Austurafréttur - samstarfssamningur um uppsetningu girðingar, viðhald og afmörkun beitarhólfs
Málsnúmer 2609028
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 87. fundur - 01.10.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur til fullnaðarafgreiðslu samstarfssamningur á milli Þingeyjarsveitar, Lands og skógar og Vegagerðarinnar um uppsetningu girðingar, viðhalds hennar og afmörkun beitarhólfs á Austurafrétti.
Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti framlagðan samstarfssamning milli Þingeyjarsveitar, Lands og skógar og Vegagerðarinnar um uppsetningu girðingar, viðhald hennar og afmörkun beitarhólfs á Austurafrétti, með fyrirvara um samþykki Landeigenda Reykjahlíðar og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins þegar áðurnefnt samþykki liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða.