Fréttabréf Þingeyjarsveitar - framtíðarskipulag
Málsnúmer 2608025
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 84. fundur - 13.08.2026
Frá upphafi árs 2024 hefur Þingeyjarsveit gefið út rafrænt fréttabréf með það að markmiði að efla upplýsingamiðlun til íbúa, fyrirtækja og annarra hagsmunaaðila. Fréttabréfið hefur verið vettvangur fyrir kynningu á starfsemi sveitarfélagsins, verkefnum, þjónustu, viðburðum og öðrum málefnum sem varða samfélagið. Sveitarstjórn telur rétt að taka til umræðu framtíðarskipulag fréttabréfsins, m.a. markmið þess, tíðni útgáfu, kostnað og hlutverk þess í samskiptum sveitarfélagsins við íbúa.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 86. fundur - 10.09.2026
Á 84. fundi sveitarstjórnar þann 13. ágúst fól sveitarstjórn sveitarstjóra að kanna leiðir til þess að útbreiðsla fréttabréfs verði með sem víðtækustum hætti og nái til allra íbúa sveitarfélagsins.
Fyrir sveitarstjórn liggur til upplýsinga minnisblað sveitarstjóra um framkvæmd dreifingar á ágústtölublaði fréttabréfsins. Prentvænni útgáfu var dreift á kaffistofur í skólum, bókasöfnum og íþróttamiðstöðvum sveitarfélagsins. Einnig fengu notendur heimaþjónustu prentvæna útgáfu senda í pósti. Fyrirhugað er að láta eintök liggja frammi hjá félögum eldri borgara í Þingeyjarsveit þegar haust- og vetrarstarf hefst.

Til máls tóku: Anna, Dóra Rún, Eyþór Kári, Knútur, Katrín og Hallgrímur.
Sveitarstjórn þakkar fyrir framkomið minnisblað og hvetur íbúa til að koma á framfæri ábendingum um dreifingu fréttabréfsins. Markmiðið er að tryggja að fréttabréfið berist öllum þeim sem óska eftir því með sem hagkvæmustum og aðgengilegustum hætti.
Samþykkt samhljóða.

Samþykkt með sex atkvæðum Knúts, Nönnu, Snæþórs, Dóru Rúnar, Önnu og Hallgríms, Eyþór situr hjá.