Fara í efni

Umhverfisnefnd

37. fundur 15. október 2026 kl. 15:30 - 18:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Arnheiður Rán Almarsdóttir
  • Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir
  • Anton Freyr Birgisson
  • Hörður Sigurðsson
  • Guðrún Sigríður Tryggvadóttir
Starfsmenn
  • Rögnvaldur Harðarson
  • Daði Lange Friðriksson
Fundargerð ritaði: Daði Lange
Dagskrá

1.Samráðsgátt stjórnvalda - tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði

Málsnúmer 2609001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk. Tvö svæði tilheyra Þingeyjarsveit, Gjástykki og Jökulsá á Fjöllum. Málinu var frestað á síðasta fundi
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu verkefnisstjórnar að setja virkjunarhugmyndirnar í verndarflokk, Gjástykki og Jökulsá á Fjöllum. Nefndin vill benda á mikilvægi þess að taka tillit til afstöðu landeigenda.

2.Vegagerðin - samráðsfundir

Málsnúmer 2609063Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur til kynningar samantekt frá samráðsfundi Þingeyjarsveitar með Vegagerðinni sem haldinn var í fjarfundi 21. september sl.
Umhverfisnefnd þakkar fyrir samantektina.

3.Úrvinnslusjóður - greiðslur til sveitarfélaga vegna hreinsunar plastvara á víðavangi 2025 og 2026

Málsnúmer 2609064Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Úrvinnslusjóði er varðar greiðslur til sveitarfélaga vegna hreinsunar plastvara á víðavangi 2025 og 2026.
Innan Þingeyjarsveitar hafa víða verið skipulögð hreinsunarátök auk einstaklingsframtaks við að tína rusl á víðavangi. Umhverfisnefnd óskar eftir því að sveitarfélagið útbúi leiðbeiningar til þeirra félagasamtaka og einstaklinga sem framkvæma þau hreinsunarátök svo hægt sé að sækja um fjárveitingar skv. reglum úrvinnslusjóðs. Umhverfisnefnd leggur til að þeim fjármunum verði svo varið til að styrkja hreinsun úrgangs á víðavangi.

4.Laugafiskur - vöktunaráætlun

Málsnúmer 2601034Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn liggur umfjöllun um úrbætur að hálfu sveitarfélgasins til umhverfisnefndar og minnisblað um vöktunaráætlun frá Náttúrustofu Norðausturlands.

Umhverfisnefnd frestar afgreiðslu málsins. Aflað verður frekari gagna og óskað eftir áliti sérfræðinga og hlutaðeigandi aðila.

5.Úrvinnslusjóður - greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar júní til desember 2026

Málsnúmer 2610007Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur bréf frá Úrvinnslusjóði um greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar á umbúðum úr plasti, pappa, málmi og gleri fyrir júlí og ágúst 2026.
Nefndin þakkar fyrir erindið.

6.Sorpútboð Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2503045Vakta málsnúmer

Minnisblað um sorpmál tekið fyrir til umræðu og áframhaldandi vinnu.
Umhverfisnefnd felur formanni nefndar ásamt starfsmönnum að klára minnisblaðið og leggja fram til sveitarstjórnar.

7.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis

Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer

Brynja Dögg kemur inn á fundinn og segir frá vinnunni sem hefur farið fram en hún situr fyrir hönd Þingeyjarsveitar í nefnd um endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Mývatn og Laxá
Umhverfisnefnd þakkar Brynju Dögg fyrir yfirferðin. Nefndin mun fara yfir fundargerðir samráðshópsins ásamt skipulagsfulltrúa á komandi umhverfisnefndarfundum.

8.Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi - erindi til náttúruverndarnefndar Þingeyinga

Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi um viðbröð varðandi nýútgefið álit HMS um vegaframkvæmdir við Norðausturveg í Kinn. Málinu var frestað á síðasta fundi.
Nefndin þakkar fyrir erindi SUNN og tekur undir mikilvægi þess að við ákvörðunartöku um framkvæmdir sem hafa áhrif á vernduð vistkerfi, fuglalíf og jarðminjar sé ávallt horft til markmiða náttúruverndarlaga nr. 60/2013 um að forðast og lágmarka rask á náttúruverðmætum.
Þar sem málið hefur þegar verið afgreitt af skipulagsnefnd og sveitarstjórn telur umhverfisnefnd ekki tilefni til frekari efnislegrar afgreiðslu að svo stöddu.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?