Fara í efni

Þekkingarnet Þingeyinga - afhverju hönnunarþing?

Málsnúmer 2608050

Vakta málsnúmer

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 29. fundur - 25.08.2026

Tekið fyrir erindi frá Þekkingarneti Þingeyinga þar sem vakin er athygli á HönnunarÞingi, DesignThing, og því uppbyggingarstarfi sem hefur farið fram í gegnum Hraðið og Þekkingarnetið og eflingu nýsköpunar í Þingeyjarsýslum.



Erindinu fylgir boðskort á Hönnunarþing 2026 sem fer fram á Stéttinni á Húsavík dagana 25.-26. september og þema hátíðarinnar í ár er ORKA. Viðburðurinn er opinn öllum. Orkuþemað spannar allt frá endurnýjanlegum orkugjöfum, tæknilausnum og auðlindum yfir í þá mannlegu orku sem knýr samfélög, fyrirtæki, sköpun og samstarf áfram. Orkan verður skoðuð út frá fjölbreyttum sjónarhornum hönnuða, frumkvöðla, listafólks, vísindafólks og atvinnulífs, með áherslu á það hvernig skapandi hugsun getur hjálpað okkur að takast á við áskoranir samtímans og móta framtíðina.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd hvetur íbúa sveitarfélagsins til að sækja Hönnunarþingið.
Getum við bætt efni þessarar síðu?