Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar
Dagskrá
1.Skýrsla sveitarstjóra
Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri gerir grein fyrir því helsta í störfum sínum undanfarnar vikur.
Lagt fram til kynningar.
2.Rekstraryfirlit 2026
Málsnúmer 2605016Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar - júlí 2026.
Til máls tók: Knútur.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til afgreiðslu viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar fyrir árið 2026. Upphæð viðauka er 9.530.000 og er í þremur liðum. Liður eitt snýr að hækkun kostnaðar vegna félagsmiðstöðvar nemenda kr. 2.470.000 - deild 06-310. Liður tvö snýr að hækkun kostnaðar vegna Heilsueflandi samfélags - Janusarverkefni kr. 3.560.000 - deild 06-290. Þriðji liður er vegna viðhalds kennslustofu við Stórutjarnaskóla kr. 3.500.000 og færist á deild 31-105. Viðaukinn er fjármagnaður af handbæru fé.
Sveitarstjórn samþykkir framlagðan viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar fyrir árið 2026.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.Fjárhagsáætlun 2027 - minnisblað til sveitarstjórnar
Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar minnisblað sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs er varðar forsendur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.
Lagt fram til kynningar.
5.Þeistareykir - samráðsnefnd LV og Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2606016Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur að skipa tvo fulltrúa í samráðsnefnd Landsvirkjunar og Þingeyjarsveitar skv. samningi.
Sveitarstjórn samþykkir að Knútur Emil Jónasson og Hallgrímur Páll Leifsson sitji í samráðsnefndinni fyrir hönd Þingeyjarsveitar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.Atvinnuuppbygging í Þingeyjarsveit - skipan í stýrihóp Þingeyjarsveitar og Landsvirkjunar
Málsnúmer 2403050Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur að skipa í stýrihóp Þingeyjarsveitar og Landsvirkjunar vegna atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsveit.
Sveitarstjórn samþykkir að Knútur Emil Jónasson oddviti, Nanna Marteinsdóttir og Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri sitji í hópnum f.h. Þingeyjarsveitar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.Fréttabréf Þingeyjarsveitar - framtíðarskipulag
Málsnúmer 2608025Vakta málsnúmer
Á 84. fundi sveitarstjórnar þann 13. ágúst fól sveitarstjórn sveitarstjóra að kanna leiðir til þess að útbreiðsla fréttabréfs verði með sem víðtækustum hætti og nái til allra íbúa sveitarfélagsins.
Fyrir sveitarstjórn liggur til upplýsinga minnisblað sveitarstjóra um framkvæmd dreifingar á ágústtölublaði fréttabréfsins. Prentvænni útgáfu var dreift á kaffistofur í skólum, bókasöfnum og íþróttamiðstöðvum sveitarfélagsins. Einnig fengu notendur heimaþjónustu prentvæna útgáfu senda í pósti. Fyrirhugað er að láta eintök liggja frammi hjá félögum eldri borgara í Þingeyjarsveit þegar haust- og vetrarstarf hefst.

Til máls tóku: Anna, Dóra Rún, Eyþór Kári, Knútur, Katrín og Hallgrímur.
Sveitarstjórn þakkar fyrir framkomið minnisblað og hvetur íbúa til að koma á framfæri ábendingum um dreifingu fréttabréfsins. Markmiðið er að tryggja að fréttabréfið berist öllum þeim sem óska eftir því með sem hagkvæmustum og aðgengilegustum hætti.

8.Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - útsendingar sveitarstjórnarfunda
Málsnúmer 2609009Vakta málsnúmer
Til umræðu hefur verið hjá sveitarstjórn að hætta útsendingum frá sveitarstjórnarfundum, nema sérstök tilefni séu til. Með þessu hyggst sveitarstjórn ná fram betri umræðu á fundum, en muni þess í stað leggja meira uppúr því að inngangar mála séu lýsandi, bókanir skýrari, sem og að fylgiskjöl fylgi málum líkt og kveðið er á um í reglum um birtingu skjala.
Til máls tóku: Anna, Hallgrímur, Eyþór Kári og Knútur.
Sveitarstjórn samþykkir að hætta reglubundinni útsendingu sveitarstjórnarfunda nema sérstök tilefni séu til. Áhersla verði lögð á skýra og gagnsæja upplýsingamiðlun með lýsandi málsmeðferð, vönduðum bókunum og birtingu fylgiskjala í samræmi við reglur sveitarfélagsins um birtingu skjala.
Upplýsingum um störf og ákvarðanir sveitarstjórnar verði miðlað með markvissum hætti á öðrum miðlum sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn bendir á að allir fundir sveitarstjórnar eru opnir fundir.

9.Samband íslenskra sveitarfélaga - landsþing og landsþingsfulltrúar
Málsnúmer 2605018Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um drög að stefnumörkun Sambandsins
Lagt fram til kynningar.
10.FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ
Málsnúmer 2608029Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur minnisblað sveitarstjóra með grófu kostnaðarmati fyrir undirlag, hvað felst í mótframlagi umsækjanda og vangaveltur um staðarval FIFA Arena knattspyrnuvalla í sveitarfélaginu.
Umsóknarfrestur er til 18. september.
Umsóknarfrestur er til 18. september.
Til máls tók: Dóra Rún.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda inn umsóknir fyrir grunnskóla sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda inn umsóknir fyrir grunnskóla sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
11.Reykjahlíðarland - ýmis mál frá Þingeyjarsveit
Málsnúmer 2609004Vakta málsnúmer
Aðalfundur Landeigenda Reykjahlíðar ehf. er fyrirhugaður síðar í september.
Fyrir sveitarstjórn liggur minnisblað með málefnum frá Þingeyjarsveit til umræðu á aðalfundinum.
Fyrir sveitarstjórn liggur minnisblað með málefnum frá Þingeyjarsveit til umræðu á aðalfundinum.
Til máls tók: Knútur.
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að koma minnisblaði á framfæri við Landeigendur Reykjahlíðar ehf. og óska eftir samtali.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að koma minnisblaði á framfæri við Landeigendur Reykjahlíðar ehf. og óska eftir samtali.
Samþykkt samhljóða.
12.Landhelgisgæslan - föst starfsstöð þyrlu á Akureyri
Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer
Til umræðu í sveitarstjórn er mikilvægi fastrar starfsstöðvar þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.
Til máls tóku: Hallgrímur, Anna og Knútur.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar lýsir yfir eindregnum stuðningi við þingsályktunartillögu um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.
Þingeyjarsveit er stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli og nær frá Skjálfanda inn að Vatnajökli. Svæðið er víðfeðmt og víða strjálbýlt, sem getur skapað áskoranir fyrir viðbragðsaðila þegar alvarleg atvik verða. Föst staðsetning þyrlu á Akureyri myndi styrkja verulega öryggi íbúa, ferðamanna og þeirra sem stunda atvinnu á landi og sjó á Norður- og Austurlandi sem og á hálendinu.
Sveitarstjórn tekur undir það mat sem fram kemur í umsögn Landhelgisgæslunnar að staðsetning þyrlu á Akureyri myndi stórbæta getu stofnunarinnar til björgunar-, sjúkraflugs- og eftirlitsverkefna og stytta viðbragðstíma umtalsvert víða um land.
Sveitarstjórn skorar á ríkisstjórn og Alþingi að leggja fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Jafnframt er hvatt til þess að hafið verði án tafar tilraunaverkefni í samræmi við tillögur Landhelgisgæslunnar, með það að markmiði að koma á fastri starfsstöð í framtíðinni.
Allir landsmenn eiga að njóta sambærilegs öryggis og viðbragðsgetu, óháð búsetu.

13.Kjördæmavika - haust 2026
Málsnúmer 2609015Vakta málsnúmer
Í viku 40 er áætluð kjördæmavika og fyrirhugaður fundur fulltrúa Þingeyjarsveitar með þingmönnum Norðurlandskjördæmis eystra.
Fyrir sveitarstjórn liggja drög að málaskrá fyrir fundinn.

Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna skjal til afhendingar úr fyrirliggjandi drögum að málaskrá.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
14.Stórutjarnaskóli - Öryggi nemenda og rekstur Hótels Tjarna
Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Sigríði Árdal er varðar öryggi nemenda og rekstur Hótels Tjarna.
Til máls tóku: Dóra Rún og Knútur.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að láta framkvæma tafarlausar aðgerðir innanhúss í Stórutjarnaskóla, s.s. filmun í glugga upp í örugga hæð í samráði við skólastjóra.
Einnig felur sveitarstjórn sviðsstjóra fjölskyldusviðs að taka saman með skólastjóra stutta greinargerð um truflun af rekstri hótelsins á lóðinni sem komi til sveitarstjórnar fyrir næsta fund.
Að auki beinir sveitarstjórn því til stjórnar Tjarna hf. að vinna að varanlegri lausn á málinu.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að svara erindinu.

15.Norðurorka - erindi til eigenda vegna lántöku 2026
Málsnúmer 2609023Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur erindi til eigenda Norðurorku hf. vegna lántöku 2026
Ákvörðun um veitingu einfaldrar ábyrgðar, veðsetningu tekna til tryggingar ábyrgðinni og umboð til undirritunar lánasamnings vegna láns Norðurorku hf. í eigu sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga:
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkir hér með á fundi sínum þann 10. september 2026 að veita einfalda ábyrgð á láni Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 300.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdir í hitaveitu og fráveitu. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Norðurorku hf. til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra kt. 070268-2999, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Þingeyjarsveitar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

16.Samráðsgátt stjórnvalda - tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði
Málsnúmer 2609001Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur mál úr samráðsgátt stjórnvalda, tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði.
Til máls tók: Knútur.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
17.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026
Málsnúmer 2209048Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 85. fundar stjórnar SSNE frá 11. ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.
18.Stjórn Norðurorku - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608081Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 325. fundar stjórnar Norðurorku frá 25. ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.
19.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2026-2030
Málsnúmer 2608080Vakta málsnúmer
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið.
Oddviti óskaði eftir að bæta eftirtöldum liðum á dagskrá fundarins, með afbrigðum:
Liður nr. 14 - Stórutjarnaskóli - Öryggi nemenda og rekstur Hótels Tjarna.
Samþykkt samhljóða.
Liður nr. 15 - Norðurorka - erindi til eigenda vegna lántöku 2026
Samþykkt samhljóða.