Jónas Sigurðarson - erindi til sveitarstjórnar varðandi heimreiðar og Bárðardalsveg eystri sunnan Kálfborgarár
Málsnúmer 2607023
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 84. fundur - 13.08.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Jónasi Sigurðarsyni, Lundarbrekku í Bárðardal, þar sem hann hvetur sveitarstjórn til að þrýsta á viðgerðir og ofaníburð á Bárðardalsveg-eystri, frá Kálfborgará suður að brú við Sandvík.
Sveitarstjórn þakkar hvatninguna. Það er rétt að umræddur veghluti er mjög illa farinn og tæplega fær minni bílum. Oddviti hefur verið í samtali við yfirverkstjóra starfsstöðvar á Húsavík sem og ásamt skipulagsfulltrúa átt fundi með starfsfólki á skrifstofu Vegagerðarinnar á Akureyri í vor þar sem þetta hefur verið rætt og óskað eftir úrbótum. Stefnt er að því að fá Vegagerðina til frekari samtals um þetta mál sem og önnur vega- og umferðaröryggismál á næstu vikum.
Samþykkt samhljóða.