fundi þar sem gögn voru ekki tiltæk. Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur umsögn HMS og samþykki sveitarstjórnar. Áætlunina skal endurskoða á 5 ára fresti.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða brunavarnaráætlun fyrir starfssvæði slökkviliðs sveitarfélagsins fyrir tímabilið 2026 til 2031. Áætlunin er unnin af slökkviliðsstjóra í samræmi við lög um brunavarnir og hefur hlotið umsögn Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að annast kynningu samþykktarinnar. Framkvæmdaáætlun er vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Hörður kom aftur til fundar kl. 14.36.