Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

87. fundur 01. október 2026 kl. 14:00 - 15:31 í Þingey
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Nanna Marteinsdóttir
  • Anna Bragadóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Hörður Sigurðsson
  • Dóra Rún Kristjánsdóttir
  • Hallgrímur Páll Leifsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Snæþór Haukur Sveinbjörnsson
  • Freydís Anna Ingvarsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Snorri Már Snorrason
  • Eyþór Kári Ingólfsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
  • Katrín Sigurjónsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Oddviti setti fund og óskaði eftir athugasemdum við fundarboð. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
Ennfremur óskaði oddviti eftir að bæta á dagskrá lið nr. 28 - Samtök landbúnarsveitarfélaga - stofnfundur.
Samþykkt samhljóða.
Einnig vakti oddviti athygli á því að í útsendri dagskrá kom sami fundaliður fyrir tvisvar sem liður 43 og 45. Seinni liður fellur út.

1.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 37

Málsnúmer 2609001FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 37. fundar fræðslu- og velferðarnefndar frá 7. september sl. Fundargerðin er í fimm liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Snorri Már Snorrason fór yfir fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

2.Skipulagsnefnd - 54

Málsnúmer 2609005FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 54. fundar skipulagsnefndar sem haldinn var 16. september sl. Fundargerðin er í 13 liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Knútur Emil Jónasson fór yfir fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

3.Umhverfisnefnd - 36

Málsnúmer 2609009FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 36. fundar umhverfisnefndar sem haldinn var 14. september sl. Fundargerðin er í tíu liðum. Liðir þrjú og níu þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og eru sér liðir á fundinum.
Bylgja Dögg fór yfir fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

4.Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. - fundargerðir 2026-2030

Málsnúmer 2608077Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 67. fundar stjórnar Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar ehf. sem haldinn var 30.09.2026



Knútur kynnti fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

5.Fjárhagsáætlun 2027

Málsnúmer 2609069Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að taka ákvörðun um forsendur við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Eftirfarandi tillaga að forsendum er hér með lögð fyrir sveitarstjórn:

Fullnýting verði á útsvari skv. lögum, sbr. 1. mgr. 23. gr. l.nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga eða 14,97%.

Álagning fasteignaskatts verði sem hér segir:

Fasteignaskattur A-gjald 0,575% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis

Fasteignaskattur B-gjald 1,32% af fasteignamati opinberra stofnana og fasteignaskattur

C-gjald 1,65% af atvinnuhúsnæði.

Lagt er til að lóðarleiga af lóðum í þéttbýli verði 1% af fasteignamati, utan þeirra samninga í Reykjahlíð sem bundnir eru verði á m2 og tekur mið af lóðarleigu sem sveitarfélagið greiðir til landeigenda Reykjahlíðarjarða.

Vatns- og fráveitugjöld verði eftirfarandi: Vatnsgjald 0,190 % af fasteignamati og fráveitugjald 0,184 % af fasteignamati, aukavatnsgjald 0,42% af fasteignamati.

Almennar gjaldskrár hækki um 2,5 % og er þar horft samþykktar Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið var á Akureyri í september.

Við áætlun vegna launa verði horft til meðaltals hækkana þeirra félagsmanna sem eru í starfi hjá Þingeyjarsveit og laun hækkuð um 4%.
Til máls tók: Snæþór, Dóra Rún og Knútur Emil.

Snæþór lagði fram eftirfarandi tillögu:
Ég legg til að a-gjald fasteignagjalda fyrir árið 2027 verði 0,55% af fasteignamati.

Tillagan er felld með atkvæðum Knúts, Dóru, Nönnu og Harðar, atkvæði með tillögunni greiddu Snæþór, Snorri og Bylgja.


Sveitarstjórn samþykkir framlagðar forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar 2027 og felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna drög að fjárhagsáætlun 2027-2030 á grundvelli þeirra.

Samþykkt með atkvæðum Knúts, Dóru, Nönnu og Harðar, Snæþór, Snorri og Bylgja sitja hjá.

6.Rekstrar- og fagleg úttekt á skólum

Málsnúmer 2505094Vakta málsnúmer

Á 81. fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar var skýrsla um rekstrar- og faglega úttekt á skólum Þingeyjarsveitar lögð fram til kynningar fyrir nýja sveitarstjórn. Sveitarstjórn bókaði að stefnt yrði að upplýsingafundi með höfundum skýrslunnar í lok sumars þar sem þeir myndu kynna niðurstöður. Sveitarstjórn hefur nú setið upplýsingafund með höfundum skýrslunnar og fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveitar.
Til máls tóku: Nanna, Snæþór og Dóra Rún.

Sveitarstjórn þakkar höfundum skýrslunnar fyrir kynninguna.

Stefna sveitarstjórnar er að áframhaldandi rekstur skólastofnana í sveitarfélaginu verði óbreyttur. Sveitarstjórn mun því ekki gera allar tillögur skýrsluhöfunda að sínum, en mun nýta skýrslurnar til viðmiðunar við áframhaldandi rýni á rekstri og starfi skólanna.

Niðurstöður faglegrar úttektar eru ánægjulegar og gott er að fá staðfestingu á því að nemendur búi við gott faglegt umhverfi, þótt áskoranir vegna fámennis séu vissulega til staðar.

Niðurstöður rekstrargreiningar munu einnig nýtast við áframhaldandi rýni á rekstri skólanna.

Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að birta skýrsluna á vef sveitarfélagsins.

Sveitarstjórn vísar skýrslunni til umfjöllunar í fræðslu- og velferðarnefnd, sem skili áliti til sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs að fara yfir skýrsluna með skólastjórnendum samhliða áætlanagerð og skipulagningu starfs skólanna.

Samþykkt samhljóða.

7.Slökkvilið Þingeyjarsveitar - úttekt á vegum HMS

Málsnúmer 2607003Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá HMS frá 9. september er varðar niðurstöður úttektar á slökkviliði Þingeyjarsveitar sem gerð var 13. apríl s.l. Úttektin í apríl var kynnt í sveitarstjórn á 84. fundi 13. ágúst sl.

Undir málinu liggja til kynningar drög að leigusamningi um húsnæði fyrir slökkvibíl í Mývatnssveit í vetur.
Til máls tók: Knútur.

Oddviti vakti athygli á vanhæfi Harðar Sigurðssonar í lið 7 - Slökkvilið Þingeyjarsveitar - úttekt á vegum HMS og lið 8 - Brunavarnaráætlun 2026-2031 en báðir þessir liðir varða Slökkvilið Þingeyjarsveitar. Sveitarstjórn samþykkti vanhæfi Harðar í báðum liðum.

Hörður vék af fundi kl. 14.30.

Sveitarstjórn felur slökkviliðsstjóra og sveitarstjóra að útbúa kostnaðarmat á þeim liðum sem þurfa úrbóta við og vísa þeim liðum til fjárhagsáætlunargerðar 2027. Einnig er sveitarstjóra og sviðsstjóra falið að svara athugasemdum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar með formlegum hætti og leggja fram áætlun um úrbætur vegna þeirra athugasemda sem fram koma í úttekt stofnunarinnar.

Samþykkt samhljóða.

Drög að leigusamningi um húsnæði fyrir slökkvibifreið í Mývatnssveit eru lögð fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða.

8.Brunavarnaráætlun 2026 - 2031

Málsnúmer 2609047Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja drög að rafrænni brunavarnaáætlun fyrir tímabilið 2026 - 2031.
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu brunavarnaáætlunar 2026-2031 til næsta fundar.

Samþykkt samhljóða.


Hörður kom aftur til fundar kl. 14.36.

9.Austurafréttur - samstarfssamningur um uppsetningu girðingar, viðhald og afmörkun beitarhólfs

Málsnúmer 2609028Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til fullnaðarafgreiðslu samstarfssamningur á milli Þingeyjarsveitar, Lands og skógar og Vegagerðarinnar um uppsetningu girðingar, viðhalds hennar og afmörkun beitarhólfs á Austurafrétti.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samstarfssamning milli Þingeyjarsveitar, Lands og skógar og Vegagerðarinnar um uppsetningu girðingar, viðhald hennar og afmörkun beitarhólfs á Austurafrétti, með fyrirvara um samþykki Landeigenda Reykjahlíðar og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins þegar áðurnefnt samþykki liggur fyrir.

Samþykkt samhljóða.


10.Farsæld barna - áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða á Norðurlandi eystra 2027-2030

Málsnúmer 2609033Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Farsældarráði Norðurlands eystra er varðar áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030. Áætlunin er skref í áframhaldandi innleiðingu farsældarlaganna á Norðurlandi eystra.

Farsældarráð hefur samþykkt að óska eftir því að sveitarstjórnir á Norðurlandi eystra taki áætlunina til formlegrar afgreiðslu og senda Farsældarráði upplýsingar um niðurstöðuna.
Til máls tóku: Dóra Rún og Nanna.

Sveitarstjórn samþykkir svæðisbundna áætlun um forgangsröðun aðgerða vegna farsældar barna á Norðurlandi eystra 2027-2030.

Samkvæmt áætluninni bera sveitarfélög á Norðurlandi eystra ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgd aðgerða á sínu svæði, aðlögun þeirra að staðbundnum þörfum og að tryggja samhæfingu og samstarf milli þjónustuveitenda.

Sveitarstjórn vísar áætluninni til umfjöllunar í fræðslu- og velferðarnefnd og íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd. Jafnframt er áætluninni vísað til úrvinnslu hjá sviðsstjóra fjölskyldusviðs og verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála.

Samþykkt samhljóða.

11.Stórutjarnaskóli - Öryggi nemenda og rekstur Hótels Tjarna

Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer

Á síðasta fundi sveitarstjórnar var sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að framkvæma tafarlausar aðgerðir innanhúss í Stórutjarnaskóla til að koma til móts við athugasemdir sem borist höfðu frá Sigríði Árdal varðandi öryggi nemenda og rekstur Hótels Tjarna. Einnig var óskað eftir greinargerð frá sviðsstjóra og skólastjóra varðandi sama mál.

Skv. upplýsingum frá sviðsstjóra hefur verið brugðist við athugasemdum í samráði við skólastjóra. Einnig hefur greinargerð borist frá skólastjóra Stórutjarnaskóla þar sem farið er yfir það sem gert hefur verið til að koma til móts við athugasemdir foreldra.
Til máls tók: Dóra Rún.

Sveitarstjórn þakkar sviðsstjóra fjölskyldusviðs og skólastjóra fyrir greinargerðina og skjót viðbrögð.

Sveitarstjórn leggur áherslu á að öryggi nemenda sé ávallt í fyrirrúmi og mun, í samstarfi við stjórn Tjarna hf., leita varanlegrar lausnar vegna þeirrar skörunar sem orðið hefur á starfsemi hótelsins og grunnskólans.

Sveitarstjórn telur mikilvægt að endanleg lausn liggi fyrir áður en starfsemi hótelsins hefst á ný á vordögum.

Samþykkt samhljóða.

12.Tjarnir - Kvörtun vegna Hótels Tjarna

Málsnúmer 2609055Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar kvörtun frá Malín Öglu Kristjánsdóttur varðandi starfsemi Hótels Tjarna.
Lagt fram til kynningar.

Vísað er til afgreiðslu sveitarstjórnar undir lið 11 og er sveitarstjóra falið að svara bréfritara í samræmi við hana.

Samþykkt samhljóða.

13.Flateyjarhöfn - viðhald og framkvæmdir

Málsnúmer 2605009Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsókn um styrk frá félagi Húseigenda á Flatey til áframhalds á viðhaldi hafnarmannvirkja í eyjunni en Þingeyjarsveit hefur styrkt félagið til umrædds viðhalds.
Til máls tók: Knútur Emil.

Sveitarstjórn samþykkir að styrkja Félag húseigenda í Flatey um kr. 500.000 til viðhalds hafnarmannvirkja í Flatey.

Samþykkt samhljóða.

14.Viðverustefna Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2509040Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja lokadrög að viðverustefnu Þingeyjarsveitar ásamt handbók fyrir stjórnendur en hún var áður á dagskrá 72. fundar sveitarstjórnar en er nú á dagskrá eftir umsagnarferli og yfirferð forstöðumanna.



Tilgangur og markmið viðverustefnu eru eftirfarandi:



a)
Styðja við og hlúa að starfsmönnum vegna fjarveru frá vinnu vegna veikinda, slysa eða áfalla um lengri eða skemmri tíma.

b)
Auka ánægju í starfi og skapa traust og heilsusamlegt vinnuumhverfi.

c)
Gæta jafnræðis í ákvörðunum og meðhöndlun mála er lúta að hvers kyns fjarvistum frá vinnu.

d)
Halda fjarvistum í lágmarki, þ.e. fækka skiptum og stytta fjarverutímann með markvissum fyrirbyggjandi aðgerðum.

e)
Stuðla að farsælli endurkomu starfsfólks til vinnu eftir langvarandi fjarvistir vegna veikinda eða slysa og/eða ef starfsgeta þeirra breytist.

f)
Efla hag sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkir framlagða viðverustefnu Þingeyjarsveitar ásamt handbók fyrir stjórnendur.

Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að kynna stefnuna fyrir starfsfólki og annast birtingu hennar á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

15.Slægjufundur 2026

Málsnúmer 2609065Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að skipa í slægjufundarnefnd vegna hins árlega Slægjufundar sem haldinn er í Skjólbrekku í Mývatnssveit.

Í ár er komið að Reykjahlíðarþorpi að undirbúa Slægjufund sem samkvæmt venju er haldinn hinn fyrsta vetrardag og ber nú upp á laugardaginn 24. október.

Sveitarstjórn leggur til að Garðar Finnsson verði skipaður formaður og kalli til fyrsta fundar nefndarinnar.

Sveitarstjórn hefur áður samþykkt skipan slægjunefndar í tölvupósti og er því þessi samþykkt því til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða.

16.Laugafiskur - vöktunaráætlun

Málsnúmer 2601034Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn fjallaði um málið á 80. fundi þann 28. maí sl. þegar lá fyrir greinargerð frá Samherja um framgang mengunarvarna í kjölfar nýs starfsleyfis. Nú hefur úrskurðarnefnd fellt starfsleyfið úr gildi en Samherji vinnur að lausn málsins í samráði við þar til bærar stofnanir með það að markmiði að geta byrjaði að vinna hráefni sem fyrst aftur í verksmiðjunni. Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og skipulagsfulltrúi vinna að mögulegum leiðum til áframhaldandi úrbóta af hálfu sveitarfélagsins.

Náttúrustofa Norðausturlands sér um mælingar samkvæmt vöktunaráætlun vegna fráveitu Laugafisks ehf. og Þingeyjarsveitar.
Lagt fram til kynningar.

Sveitarstjórn vísar umfjöllun um úrbætur af hálfu sveitarfélagsins til umhverfisnefndar.

Samþykkt samhljóða.

17.Flugklasinn Ari 66N - ósk um stuðning

Málsnúmer 2609062Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Markaðsstofu Norðurlands er varðar áframhaldandi ósk um stuðning við Flugklasann Air 66N.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.

Samþykkt samhljóða.

18.Öldungaráð - skipan fulltrúa 2026 -2030

Málsnúmer 2609073Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að skipa fulltrúa í öldungaráð Norðurþings en Þingeyjarsveit skipar í ráðið á grundvelli samnings við Norðurþing. Skipa þarf aðal- og varafulltrúa.
Til máls tók: Knútur.

Frestað til næsta fundar sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.



19.Ungmennaráð Þingeyjarsveitar - tilnefningar 2026

Málsnúmer 2608015Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að staðfesta tilnefningar og skipan í ungmennaráð 2026
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn staðfestir eftirfarandi tilnefningar í ungmennaráð Þingeyjarsveitar 2026.
Aðalmenn:
Sigrún Arnarsdóttir Reykjahlíðarskóla
Auður Tinna Auðunsdóttir Stórutjarnaskóla
Hafdís Tinna Pétursdóttir Þingeyjarskóla
Sigurveig Birna Snorradóttir Framhaldsskólanum á Laugum
Kristján Brynjólfsson skipaður af íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd
Varamenn:
Ronja Sjöfn Jónsdóttir Reykjahlíðarskóla
Sigmar Höskuldsson Stórutjarnaskóla
Dagur Sæmundsson Þingeyjarskóla
Ellý Rún Ragúels Jóhannsdóttir Framhaldsskólanum á Laugum
Amelía Ásdís Kozaczek skipuð af íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd

Samþykkt samhljóða

20.Framsýn - verum saman í liði - áskorun til sveitarfélagsins vegna brostinna forsenda kjarasamnings

Málsnúmer 2609053Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Framsýn stéttarfélag með áskorun til sveitarstjórnar vegna brostinna forsenda kjarasamnings.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn þakkar áskorunina og vísar í afgreiðslu á lið 5 í fundargerðinni er varðar forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Samþykkt samhljóða.

21.Kjarasamningur 2024 - erindi frá verkalýðsfélögum varðandi forsendubreytingar

Málsnúmer 2609040Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá formönnum verkalýðsfélaganna VR, LÍV og Fagfélögunum varðandi forsendu breytingar kjarasamnings frá 2024 þar sem eftirfarandi spurningar eru lagðar fram:

- Mun Þingeyjarsveit endurskoða fyrirhugaðar eða þegar samþykktar gjaldskrárhækkanir og leita leiða til að lækka gjöld sem hafa mest áhrif á barnafjölskyldur og viðkvæma

hópa?

- Hvaða aðgerðir hyggst Þingeyjarsveit ráðast í til að tryggja nægilegt framboð lóða og hraðari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis?

- Hvernig hyggst Þingeyjarsveit leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla?

- Hvaða aðrar aðgerðir telur Þingeyjarsveit mögulegar til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila og styðja við markmið kjarasamninganna um verðstöðugleika?
Til máls tók: Nanna.

Þingeyjarsveit tekur undir markmið um verðstöðugleika og mun leggja sitt af mörkum í sameiginlegu átaki til að draga úr verðbólgu og stuðla að lækkun vaxta.

Almennar gjaldskrár sveitarfélagsins fyrir árið 2027 hækka um 2,5%. Þar er meðal annars horft til samþykktar Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið var á Akureyri í september 2026.

Þingeyjarsveit vinnur nú að deiliskipulagi þéttbýliskjarna í samræmi við nýtt aðalskipulag, sem mun tryggja aukið framboð lóða. Jafnframt er sveitarfélagið í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.

Í Þingeyjarsveit er ekki bil á milli fæðingarorlofs og leikskólavistar.

Sveitarfélagið styður jafnframt vel við barnafjölskyldur, meðal annars með gjaldfrjálsum leikskólamáltíðum og hagstæðum gjaldskrám leikskóla og tónlistarskóla.

Samþykkt samhljóða.

22.Þjóðarsátt um verðstöðugleika

Málsnúmer 2609052Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands með yfirskriftina Þjóðarsátt um verðstöðugleika þar sem skorað er á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Sveitarstjórn þakkar erindið og vísar í afgreiðslu á lið 5 í fundargerðinni er varðar forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Samþykkt samhljóða.

23.GG2023 ehf. - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2609050Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð frá stjórn GG2023 ehf. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 30. september kl. 11:00 í fundarsal Framsýnar við Garðarsbraut 26 á Húsavík.
Skv. samþykkt stjórnar Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar ehf. fór Knútur Emil Jónasson með umboð félagsins á aðalfundi GG2023 ehf.

24.Tjarnir hf. - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2609035Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð Tjarna hf. sem haldinn verður í Stórutjarnaskóla 24. september n.k. kl. 20:30
Skv. samþykkt stjórnar Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar sem fram fór 6. mars sl. var Arnóri Benónýssyni falið að fara með atkvæði Atvinnueflingar Þingeyinga á fundinum.

25.Jöfnunarsjóður - ársfundur 2026

Málsnúmer 2609061Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundarboð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem verður haldinn miðvikudaginn 7. október nk. á Hilton Reykjavík og hefst kl. 16:00
Til máls tók: Knútur.

Katrín Sigurjónsdóttir og Knútur Emil Jónasson munu sitja fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. Sveitarstjórn samþykkir að Katrín Sigurjónsdóttir fari með atkvæði sveitarfélagsins á ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Samþykkt samhljóða.

26.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2609059Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur boð á aðalfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2026, ásamt ársreikningi. Fundurinn verður haldinn 7. október nk. á Hilton Reykjavík kl. 11. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.
Sveitarstjórn samþykkir að Knútur Emil Jónasson fari með atkvæði Þingeyjarsveitar á aðalfundinum og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að skrá fulltrúa á fundinn.

Samþykkt samhljóða.

27.Samtök um kvennaathvarf - beiðni um húsnæðisframlag 2027

Málsnúmer 2609074Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Samtökum um kvennaathvarf um styrk vegna húsnæðiskostnaðar Kvennaathvarfs á Akureyri en erindið er sent á öll sveitarfélög á Norðurlandi eystra. Óskað er eftir styrk að upphæð 195.854 og er líkt og undanfarin ár óskað eftir styrk í hlutfalli við íbúafjölda. Heildarhúsnæðiskostnaður athvarfsins á Akureyri eru 4,3 m.kr.
Til máls tók: Dóra Rún.

Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.

Samþykkt samhljóða.

28.Samtök landbúnaðarsveitarfélaga - stofnfundur

Málsnúmer 2609087Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundarboð, boðað er til stofnfundar Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga miðvikudaginn 7. október kl. 15:00-16:00 í sal á 2. hæð á Hilton Reykjavík.

Athygli er vakin á því að sveitarfélög sem verða stofnaðilar að samtökunum þurfa fyrir árslok 2026 að senda starfsmanni samtakanna staðfestingu á því að sveitarstjórn hafi samþykkt aðild sveitarfélagsins að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga.
Til máls tóku: Katrín og Knútur.

Sveitarstjórn samþykkir að Þingeyjarsveit verði stofnaðili að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga og felur Knúti Emil Jónassyni að sitja stofnfundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda starfsmanni samtakanna staðfestingu á aðildinni.

Samþykkt samhljóða.

29.SSNE - erindi vegna þátttöku í Kolku rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga

Málsnúmer 2607007Vakta málsnúmer

Á 36. fundi umhverfisnefndar sem haldinn var 14. september var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi lið þrjú er varðar erindi SSNE vegna þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaganna:
"Umhverfisnefnd telur að innleiðing Kolku í samvinnu með SSNE geti aðstoðað sveitarfélagið við að veita aðhald í rekstri, fjölbreyttra eininga sveitarfélagsins og uppfylla lagalega skuldbindingar vegna loftlagsstefnu þess."
Sveitarstjórn tekur undir bókun umhverfisnefndar og samþykkir þátttöku Þingeyjarsveitar í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi, í samstarfi við SSNE. Sveitarstjóra er falið að tilkynna SSNE um þátttökuna.

Samþykkt samhljóða

30.Umhverfis- og samgöngunefnd - umsögn 5. mál - sveitarstjórnarlög

Málsnúmer 2609054Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til umsagnar 5. mál umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, Sveitarstjórnarlög. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október n.k.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að fylgjast með framvindu málsins og halda sveitarstjórnarfólki upplýstu.

Samþykkt samhljóða.

31.Umhverfis- og samgöngunefnd - umsögn 4. mál - varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón

Málsnúmer 2609056Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til umsagnar 4. mál umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október n.k.
Til máls tók: Knútur.

Lagt fram til kynningar.

32.Samtök orkusveitarfélaga - kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer

Á 36. fundi umhverfisnefndar sem haldinn var 14. september var eftirfarandi bókað undir lið níu er fjallaði um erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa:

"Umhverfisnefnd tekur undir mikilvægi þess að frumvarp um afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og fasteignasköttum nái fram að ganga. Nefndin hvetur sveitarstjórn til að fylgja málinu eftir."
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn tekur undir bókun umhverfisnefndar og leggur ríka áherslu á að frumvarp um afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og fasteignasköttum nái fram að ganga.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir, meðal annars gagnvart þingmönnum Norðausturkjördæmis.

Samþykkt samhljóða.

33.Atvinnuveganefnd - umsögn 66. mál - leit að olíu og gasi

Málsnúmer 2609072Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur umsagnarbeiðni frá Atvinnuveganefnd vegna 66. máls - Leit að olíu og gasi. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 6. október n.k.
Lagt fram til kynningar.

34.Morgunbollinn - glærukynningar um þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2027

Málsnúmer 2609051Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur kynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er varðar hagsmunagæslu Sambandsins, þingmálaskrá 2026-2027 og fjárlagafrumvarp 2027
Til máls tók: Knútur.

Lagt fram til kynningar.

35.Dvalarheimili aldraðra - fundargerðir stjórnarfunda

Málsnúmer 2511009Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð frá stjórnarfundi DA sf. sem haldinn var 16. september sl.
Til máls tók: Knútur.

Lagt fram til kynningar.

36.Samtök orkusveitarfélaga - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2608010Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga frá 21. ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.

37.Samtök orkusveitarfélaga - fundargerði 2026-2030

Málsnúmer 2608074Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar fundargerðir 93. - 96. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 27. apríl, 18. júní og 7. og 21. ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.

38.Svæðisráð norðursvæðis - fundargerðir 2026-2030

Málsnúmer 2608076Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 127. fundar stjórnar svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs frá 24. ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.

39.Markaðsstofa Norðurlands - fundargerðir

Málsnúmer 2609038Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð frá stjórnarfundi Markaðsstofu Norðurlands frá 28. ágúst s.l.
Til máls tók: Knútur.

Lagt fram til kynningar.

40.Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra - fundargerðir 2026-2030

Málsnúmer 2608079Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 251. fundar stjórnar Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra frá 11. september s.l.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn tekur undir bókun heilbrigðisnefndar í 10. lið fundargerðarinnar og telur afar mikilvægt að draga úr þeirri óvissu sem starfsfólk býr við í yfirstandandi breytingaferli.

Fyrirhugaðar breytingar fela meðal annars í sér að verkefni sem hingað til hafa verið á hendi heilbrigðisnefnda sveitarfélaga flytjist til Umhverfis- og orkustofnunar, en jafnframt að tiltekin verkefni færist til sveitarfélaga. Gert er ráð fyrir að reglugerðarbreytingarnar taki gildi 1. janúar 2027 samhliða lagabreytingunum.

Sveitarstjórn leggur ríka áherslu á að sem fyrst liggi skýrt fyrir hvaða verkefni verði áfram á ábyrgð sveitarfélaga og hvaða fjármögnun muni fylgja þeim verkefnum.

Samþykkt samhljóða.

41.Leiguíbúðir Þingeyjarsveitar hses. - fundargerðir

Málsnúmer 2208004Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð Leiguíbúða Þingeyjarsveitar hses er varðar undirskrift ársreiknings
Lagt fram til kynningar.

42.Farsældarráð Norðurlands eystra - fundargerðir og stofnskjöl

Málsnúmer 2512037Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 8. fundar stjórnar Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 9. september s.l.
Lagt fram til kynningar.

43.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2026-2030

Málsnúmer 2608068Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 86. fundar stjórnar SSNE frá 15. september s.l.
Lagt fram til kynningar.

44.SSNE - haustþing 2026

Málsnúmer 2607008Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð haustþings SSNE 2026 frá 9.september s.l.
Lagt fram til kynningar.

45.Vegagerðin - samráðsfundir

Málsnúmer 2609063Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar samantekt frá samráðsfundi Þingeyjarsveitar með Vegagerðinni sem haldinn var í fjarfundi 21. september sl.
Til máls tóku: Knútur og Katrín.

Lagt fram til kynningar.

46.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2026-2030

Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september s.l.
Lagt fram til kynningar.

47.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - fundargerðir

Málsnúmer 2501052Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar fundargerðir 89. - 92. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá 18.febrúar, 18. mars, 15. júní og 16. september s.l.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:31.

Getum við bætt efni þessarar síðu?