Fara í efni

Umhverfisnefnd

36. fundur 14. september 2026 kl. 15:00 - 17:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Arnheiður Rán Almarsdóttir
  • Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir
  • Anton Freyr Birgisson
  • Hörður Sigurðsson
  • Guðrún Sigríður Tryggvadóttir
Starfsmenn
  • Daði Lange Friðriksson
Fundargerð ritaði: Daði Lange
Dagskrá

1.Sorpútboð Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2503045Vakta málsnúmer

Umhverfisfulltrúi kynnir stöðuna á útboðinu og minnisblað sem unnið hefur verið að.
Nefndin þakkar fyrir kynninguna. Nefndin mun vinna með minnisblaðið og móta í framhaldinu stefnu í sorpmálum. Sér vinnufundur verður um málaflokkinn.

2.Umhverfisnefnd - kosning varaformanns

Málsnúmer 2606031Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur að kjósa varaformann nefndarinnar.
Umhverfisnefnd kýs Guðrúnu Tryggvadóttur varaformann nefndarinnar.

3.SSNE - erindi vegna þátttöku í Kolku

Málsnúmer 2607007Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá SSNE vegna þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga.
Umhverfisnefnd telur að innleiðing Kolku í samvinnu með SSNE geti aðstoðað sveitarfélagið við að veita aðhald í rekstri, fjölbreyttra eininga sveitarfélagsins og uppfylla lagalega skuldbindingar vegna loftlagsstefnu þess.

4.Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi - erindi til náttúruverndarnefndar Þingeyinga

Málsnúmer 2608012Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Samtökum um náttúruvernd á Norðurlandi um viðbröð varðandi nýútgefið álit HMS um vegaframkvæmdir við Norðausturveg í Kinn.
Umhverfisnefnd þakkar fyrir erindið en telur nauðsynlegt að kynna sér málið betur og skoða gögn. Nefndin frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

5.Úrvinnslusjóður - greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar janúar til maí 2026

Málsnúmer 2609003Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Úrvinnslusjóði varðandi greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar janúar til maí 2026.
Nefndin þakkar fyrir erindið.

6.Stekkjarvík - samantekt á urðun fyrstu sex mánuði árs 2026

Málsnúmer 2609022Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggja úrgangstölur yfir urðaðan úrgang í Stekkjarvík fyrstu sex mánuði ársins 2026.
Umhverfisnefnd þakkar fyrir erindið en óskar eftir því að fá aðgreindar tölur fyrir sveitarfélögin á Norðurlandi eystra.

7.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis

Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer

Náttúruverndarstofnun vinnur að endurskoðun stjórnunar og verndaráætlunar Mývatns og Laxár. Fyrir umhverfisnefnd liggja upplýsingar um þá vinnu sem farið hefur fram.
Umhverfisnefnd þakkar fyrir upplýsingarnar og gögnin. Nefndin óskar jafnframt eftir því að fá skipulagsfulltrúa inn á næsta fund til að kynna vinnu starfshópsins betur.

8.Samráðsgátt stjórnvalda - tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði

Málsnúmer 2609001Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk. Tvö svæði tilheyra Þingeyjarsveit, Gjástykki og Jökulsá á Fjöllum.
Umhverfisnefnd frestar málinu til næsta fundar.

9.Samtök orkusveitarfélaga - kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa.
Umhverfisnefnd tekur undir mikilvægi þess að frumvarp um afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati og fasteignasköttum nái fram að ganga. Nefndin hvetur sveitarstjórn til að fylgja málinu eftir.

10.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - kynningarefni

Málsnúmer 2607019Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfisnefnd liggur fyrir bréf frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, Þingeyjarsveit er aðili að samtökunum. Ársfundur samtakanna er 8. október nk.
Umhverfisnefnd þakkar fyrir bréfið og þær upplýsingar sem þar koma fram.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 17:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?