Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Skipulagsnefnd - kynning á hlutverki
Málsnúmer 2606033Vakta málsnúmer
Farið yfir kynningu á hlutverki skipulagsnefndar.
2.Samgöngur og skipulag - bréf til sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa í kjölfar kosninga
Málsnúmer 2608013Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Vegagerðinni er varðar málefni samgangna og skipulags í kjölfar kosninga 2026.
Skipulagsnefnd þakkar fyrir erindið og tekur undir orð Vegagerðarinnar um mikilvægi samráðs.
3.Þingeyjarsveit - tilkynning um fyrirhugaðar niðurfellingar vega af vegaskrá
Málsnúmer 2511044Vakta málsnúmer
Lögð fram tilkynning vegna niðurfellingu vega af vegaskrá. Langavatnsveg og Lindahlíðarvegi.
Um er að ræða heimreiðar í sveitarfélaginu þar sem ekki er lögheimilisskráning fyrir hendi og því áformar Vegagerðin að fella heimreiðarnar af vegaskrá. Skipulagsnefnd minnir landeigendur á að huga að andmælarétti eftir því sem við á.
4.Vatnaáætlun 2028-2033 - upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif
Málsnúmer 2607016Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Umhverfis- og Orkustofnun með yfirskriftinni "Upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028-2033" þar sem vakin er athygli á vinnu að endurskoðun vatnaáætlunar á vegum Umhverfis- og orkustofnunar.
Umhverfis- og orkustofnun óskar því eftir upplýsingum um áætlanir um verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála.
Umhverfis- og orkustofnun óskar því eftir upplýsingum um áætlanir um verkefni sem stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála.
Skipulagsnefnd er ekki kunnugt um verkefni og/eða framkvæmdir innan sveitarfélagsins sem eru líkleg til að hafa umtalsverð neikvæð áhrif á vatnshlot. Í aðalskipulagi er þó gert ráð fyrir stækkun og/eða byggingu jarðvarmavirkjana og vísar sveitarfélagið á Landsvirkjun í þeim efnum.
5.Samtök orkusveitarfélaga - kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa
Lagt fram til kynningar.
6.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis
Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer
Haldinn var fundur vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Mývatns og Laxár í starfshópi þann 9. júní sl. Öll gögn vegna vinnunnar má nálgast á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar https://www.nattura.is/myvatn-og-laxa. Gögn frá fundunum lögð fram til kynningar og umræðu. Unnið er að gerð verkefnalýsingar.
Lagt fram til kynningar.
7.Aðalskipulag 2024-2044 - endurskoðun
Málsnúmer 2308006Vakta málsnúmer
HMS hefur lagt fram endurteknar athugasemdir við í sex liðum með bréfi dags. 14. júlí 2026. Í kjölfarið fundað skipulagsfulltrúi, ásamt ráðgjafa með fulltrúum HMS.
Skipulagsnefnd samþykkir niðurstöðu fundar Skipulagsfulltrúa með HMS og felur skipulagsfulltrúa að leggja svör í skipulagsgátt og lokaútgáfu skipulagsgagna til staðfestingar á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044 í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8.Norðausturvegur (85) - veglína um Skjálfandafljót í Kinn
Málsnúmer 2608035Vakta málsnúmer
Í umhverfisskýrslu með aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2025-2045 er settur fram fyrirvari um mögulega endurskoðun aðalskipulags vegna niðurstöðu umhverfismats fyrir nýja veglínu fyrir Norðausturveg (85) um Skjálfandafljót í Kinn.
Álit HMS vegna matsins var gefið út þann 9. júní 2026. Í ljósi fyrrnefnds fyrirvara í umhverfisskýrslu með aðalskipulagi Þingeyjarsveitar
óskar Vegagerðin hér með eftir að sveitarstjórn Þingeyjarsveitar staðfesti að veglína A standi í samræmi við auglýst skipulag svo halda megi undirbúningi framkvæmdarinnar áfram og hefja vinnu við að útbúa nauðsynleg gögn fyrir umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins.
Álit HMS vegna matsins var gefið út þann 9. júní 2026. Í ljósi fyrrnefnds fyrirvara í umhverfisskýrslu með aðalskipulagi Þingeyjarsveitar
óskar Vegagerðin hér með eftir að sveitarstjórn Þingeyjarsveitar staðfesti að veglína A standi í samræmi við auglýst skipulag svo halda megi undirbúningi framkvæmdarinnar áfram og hefja vinnu við að útbúa nauðsynleg gögn fyrir umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins.
Skipulagsnefnd staðfestir að veglína A standi í samræmi við staðfest skipulag. Nefndin hefur farið yfir gögn og röksemdir Vegagerðarinnar og staðfestir að Þingeyjarsveit er sammála Vegagerðinni um að leggja skuli veginn í samræmi við framlagða tillögu í skipulagi, um veglínu A, þar sem ekki er unnt að ná fram þeim jákvæðu áhrifum vegaframkvæmdarinnar í núverandi veglínu.
Með leið A má ná fram jákvæðum áhrifum á samgöngur svæðisins, bættu umferðaröryggi auk þess sem umferð á framkvæmdatíma verður mun öruggari
og greiðari. Sveitarfélagið hyggst ekki endurskoða veglínu í aðalskipulagi vegna niðurstöðu umhverfismats og hvetur Vegagerðina til að sækja um framkvæmdaleyfi og hefja framkvæmdir sem fyrst.
Með leið A má ná fram jákvæðum áhrifum á samgöngur svæðisins, bættu umferðaröryggi auk þess sem umferð á framkvæmdatíma verður mun öruggari
og greiðari. Sveitarfélagið hyggst ekki endurskoða veglínu í aðalskipulagi vegna niðurstöðu umhverfismats og hvetur Vegagerðina til að sækja um framkvæmdaleyfi og hefja framkvæmdir sem fyrst.
9.Engidalur 2 - ósk um nafnabreytingu
Málsnúmer 2607014Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Elías Wium með ósk um nafnabreytingu á jörðinni Engidalur 2 í Heiðmói.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við nafnabreytingu jarðarinnar í samræmi við fyrirliggjandi gögn og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt og jafnframt verði byggingarfulltrúa falið að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um.
10.Sandabrot - vegalagning - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2608014Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur umsókn um framkvæmdarleyfi vegna vegalagninga í Sandabroti, Mývatnssveit.
Skipulagsnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdarleyfis fyrir vegagerð og lagnir innan Sandabrots í samræmi við deiliskipulag. Skipulagsnefnd leggur áherslu á vandaðan frágang. Í samræmi við viðauka 1.1 í samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar nr. 975/2022, felur nefndin skipulagsfulltrúa að gefa framkvæmdaleyfið út í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áður en að gefið er út leyfi fyrir tengingum að landinu þurfa að liggja fyrir lagnaleiðir og samþykki a.m.k. 2/3 landeigenda.
11.Sílalækur - Aðaldal - breyting á deiliskipulagi
Málsnúmer 2608034Vakta málsnúmer
Með greinargerð þessari er óskað eftir heimild um óverulegt frávik frá skilmálum gildandi deiliskipulag frístundarlands í landi Sílalækjar. Um er að ræða viðbyggingu við frístundahús að Lækjarhúsum, Sílalæk 1 var reist árið 2009 (landnúmer L178336, fasteingarnúmer F2234106).
Skipulagsnefnd samþykkir að veita undanþágu frá skilmálum gildandi deiliskipulags vegna viðbyggingar í samræmi við framlagðar teikningar skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Nefndin felur byggingafulltrúa að gefa út byggingaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Skipulagsnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
Skipulagsnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
12.Heiðartún Mýyvatnssveit- byggingaráform - skipulagsmál
Málsnúmer 2606059Vakta málsnúmer
Kynnt eru byggingaráform vegna uppbyggingar á Heiðartúni 1 úr Reynihlíð (L240025). Fyrirhuguðr er uppbygging á röskuðm hluta landsins. Gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss með bílskúr, gestahúss, tækjageymslu, áhaldahúsi og gróðurhúsi. Mannvirki verða lágstemmd og leitast við að haga þeim vel í landslagi og gera þau sem minnst áberandi í sveitastíl bæði hvað varðar form og efni. Um er að ræða uppbyggingu allt að 330 m2 og hámarkshæð mannvirkja um 4,5m.
Málinu frestað og skipulagsfulltrúa falið að afla frekari upplýsinga.
13.Hlíð Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2608028Vakta málsnúmer
Lagt fram ósk um byggingarleyfi fyrir útihús í Hlíð í Kinn.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna þess eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um þegar tilskilin gögn hafa borist. Skipulagsnefnd telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
14.Árteigur Stöðvarh.lóð Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2608007Vakta málsnúmer
Sótt um byggingarheimild fyrir 250 m2 stálgrindarhús á einni hæð. Geymsluhúsnæði.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin næstu nágrönnum á torfunni samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig skal óskað eftir umsögn Minjastofnunar. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
15.Breiðamýri 1 Umsókn um Byggingarheimild umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2606027Vakta málsnúmer
Sótt er um byggingarleyfi vegna 513 m2 viðbyggingar við fjós að Breiðamýri í Reykjadal.
Skipulagsnefnd samþykkir að grenndarkynna áformin næstu nágrönnum á Breiðumýri samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig skal óskað eftir umsögn. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
16.Vinir íslenskrar náttúru - skógrækt á Víðum
Málsnúmer 2606034Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur fyrirspurn frá Vinum íslenskrar náttúru er varðar skipulag og framkvæmd skógræktar á Víðum, Þingeyjarsveit.
Skipulagsnefnd bendir á að tilvitnuð málsgrein í bréfi Skipulagsstofnunar frá 20. okt. 2025 á ekki við þar sem fyrir liggur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um mál UUA2511048 Þverá í Norðurþingi þar sem segir m.a. "Fyrir liggur samkvæmt þessu að skógræktarsvæðið í landi Þverár er utan þess svæðis sem verndaráætlun Mývatns og Laxár nær til og um leið þess svæðis sem framanraktar valdheimildir Náttúruverndarstofnunar ná til. Þau almennu fyrirmæli sem sett eru með lögunum og reglugerð nr. 665/2012 og varða vatnsvernd á vatnasviði Mývatns og Laxár verða ekki lögð að jöfnu við að allt vatnasvæðið verði álitið verndarsvæði vegna vatnsverndar þannig að talið verði verndarsvæði í skilningi iii. liðar 2. tölul. 2. viðauka við lög nr. 111/2012."
Skipulagsfulltrúa falið að afhenda umbeðin gögn.
Skipulagsfulltrúa falið að afhenda umbeðin gögn.
Boðað verður til aukafundar mánudaginn 24. ágúst.
Fundi slitið - kl. 13:15.