Fara í efni

Samtök orkusveitarfélaga - kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 2607005

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 84. fundur - 13.08.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi til kynningar frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa varðandi starfsemi, hlutverk og áherslur Samtaka orkusveitarfélaga og hins vegar stutta samantekt um stöðu máls varðandi afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignaskatti, sem hefur verið eitt helsta hagsmunamál samtakanna um árabil og nú stefnir í að komi til meðferðar á Alþingi á komandi vetri.



Málefni orkuvinnslu, virkjana, vindorku, skatttekna og annarra áhrifa orkunýtingar hafa bein áhrif á sveitarfélög víða um land. Stjórn samtakanna telur því mikilvægt að kjörnir fulltrúar séu vel upplýstir um starfsemi samtakanna og þau hagsmunamál sem eru efst á baugi hverju sinni.

Skipulagsnefnd - 52. fundur - 14.08.2026

Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa
Lagt fram til kynningar.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 29. fundur - 25.08.2026

Fyrir Atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

Umhverfisnefnd - 36. fundur - 14.09.2026

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa.
Umhverfisnefnd tekur undir mikilvægi þess að frumvarp um afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og fasteignasköttum nái fram að ganga. Nefndin hvetur sveitarstjórn til að fylgja málinu eftir.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 87. fundur - 01.10.2026

Á 36. fundi umhverfisnefndar sem haldinn var 14. september var eftirfarandi bókað undir lið níu er fjallaði um erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa:

"Umhverfisnefnd tekur undir mikilvægi þess að frumvarp um afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og fasteignasköttum nái fram að ganga. Nefndin hvetur sveitarstjórn til að fylgja málinu eftir."
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn tekur undir bókun umhverfisnefndar og leggur ríka áherslu á að frumvarp um afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og fasteignasköttum nái fram að ganga.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir, meðal annars gagnvart þingmönnum Norðausturkjördæmis.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?