Fara í efni

Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi - erindi til náttúruverndarnefndar Þingeyinga

Málsnúmer 2608012

Vakta málsnúmer

Umhverfisnefnd - 36. fundur - 14.09.2026

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi um viðbröð varðandi nýútgefið álit HMS um vegaframkvæmdir við Norðausturveg í Kinn.
Umhverfisnefnd þakkar fyrir erindið en telur nauðsynlegt að kynna sér málið betur og skoða gögn. Nefndin frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Umhverfisnefnd - 37. fundur - 15.10.2026

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi um viðbröð varðandi nýútgefið álit HMS um vegaframkvæmdir við Norðausturveg í Kinn. Málinu var frestað á síðasta fundi.
Nefndin þakkar fyrir erindi SUNN og tekur undir mikilvægi þess að við ákvörðunartöku um framkvæmdir sem hafa áhrif á vernduð vistkerfi, fuglalíf og jarðminjar sé ávallt horft til markmiða náttúruverndarlaga nr. 60/2013 um að forðast og lágmarka rask á náttúruverðmætum.
Þar sem málið hefur þegar verið afgreitt af skipulagsnefnd og sveitarstjórn telur umhverfisnefnd ekki tilefni til frekari efnislegrar afgreiðslu að svo stöddu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?