Fara í efni

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit

29. fundur 25. ágúst 2026 kl. 10:00 - 12:40 í Þingey
Nefndarmenn
  • Snæþór Haukur Sveinbjörnsson
  • Nanna Marteinsdóttir
  • Karl Magnússon
  • Sæmundur Þór Sigurðsson
  • Soffía Kristín Jónsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Elísabet Sigurðardóttir
  • Jónas Þórólfsson
Starfsmenn
  • Katrín Sigurjónsdóttir
Fundargerð ritaði: Katrín Sigurjónsdóttir
Dagskrá
Arnheiður Rán Almarsdóttir, fyrrverandi verkefnastjóri hjá SSNE, sat fundinn undir 1. lið.

Brynja Dögg Ingólfsdóttir, skipulagsfulltrúi, sat fundinn undir 6. og 7. lið.

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE, og Díana Jóhannsdóttir, verkefnastjóri SSNE, sátu fundinn undir 8. lið.

1.Atvinnustefna Þingeyjarsveitar

Málsnúmer 2503064Vakta málsnúmer

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd hefur síðasta árið unnið að gerð atvinnustefnu sem byggir á heildarstefnu fyrir sveitarfélagið. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi og samþykkt að stefna að vinnufundi með haustinu.



Á fundinn mætti kl. 10, Arnheiður Rán Almarsdóttir og fór yfir stöðu á vinnunni við atvinnustefnuna en hún hefur látið af störfum sem verkefnastjóri SSNE.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd þakkar Arnheiði fyrir góða yfirferð á stöðu vinnu við gerð atvinnustefnu Þingeyjarsveitar og vel unnin störf.

Vinnudagur aðal- og varamanna vegna atvinnustefnunnar og aðgerðaráætlunarinnar verður í framhaldi af næsta fundi nefndarinnar þann 5. október nk.

2.Þingeyjarsveit - kosning í nefndir, ráð og stjórnir 2026-2030

Málsnúmer 2606010Vakta málsnúmer

Við kosningu fjallskilastjóra í júlí átti eftir að ganga frá fjallskilastjóra fyrir AusturBárðdæladeild.



Fyrir liggur að Hafrún Hlinadóttir í Svartárkoti er tilbúin til að gegna því hlutverki. Hafrún vinnur hjá RML sem gæti nýst vel vegna yfirferðar um fjallskilamál.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til við sveitarstjórn að Hafrún Hlinadóttir verði fjallskilastjóri fyrir AusturBárðdæladeild.

3.Búfjárbeit og ágangur búfjár - ábendingar til sveitarfélaga

Málsnúmer 2606052Vakta málsnúmer

Fyrir Atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur erindi frá Atvinnuvegaráðuneytinu með ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár.
Lagt fram til kynningar.

4.Fjallskil í sveitarfélaginu - réttardagar

Málsnúmer 2608055Vakta málsnúmer

Fjallskilastjórar hafa tekið ákvörðun um réttadaga í Þingeyjarsveit 2026 sem hér segir:



Árrétt í Bárðardal, 6. september kl. 9

Baldursheimsrétt í Mývatnssveit, 6. september kl. 10

Fótarrétt í Bárðardal, 31. ágúst kl. 9

Hlíðarrétt í Mývatnssveit, 6. september kl. 10

Hraunsrétt í Aðaldal, 6. september kl. 10

Lokastaðarétt í Fnjóskadal, 13. september kl. 9

Mýrarrétt í Bárðardal, 29. ágúst kl. 8

Víðikersrétt í Bárðardal, 30. ágúst, síðdegis þegar gangnamenn koma til byggða

Lagt fram til kynningar.

5.2G og 3G útfösun - staða

Málsnúmer 2601021Vakta málsnúmer

Á fundum atvinnu- og nýsköpunarnefndar og sveitarstjórnar í janúar var bókað um áhyggjur af fjarskiptasambandi í sveitarfélaginu eftir útfösun 2G og 3G kerfanna. Nú er ljóst að samband hefur versnað á nokkrum stöðum í Þingeyjarsveit. Má þar nefna við Stafn í Reykjadal, á Þegjandadal og víða um hálendið.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd ítrekar að Fjarskiptastofa tryggi símasamband í dreifðari byggðum enda um mikið öryggismál að ræða.

6.Áfangastaðaáætlun Norðurlands Uppfærsla verkefna

Málsnúmer 2509050Vakta málsnúmer

Á 28. fundi nefndarinnar þann 24. júní var farið yfir niðurstöður úr íbúasamráði í mars, lagt fram til kynningar.



Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur að taka ákvörðun um forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar Þingeyjarsveitar.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til við sveitarstjórn að bætt verði á forgangsverkefnalista Þingeyjarsveitar "Gönguleiðir við þéttbýlisstaði í Þingeyjarsveit".

7.Framkvæmdasjóður - umsóknir 2025-2027

Málsnúmer 2511010Vakta málsnúmer

Með haustinu verður opnað fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Fyrir nefndinni liggur að ræða hvaða verkefni koma til greina sem umsóknarverkefni af hálfu Þingeyjarsveitar í ár.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til við sveitarstjórn að sótt verði áfram um styrki til framkvæmda við Aldeyjarfoss og Þeistareyki til að klára þau verkefni.

Nefndin leggur áherslu á að gerðar verði vinnureglur hjá sveitarfélaginu um ferli vegna umsókna í Framkvæmdasjóðinn.

8.Hlutverk SSNE - kynning á starfseminni

Málsnúmer 2608047Vakta málsnúmer

Hlutverk SSNE er að þjónusta sveitarstjórnir og atvinnulíf á starfssvæði landshlutasamtakanna, stuðla að öflugu atvinnusvæði til framtíðar með stuðningi við nýsköpun og atvinnuþróun, innleiða og fylgja eftir sóknaráætlun og byggðaáætlun, t.d. með úthlutun fjármuna og styrkja til einstakra verkefna, svo sem fyrir er mælt í lögum nr. 69/2015 um byggðaáætlun og sóknaráætlun.



Á fundinn mættu kl. 11, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri SSNE og Díana Jóhannsdóttir, verkefnastjóri SSNE og kynntu starfsemina.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd þakkar Albertínu og Díönu fyrir góða kynningu.

Nefndin hvetur íbúa, frumkvöðla og fyrirtæki í Þingeyjarsveit til að nýta þjónustu og ráðgjafafundi SSNE, m.a. til að koma sínum hugmyndum í atvinnu og nýsköpun í vinnslu. Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja við verkefni sem falla að Sóknaráætlun Norðurlands eystra í þremur flokkum, atvinnulífs, blómlegra byggða og stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar. Opnað er fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð 16.september og lýkur umsóknarfresti þann 21. október nk.

9.Stóruvellir ehf. - fyrirtæki í sveitarfélaginu til sölu

Málsnúmer 2608063Vakta málsnúmer

Fyrirtækið Stóruvellir ehf. sem hefur verið starfrækt í Þingeyjarsveit sl. 33 ár hefur verið auglýst til sölu. Fyrirtækið framleiðir hamsatólg, tólg til steikingar og útikerti. Fyrirtækið er með sterka markaðshlutdeild og er þekkt vörumerki. Um er að ræða 2-3 heilsársstörf, með mikla möguleika og sveigjanlegan vinnutíma.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd telur mikilvægt að rekstur Stóruvalla ehf. haldist innan sveitarfélagsins og hvetur íbúa Þingeyjarsveitar, sem hafa áhuga á að setja upp rekstur eða stækka sinn rekstur, að skoða þetta tækifæri.

10.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - kynningarefni

Málsnúmer 2607019Vakta málsnúmer

Fyrir Atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur erindi frá Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

11.Samtök orkusveitarfélaga - kynningarbæklingur til kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer

Fyrir Atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur erindi frá Samtökum orkusveitarfélaga með kynningarbæklingi til kjörinna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

12.Þekkingarnet Þingeyinga - afhverju hönnunarþing?

Málsnúmer 2608050Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Þekkingarneti Þingeyinga þar sem vakin er athygli á HönnunarÞingi, DesignThing, og því uppbyggingarstarfi sem hefur farið fram í gegnum Hraðið og Þekkingarnetið og eflingu nýsköpunar í Þingeyjarsýslum.



Erindinu fylgir boðskort á Hönnunarþing 2026 sem fer fram á Stéttinni á Húsavík dagana 25.-26. september og þema hátíðarinnar í ár er ORKA. Viðburðurinn er opinn öllum. Orkuþemað spannar allt frá endurnýjanlegum orkugjöfum, tæknilausnum og auðlindum yfir í þá mannlegu orku sem knýr samfélög, fyrirtæki, sköpun og samstarf áfram. Orkan verður skoðuð út frá fjölbreyttum sjónarhornum hönnuða, frumkvöðla, listafólks, vísindafólks og atvinnulífs, með áherslu á það hvernig skapandi hugsun getur hjálpað okkur að takast á við áskoranir samtímans og móta framtíðina.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd hvetur íbúa sveitarfélagsins til að sækja Hönnunarþingið.

Fundi slitið - kl. 12:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?