Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - kynningarefni
Málsnúmer 2607019
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 84. fundur - 13.08.2026
Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar bréf frá Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum sem stjórn óskar eftir að verði kynnt kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn.
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum eru samstarfsvettvangur sveitarfélaga sem hafa sameiginlega hagsmuni af jöfnun orkukostnaðar til húshitunar, jarðhitaleit og upplýsingamiðlun um orkumál. Samtökin vinna að sameiginlegum hagsmunum aðildarsveitarfélaga, íbúa þeirra og fyrirtækja í málum sem tengjast orkukostnaði, húshitun og stöðu byggða á köldum svæðum.
Sveitarfélagið er aðili að samtökunum og ársfundur verður haldinn 7. október 2026 kl. 11:00 í tengslum við fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 29. fundur - 25.08.2026
Fyrir Atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur erindi frá Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
Umhverfisnefnd - 36. fundur - 14.09.2026
Fyrir umhverfisnefnd liggur fyrir bréf frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, Þingeyjarsveit er aðili að samtökunum. Ársfundur samtakanna er 8. október nk.
Umhverfisnefnd þakkar fyrir bréfið og þær upplýsingar sem þar koma fram.