Sandabrot - vegalagning - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2608014
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 52. fundur - 14.08.2026
Fyrir skipulagsnefnd liggur umsókn um framkvæmdarleyfi vegna vegalagninga í Sandabroti, Mývatnssveit.
Skipulagsnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdarleyfis fyrir vegagerð og lagnir innan Sandabrots í samræmi við deiliskipulag. Skipulagsnefnd leggur áherslu á vandaðan frágang. Í samræmi við viðauka 1.1 í samþykkt um stjórn og fundarsköp Þingeyjarsveitar nr. 975/2022, felur nefndin skipulagsfulltrúa að gefa framkvæmdaleyfið út í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og 13. - 16. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áður en að gefið er út leyfi fyrir tengingum að landinu þurfa að liggja fyrir lagnaleiðir og samþykki a.m.k. 2/3 landeigenda.