Samráðsgátt stjórnvalda - tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði
Málsnúmer 2609001
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 86. fundur - 10.09.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur mál úr samráðsgátt stjórnvalda, tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði.
Umhverfisnefnd - 36. fundur - 14.09.2026
Fyrir liggur tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk. Tvö svæði tilheyra Þingeyjarsveit, Gjástykki og Jökulsá á Fjöllum.
Umhverfisnefnd frestar málinu til næsta fundar.
Umhverfisnefnd - 37. fundur - 15.10.2026
Fyrir liggur tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk. Tvö svæði tilheyra Þingeyjarsveit, Gjástykki og Jökulsá á Fjöllum. Málinu var frestað á síðasta fundi
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu verkefnisstjórnar að setja virkjunarhugmyndirnar í verndarflokk, Gjástykki og Jökulsá á Fjöllum. Nefndin vill benda á mikilvægi þess að taka tillit til afstöðu landeigenda.
Lagt fram til kynningar.