Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd - kosning varaformanns
Málsnúmer 2606030Vakta málsnúmer
Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur að kjósa varaformann.
2.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd - erindisbréf
Málsnúmer 2208025Vakta málsnúmer
Fyrir fundinum liggur erindisbréf nefndarinnar eins og það var samþykkt í sveitarstjórn á 56. fundi hennar.
Nefndin gerir ekki athugasemd við núverandi erindisbréf atvinnu- og nýsköpunarnefndar.
3.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd - starfsáætlun
Málsnúmer 2501020Vakta málsnúmer
Fyrir fundinum liggja drög að starfsáætlun nefndarinnar fyrir árið 2026-2027.
Nefndin yfirfór drög að áætlun og samþykkir fyrirliggjandi áætlun fyrir starfsárið 2026-2027.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.Atvinnustefna Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2503064Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að atvinnustefnu til frekari vinnu.
Nefndin fór yfir þau skjöl sem fyrir liggja, með áherslu á það vinnuskjal sem unnið hefur verið í samstarfi við SSNE. Samþykkt að stefna að vinnufundi nefndarinnar í haust.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.Áfangastaðaáætlun Norðurlands Uppfærsla verkefna
Málsnúmer 2509050Vakta málsnúmer
Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggja niðurstöður úr íbúasamráði sem fór fram í mars.
Lagt fram til kynningar.
6.Snjómokstur í Þingeyjarsveit
Málsnúmer 2404007Vakta málsnúmer
Á síðasta ári voru samningar við ábúendur um snjómokstur framlengdir um eitt ár. Nú liggur fyrir að taka ákvörðun um áframhald snjómoksturs sem er á hendi ábúenda.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að núverandi kerfi snjómoksturs með ábúendafyrirkomulagi verði haldið áfram næsta ár og núverandi samningar framlengdir veturinn 2026 -2027.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.Til samráðs Drög að reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 2001998 um búfjármörk, markaskrár og takmörkun á sammerkingum búfjár
Málsnúmer 2605033Vakta málsnúmer
Fyrir atvinnu- og nýsköpunarnefnd liggur til umsagnar drög að breytingu á reglugerðu nr. 200/1998. Markmið breytinganna er að tryggja samræmi reglugerðarinnar við nýja reglugerð um merkingar og skráningar. Frestur til að skila inn umsögn er til 3. júlí nk.
Nefndin samþykkir að fela Snæþóri og Jónasi að gera athugasemdir við drögin í samræmi við umræður á fundinum og senda þær athugasemdir inn fyrir 3. júlí nk.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið - kl. 11:51.
Samþykkt samhljóða.