Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

84. fundur 13. ágúst 2026 kl. 14:00 - 14:27 í Þingey
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Nanna Marteinsdóttir
  • Anna Bragadóttir
  • Dóra Rún Kristjánsdóttir
  • Hallgrímur Páll Leifsson
  • Freydís Anna Ingvarsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Snæþór Haukur Sveinbjörnsson
  • Eyþór Kári Ingólfsson
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
  • Katrín Sigurjónsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Oddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
Oddviti bauð nýjan sveitarstjóra velkominn til starfa.
Ennfremur óskaði oddviti eftir að bæta við með afbrigðum lið nr. 6 - Fréttabréf Þingeyjarsveitar - framtíðarskipulag:
Samþykkt samhljóða.

1.Skýrsla sveitarstjóra

Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer

Skýrsla sveitarstjóra flutt munnlega og til kynningar.
Til máls tók: Nanna.

Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir því helsta í störfum sínum frá því hún kom til starfa.

2.Slökkvilið Þingeyjarsveitar - úttekt á vegum HMS

Málsnúmer 2607003Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur úttekt á Slökkviliði Þingeyjarsveitar sem gerð var af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í apríl sl. Í úttektinni koma fram ábendingar og athugasemdir sem bregðast þarf við.

Auk úttektar liggur fyrir minnisblað Harðar Sigurðssonar slökkviliðsstjóra með uppfærðri stöðu mála, þar með talin húsnæðismál, réttindamál slökkviliðsmanna, stöðu eldvarnareftirlits og æskilega forgangsröðun.

Í skýrslu koma fram athugasemdir sem varða m.a. aðstöðu í Mývatnssveit, en á síðasta kjörtímabili komu fram hugmyndir um samnýtingu sem sveitarstjórn vill vinna áfram. Sveitarstjóra er því falið að hafa frumkvæði að fundum með slökkviliðsstjóra, Björgunarsveitinni Stefáni og HSN varðandi fyrirkomulag húsnæðis. Öðrum liðum vísað til fjárhagsáætlunargerðar. Að vera með gott slökkvilið er sveitarfélaginu og íbúum þess mikils virði og sveitarstjórn þakkar öllum þeim sem gefa sig að því að sinna því.

Samþykkt samhljóða.

3.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar

Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til afgreiðslu viðauki nr. 6 við fjárhagsáætlun 2026. Upphæð viðauka er 2,5 m.kr. og er í einum lið sem snýr að millifærslu á milli málaflokka vegna viðhalds í Kjarna. Fært er á milli deildar 21210 - Sameining sveitarfélaga yfir á deild 31314 - Kjarna. Þar sem um millifærslu er að ræða hefur viðaukinn engin fjárhagsleg áhrif á handbært fé.
Sveitarstjórn samþykkir framlagðan viðauka nr. 6.

Samþykkt samhljóða.

4.Jónas Sigurðarson - erindi til sveitarstjórnar varðandi heimreiðar og Bárðardalsveg eystri sunnan Kálfborgarár

Málsnúmer 2607023Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Jónasi Sigurðarsyni, Lundarbrekku í Bárðardal, þar sem hann hvetur sveitarstjórn til að þrýsta á viðgerðir og ofaníburð á Bárðardalsveg-eystri, frá Kálfborgará suður að brú við Sandvík.

Til máls tók: Nanna.

Sveitarstjórn þakkar hvatninguna. Það er rétt að umræddur veghluti er mjög illa farinn og tæplega fær minni bílum. Oddviti hefur verið í samtali við yfirverkstjóra starfsstöðvar á Húsavík sem og ásamt skipulagsfulltrúa átt fundi með starfsfólki á skrifstofu Vegagerðarinnar á Akureyri í vor þar sem þetta hefur verið rætt og óskað eftir úrbótum. Stefnt er að því að fá Vegagerðina til frekari samtals um þetta mál sem og önnur vega- og umferðaröryggismál á næstu vikum.

Samþykkt samhljóða.

5.Samtök orkusveitarfélaga - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2608010Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur aðalfundarboð Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, föstudaginn 21. ágúst nk. kl. 13:00.

Í fundarboði er vakin athygli á því að einn fulltrúi þarf í það minnsta að mæta frá hverju sveitarfélagi.

Í fundarboðinu er einnig óskað eftir framboðum til stjórnar og varastjórnar samtakanna og skulu framboð berast eigi síðar en 13. ágúst.
Á 82. fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar var Knútur Emil Jónasson skipaður fulltrúi á aðalfund Samtaka orkusveitarfélaga og Hallgrímur Páll Leifsson til vara.
Knútur hefur verið í stjórn samtakanna og óskar eftir tilnefningu til áframhaldandi setu.

Sveitarstjórn samþykkir að tilnefna Knút Emil Jónasson til framboðs í stjórn Samtaka orkusveitarfélaga og felur sviðsstjóra fjármála og stjórnsýslusviðs að koma því á framfæri við starfsmann samtakanna.

Samþykkt samhljóða.

6.Fréttabréf Þingeyjarsveitar - framtíðarskipulag

Málsnúmer 2608025Vakta málsnúmer

Frá upphafi árs 2024 hefur Þingeyjarsveit gefið út rafrænt fréttabréf með það að markmiði að efla upplýsingamiðlun til íbúa, fyrirtækja og annarra hagsmunaaðila. Fréttabréfið hefur verið vettvangur fyrir kynningu á starfsemi sveitarfélagsins, verkefnum, þjónustu, viðburðum og öðrum málefnum sem varða samfélagið. Sveitarstjórn telur rétt að taka til umræðu framtíðarskipulag fréttabréfsins, m.a. markmið þess, tíðni útgáfu, kostnað og hlutverk þess í samskiptum sveitarfélagsins við íbúa.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að kanna leiðir til þess að útbreiðsla fréttabréfs verði með sem víðtækustum hætti og nái til allra íbúa sveitarfélagsins.

Samþykkt með sex atkvæðum Knúts, Nönnu, Snæþórs, Dóru Rúnar, Önnu og Hallgríms, Eyþór situr hjá.

7.Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar - Mál nr. S-1382026 í samráðsgátt

Málsnúmer 2608017Vakta málsnúmer

Í samráðsgátt liggur nú fyrir mál nr. S-138/2026 er varðar áformaðar breytingar á lögum með það að markmiði að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni með sameiningu og fækkun lögregluembætta.

Markmið áformanna eru að efla og styrkja lögregluna, ásamt því að ná fram umbótum og aukinni skilvirkni í löggæslu. Með sameiningu og fækkun lögregluembætta gefst tækifæri til að efla lögregluna og gera hana betur í stakk búna til að sinna lögbundnum skyldum sínum, þar sem sameinuð embætti mynda stærri liðsheildir og hagkvæmari rekstrareiningar.

Frestur til að skila inn umsögn er til 18. ágúst nk.
Til máls tók: Anna.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur farið yfir áform um breytingar á lögum um lögreglu sem kynnt eru í samráðsgátt stjórnvalda undir máli nr. S-138/2026.

Ekki er skýrt í framlögðum gögnum hvernig markmið laganna eigi að nást og sveitarstjórn lýsir áhyggjum sínum af mögulegri þjónustuskerðingu í sveitarfélaginu og hvaða áhrif það hefur að færa stjórnun frá þjónustusvæði.
Löggæsla er samfélagsþjónusta og hefur áhrif á búsetugæði og öryggi.

Sveitarstjórn leggur áherslu á að breytingar á skipulagi lögreglu tryggi áfram öfluga og aðgengilega löggæslu um allt land og taki mið af aðstæðum í dreifbýli og þeim áskorunum sem fylgja löngum vegalengdum og víðfeðmu starfssvæði.

Sveitarstjórn telur mikilvægt að við frekari mótun tillagna verði sérstaklega horft til áhrifa þeirra á þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar, viðbragðstíma og samstarf lögreglu við sveitarfélög og viðbragðsaðila á hverjum stað.


Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að koma framangreindum sjónarmiðum á framfæri í umsögn sveitarfélagsins í samráðsgátt stjórnvalda fyrir tilskilinn frest.

Samþykkt samhljóða.

8.Breytingar á reglugerðum vegna einföldunar eftirlits - mál nr. S-1132026 í samráðsgátt

Málsnúmer 2608018Vakta málsnúmer

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að breytingum á ýmsum reglugerðum á sviði hollustuhátta og mengunarvarna í kjölfar nýsamþykktra laga um einföldun eftirlits.

Alþingi samþykkti nýlega frumvarp um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits). Með frumvarpinu eru heilbrigðisnefndir lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlitsins í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar.

Frestur skila umsagnar er til 17. ágúst nk.
Til máls tók: Knútur.


Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar tekur undir bókun Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra vegna fyrirhugaðs flutnings verkefna heilbrigðiseftirlits til ríkisins frá og með 1. janúar 2027.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að skýrt verði hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga og hvaða fjármögnun fylgi þeim verkefnum. Þá verði tryggt að breytingarnar leiði ekki til lakari þjónustu, verra aðgengis íbúa og fyrirtækja að þjónustunni, lengra viðbragðs og minni þekkingar á staðbundnum aðstæðum á landsbyggðinni.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að koma á framfæri bókun sveitarstjórnar innan tilskilins frest.

Samþykkt samhljóða.


9.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - kynningarefni

Málsnúmer 2607019Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar bréf frá Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum sem stjórn óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn.

Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum eru samstarfsvettvangur sveitarfélaga sem hafa sameiginlega hagsmuni af jöfnun orkukostnaðar til húshitunar, jarðhitaleit og upplýsingamiðlun um orkumál. Samtökin vinna að sameiginlegum hagsmunum aðildarsveitarfélaga, íbúa þeirra og fyrirtækja í málum sem tengjast orkukostnaði, húshitun og stöðu byggða á köldum svæðum.

Sveitarfélagið er aðili að samtökunum og ársfundur verður haldinn 7. október 2026 kl. 11:00 í tengslum við fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.

Fylgiskjöl:

10.Samtök orkusveitarfélaga - kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi til kynningar frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa varðandi starfsemi, hlutverk og áherslur Samtaka orkusveitarfélaga og hins vegar stutta samantekt um stöðu máls varðandi afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignaskatti, sem hefur verið eitt helsta hagsmunamál samtakanna um árabil og nú stefnir í að komi til meðferðar á Alþingi á komandi vetri.



Málefni orkuvinnslu, virkjana, vindorku, skatttekna og annarra áhrifa orkunýtingar hafa bein áhrif á sveitarfélög víða um land. Stjórn samtakanna telur því mikilvægt að kjörnir fulltrúar séu vel upplýstir um starfsemi samtakanna og þau hagsmunamál sem eru efst á baugi hverju sinni.

11.Jarðböðin - umsagnarbeiðni fyrir veitingaleyfi

Málsnúmer 2607004Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar jákvæð umsögn sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs Þingeyjarsveitar varðandi umsókn Jarðbaðanna hf. um veitingaleyfi.

12.Þjóðskrá - fyrirspurn um þátttöku í prófun á rafrænni kjörskrá

Málsnúmer 2608011Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fyrirspurn frá Þjóðskrá til kjörstjórnar Þingeyjarsveitar um þátttöku í prófunum á rafrænni kjörskrá. Tekið verður við skráningum til 14. ágúst.

Kjörstjórn hefur ákveðið að Þingeyjarsveit muni taka þátt í prófunum á rafrænni kjörskrá.

13.Samtök orkusveitarfélaga - aukaaðalfundur

Málsnúmer 2604056Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð auka aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var 29. apríl s.l. og einnig breytingar á samþykktum sem voru samþykktar á sama fundi.

14.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026

Málsnúmer 2209048Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 84. fundar stjórnar SSNE frá 30. júní s.l.
Til máls tók: Knútur.
Fylgiskjöl:

15.Svæðisráð norðursvæðis - fundargerðir

Málsnúmer 2311077Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar fundargerðir 125. og 126. fundar svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.

16.Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra - fundargerðir

Málsnúmer 2307011Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 250. fundar stjórnar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 30. júlí s.l.
Til máls tók: Knútur.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 14:27.

Getum við bætt efni þessarar síðu?