Fara í efni

Áfangastaðaáætlun Norðurlands Uppfærsla verkefna

Málsnúmer 2509050

Vakta málsnúmer

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 22. fundur - 15.09.2025

Markaðsstofa Norðurlands óskar eftir uppfærslu verkefna á áfangastaðaáætlun.
Nefndin felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að uppfæra áfangastaðaáætlunina miðað við umræður á fundinum. Þá felur nefndin sviðsstjóra að auglýsa eftir verkefnum sem gætu átt heima í áfangastaðaáætlun.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 26. fundur - 04.02.2026

Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur til kynningar og umræðu áfangastaðaáætlun Norðurlands með gögnum frá stöðufundi 21. janúar 2026.

Í aðgerðaráætlun um framtíð ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit er fyrsti liður í uppbyggingu innviða „Áætlanagerð fyrir uppbyggingu áfangastaða“. Lagt er til að nefndin geri tillögu til sveitarstjórnar um markvissa fjölgun og uppbyggingu áfangastaða í sveitarfélaginu.

Þau verkefni sem nú eru á áfangastaðaáætlun eru:

1.
Aldeyjarfoss og Hrafnabjargafoss

2.
Göngu og hjólastígur Mývatnssveit

3.
Þeistareykir - hverasvæðið

4.
Höfði í Mýv - viðhald og endurnýjun stíga

5.
Deiliskipulag Kálfaströnd

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lýsir ánægju sinni með þá vinnu sem þegar hefur farið hefur fram og veltir fyrir sér hvort ekki séu fleiri staðir sem ættu að fá sinn sess inn í áætluninni með það að markmiði að dreifa ferðamönnum enn frekar um okkar víðfeðma sveitarfélag enda er það ríkt af áhugaverðum stöðum.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að farið verði í íbúasamráð með það að markmiði að fjölga áfangastöðum í sveitarfélaginu.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 73. fundur - 12.02.2026

Á 26. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi vinnu við áfangastaðaáætlun Norðurlands ásamt aðgerðaráætlun:

"Atvinnu- og nýsköpunarnefnd lýsir ánægju sinni með þá vinnu sem þegar hefur farið hefur fram og veltir fyrir sér hvort ekki séu fleiri staðir sem ættu að fá sinn sess inn í áætluninni með það að markmiði að dreifa ferðamönnum enn frekar um okkar víðfeðma sveitarfélag enda er það ríkt af áhugaverðum stöðum. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að farið verði í íbúasamráð með það að markmiði að fjölga áfangastöðum í sveitarfélaginu. Samþykkt samhljóða."
Til máls tók: Gerður.

Sveitarstjórn samþykkir að haft verði samráð við íbúa á heimasíðu Þingeyjarsveitar, um tillögur að nýjum áfangastöðum í sveitarfélaginu og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 75. fundur - 12.03.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar uppfærð staða aðgerðaáætlunar sem gerð var í kjölfar skýrslu um framtíð ferðaþjónustu í Þingeyjarsveit.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 28. fundur - 24.06.2026

Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggja niðurstöður úr íbúasamráði sem fór fram í mars.
Lagt fram til kynningar.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 29. fundur - 25.08.2026

Á 28. fundi nefndarinnar þann 24. júní var farið yfir niðurstöður úr íbúasamráði í mars, lagt fram til kynningar.



Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur að taka ákvörðun um forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar Þingeyjarsveitar.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til við sveitarstjórn að bætt verði á forgangsverkefnalista Þingeyjarsveitar "Gönguleiðir við þéttbýlisstaði í Þingeyjarsveit".

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 85. fundur - 27.08.2026

Á 29. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt undir lið sex - Áfangastaðaáætlun Norðurlands - uppfærsla verkefna:

"Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til við sveitarstjórn að bætt verði á forgangsverkefnalista Þingeyjarsveitar "Gönguleiðir við þéttbýlisstaði í Þingeyjarsveit"."
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra umhverfis og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar að bæta "Gönguleiðum við þéttbýlisstaði í Þingeyjarsveit" inná forgangsverkefnalista.

Samþykkt samhljóða.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 30. fundur - 05.10.2026

Í íbúasamráði í mars sl. komu eftirfarandi tillögur fram:

Bæta aðgengi og veg að Aldey og Aldeyjarfossi austan megin við Skjálfandafljót.

Bæta tengingu úr Mývatnssveit um Laxárdal til Aðaldals.

Virkja gamla vegi til göngu-, hjóla- og hlaupaferða, s.s. línuvegi og gamla vegslóða.

Byggja upp gönguleið þar sem nú er til staðar moldarslóði í Mývatnssveit sunnan Hverfjalls.



Einnig hefur borist beiðni frá Íslandshótelum um að verkefni sem tengist fegrun svæðisins umhverfis Flatskalla í landi Grímsstaða við Mývatn verði sett inn á forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar í Þingeyjarsveit. Fyrir liggur samþykki landeigenda.

Lagt fram til kynningar.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd telur að fegrun svæðisins umhverfis Flatskalla falli undir verkefnið "Gönguleiðir við þéttbýlisstaði í Þingeyjarsveit" sem er á lista forgangsverkefna Þingeyjarsveitar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?