Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

85. fundur 27. ágúst 2026 kl. 14:00 - 15:22 í Þingey
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Nanna Marteinsdóttir
  • Anna Bragadóttir
  • Dóra Rún Kristjánsdóttir
  • Hallgrímur Páll Leifsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Snæþór Haukur Sveinbjörnsson
  • Freydís Anna Ingvarsdóttir
  • Eyþór Kári Ingólfsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
  • Katrín Sigurjónsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Oddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboð.
Oddviti lagði til að breyting yrði gerð á útsendri dagskrá fundarins þannig að liður nr. 31 - Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026 í fundarboði yrði felldur niður enda sömu gögn til afgreiðslu undir lið 29 með sama heiti.
Samþykkt samhljóða.
Einnig óskar oddviti eftir að fá að bæta á dagskrá með afbrigðum lið nr. 6 - Atvinnuefling Þingeyjarsveitar - fundargerðir 2026-2030.
Samþykkt samhljóða.

1.Skipulagsnefnd - 52

Málsnúmer 2608004FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 52. fundar skipulagsnefndar frá 19. ágúst sl. Fundargerðin er í 16 liðum. Liður níu þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og er sér liður á fundinum.
Knútur kynnti fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

2.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 32

Málsnúmer 2608003FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 32. fundar íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar frá 18. ágúst sl. Fundargerðin er í 11 liðum. Liðir 6,7, 8, 9, 10 og 11 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og eru sér liðir á fundinum.
Dóra Rún kynnti fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

3.Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 36

Málsnúmer 2608005FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 36. fundar fræðslu- og velferðarnefndar frá 20. ágúst sl. Fundargerðin er í fimm liðum. Engir liðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Freydís Anna kynnti fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

4.Skipulagsnefnd - 53

Málsnúmer 2608006FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 53. fundar skipulagsnefndar frá 24. ágúst. Fundargerðin er í sex liðum. Liður þrjú þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og er sér liður á fundinum.
Knútur kynnti fundargerðina.

Fundargerðin er staðfest.

5.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd Þingeyjarsveit - 29

Málsnúmer 2608002FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 29. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar frá 25. ágúst. Fundargerðin er í 12 liðum. Liðir 2, 5, 6, og 7 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og eru sér liðir á fundinum.
Nanna kynnti fundargerðina.

Katrín tók til máls undir lið 8 - Hlutverk SSNE - kynning á starfseminni. Einnig tók hún til máls undir lið 12 - Þekkingarnet Þingeyinga - afhverju hönnunarþing?
Knútur tók til máls undir lið 2 - Þingeyjarsveit - kosning í nefndir, ráð og stjórnir 2026-2030.

Fundargerðin er staðfest.

6.Atvinnuefling Þingeyjarsveitar ehf. - fundargerðir 2026-2030

Málsnúmer 2608077Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundargerð 66. fundar stjórnar Atvinnueflingar Þingeyjarsveitar frá 27. ágúst.
Fundargerðin er staðfest.

7.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar

Málsnúmer 2601031Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til afgreiðslu viðauki nr. 7 við fjárhagsáætlun. Upphæð viðauka er 5,1 m.kr. og er í einum lið og snýr að hækkun á málaflokki 04 - 4116 Barnaborg og er hækkunin vegna launakostnaðar. Viðaukinn er fjármagnaður af handbæru fé.

Nanna vakti máls á mögulegu vanhæfi sínu vegna þessa liðar. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða vanhæfi Nönnu.

Nanna vék af fundi kl. 14.50.

Sveitarstjórn samþykkir framlagðan viðauka nr. 7. við fjárhagsáætlun Þingeyjarsveitar fyrir árið 2026.

Samþykkt samhljóða.

Nanna kom aftur á fund kl. 14.51.

8.SSNE - ósk um tilnefningu fulltrúa í fjölmenningarráð

Málsnúmer 2608022Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá SSNE þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa í fjölmenningarráð SSNE.
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn samþykkir að tilnefna Gunnhildi Hinriksdóttur sem fulltrúa í fjölmenningarráð SSNE.

Samþykkt samhljóða.


9.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd - erindisbréf 2026-2030

Málsnúmer 2608057Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til umræðu erindisbréf atvinnu- og nýsköpunarnefndar fyrir tímabilið 2026 - 2030. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd fór yfir erindisbréfið á 28. fundi sínum þann 25. júní og bókaði að engar athugasemdir væri við bréfið.
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf atvinnu- og nýsköpunarnefndar fyrir tímabilið 2026-2030.

Samþykkt samhljóða

10.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd - erindisbréf 2026 - 2030

Málsnúmer 2608058Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til umræðu erindisbréf íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar fyrir tímabilið 2026 - 2030. Erindisbréfið var kynnt og tekið til umræðu á 32. fundi nefndarinnar sem fram fór 18. ágúst sl. og eftirfarandi bókað:

"Nefndin þakkar kynninguna og leggur til breytingar þar sem nafn nefndarinnar er samræmt í gegnum allt skjalið auk þess sem innsláttarvillur voru lagaðar og bætt við texta í áttunda lið þriðju greinar varðandi heilsueflandi samfélag."
Sveitarstjórn samþykkir fram lagt erindisbréf fyrir tímabilið 2026-2030 með áorðnum breytingum íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar.

Samþykkt samhljóða.

11.Fræðslu- og velferðarnefnd - erindisbréf 2026-2030

Málsnúmer 2608041Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til umræðu erindisbréf fræðslu- og velferðarnefndar fyrir tímabilið 2026 - 2030. Erindisbréfið var kynnt og tekið til umræðu á 36. fundi nefndarinnar sem fram fór 20. ágúst sl. og var eftirfarandi bókað:

"Nefndin fór yfir erindisbréfið og gerði smávægilegar breytingar sem ætti að tryggja betur aðilum utan skólasamfélagsins aðkomu að málefnum þeim tengdum."
Sveitarstjórn samþykkir framlagt erindisbréf fyrir tímabilið 2026-2030 með áorðnum breytingum fræðslu- og velferðarnefndar.

Samþykkt samhljóða.

12.Fundadagatal 2026 - 2027

Málsnúmer 2608059Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til staðfestingar fundadagatal sveitarstjórnar og fastanefnda sveitarfélagsins vegna funda á tímabilinu 2026-2027.



Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn samþykkir framlagt fundadagatal fyrir tímabilið 2026-2027 og felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að birta það á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

13.Þingeyjarsveit - kosning í nefndir, ráð og stjórnir 2026-2030

Málsnúmer 2606010Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að skipa í stjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga en skv. samþykktum Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, þurfa stjórnarmenn að koma úr röðum kjörinna fulltrúa.



Einnig liggur fyrir sveitarstjórn að skipa í stjórn Tjarna ehf.



Að auki liggur fyrir sveitarstjórn að skipa fjallskilastjóra fyrir AusturBárðdæladeild.

Til máls tók: Knútur.

Lögð er fram eftirfarandi tillaga um skipan í nefndir, ráð og stjórnir á kjörtímabilinu 2026 -2030:

Tilnefning í stjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga:
Aðalmaður:
Í stað Önnu Dagbjartar Andrésdóttur komi Freydís Anna Ingvarsdóttir.
Varamaður:
Í stað Arnþrúðar Dagsdóttur komi Nanna Marteinsdóttir.

Samþykkt samhljóða.

Tilnefning í stjórn Tjarna hf.
Eyþór Kári Ingólfsson
Nanna Þórhallsdóttir
Arnór Benónýsson

Samþykkt samhljóða.

Fjallskilastjóri í AusturBárðdæladeild:
Í stað Daða Lange Friðrikssonar komi Hafrún Hlinadóttir.

Samþykkt samhljóða.

14.Fulltrúar Þingeyjarsveitar í svæðisráði norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029

Málsnúmer 2606037Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur að breyta skipun í svæðisráð norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029.
Til máls tóku: Knútur og Nanna.

Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingu á skipan í svæðisráð norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði:
Aðalmenn:
Í stað Bergþóru Kristjánsdóttur og Kristins Inga Péturssonar komi Anna Bragadóttir og Knútur Emil Jónasson sem aðalmenn í svæðisráði.
Varamaður:
Í stað Antons Freys Birgissonar komi Hallgrímur Páll Leifsson.

Samþykkt samhljóða.

15.Innviðaráðuneytið - upplýsingarbeiðni um stöðu helstu lögbundinna verkefna og viðfangsefna

Málsnúmer 2608061Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Innviðaráðuneytinu með upplýsingarbeiðni um stöðu helstu lögbundinna verkefna og viðfangsefna. Frestur til að skila svörum er til og með 21. september nk.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að svara upplýsingabeiðninni fyrir tilskilinn tíma.

Samþykkt samhljóða.

16.Áfangastaðaáætlun Norðurlands Uppfærsla verkefna

Málsnúmer 2509050Vakta málsnúmer

Á 29. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt undir lið sex - Áfangastaðaáætlun Norðurlands - uppfærsla verkefna:

"Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til við sveitarstjórn að bætt verði á forgangsverkefnalista Þingeyjarsveitar "Gönguleiðir við þéttbýlisstaði í Þingeyjarsveit"."
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra umhverfis og framkvæmdasviðs Þingeyjarsveitar að bæta "Gönguleiðum við þéttbýlisstaði í Þingeyjarsveit" inná forgangsverkefnalista.

Samþykkt samhljóða.

17.Framkvæmdasjóður - umsóknir 2025-2027

Málsnúmer 2511010Vakta málsnúmer

Á 29. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar var eftirfarandi bókað undir lið 7 - Framkvæmdasjóður ferðamanna - umsóknir 2025-2027:

"Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til við sveitarstjórn að sótt verði áfram um styrki til framkvæmda við Aldeyjarfoss og Þeistareyki til að klára þau verkefni.



Nefndin leggur áherslu á að gerðar verði vinnureglur hjá sveitarfélaginu um ferli vegna umsókna í Framkvæmdasjóðinn."
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra umhverfis og framkvæmdasviðs að sækja um áframhaldandi styrki vegna umræddra verkefna. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra umsjón þess að unnin verði drög að vinnureglum um umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða til að tryggja vandaðar umsóknir.

Samþykkt samhljóða.

18.2G og 3G útfösun - staða

Málsnúmer 2601021Vakta málsnúmer

Á 29. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt undir lið fimm - 2G og 3G útfösun - staða en nefndin bókaði áður í janúar sl. áhyggjur sínar af fjarskiptasambandi í sveitarfélaginu eftir útfösun 2G og 3G kerfanna:

"Atvinnu- og nýsköpunarnefnd ítrekar að Fjarskiptastofa tryggi símasamband í dreifðari byggðum enda um mikið öryggismál að ræða."
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur á síðustu árum fjallað um og varað við þeirri þróun sem er að raungerast varðandi fjarskiptaöryggi. Sveitarstjórn mun halda áfram að hafa málið á dagskrá m.a. í samtölum sínum við þingmenn kjördæmisins á kjördæmaviku. Sveitarstjórn vill hvetja íbúa, viðbragðsaðila og hvern þann sem þarf að treysta á örugg samskipti að skila inn tilkynningu um öryggisatvik á vef Fjarskiptastofu.

Samþykkt samhljóða.

19.Engidalur 2 - ósk um nafnabreytingu

Málsnúmer 2607014Vakta málsnúmer

Á 52. fundi skipulagsnefndar var eftirfarandi bókað varðandi Engidal 2 í Bárðardal- ósk um nafnabreytingu á jörðinni Engidalur 2 í Heiðmói:

"Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við nafnabreytingu jarðarinnar í samræmi við fyrirliggjandi gögn og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt og jafnframt verði byggingarfulltrúa falið að annast málsmeðferð vegna hennar eins og lög og reglugerðir mæla fyrir um."
Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi nafnabreytingu jarðarinnar Engidalur 2 í Heiðmói, og felur byggingarfulltrúa að annast málsmeðferð vegna hennar eins jarðalög nr. 81/2004 og lög um örnefni nr. 22/2015 og reglugerð um skráningu staðfanga nr. 577/2017 kveða á um.

Samþykkt samhljóða.

20.Ungmennaráð - opnunartími íþróttahúss

Málsnúmer 2603061Vakta málsnúmer

Á 32. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi Ungmennaráð - opnun íþróttahúss en lengdur opnunartími hefur verið skv. samþykkt sveitarstjórnar í apríl sl.:

"Nefndin leggur til að þessi lengda opnun haldi áfram út veturinn. Óskað er eftir að skráningar verði nákvæmari svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun varðandi áframhald eftir veturinn. Miðað við framlögð gögn virðist nýtingin við þessa aukaopnun vera sambærileg við meðalopnunartíma sundlaugar og ræktar."
Sveitarstjórn tekur undir bókun íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar og felur sveitarstjóra og verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála að útfæra áframhaldandi lengda opnun.

Samþykkt samhljóða.

21.FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ

Málsnúmer 2608029Vakta málsnúmer

Á 32. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ en Alþjóðaknattspyrnusambandið er með verkefni í gangi til uppbyggingar mini-knattspyrnuvalla. Umsóknarfrestur er til 18. september nk.

"Nefndin er mjög áhugasöm um verkefnið og leggur til að sótt verði um Fifa Arena í Þingeyjarsveit. Jafnframt leggur ÍTM til að kostnaðargreining fari fram varðandi undirlag, aðgengi og umhverfisfrágang skv. skilmálum, hvar sé mesta þörfin fyrir slíka velli og hvar sé hagkvæmast að koma þeim fyrir."
Til máls tóku: Snæþór og Nanna.

Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá umsóknum og láta vinna nauðsynleg gögn þeim tengdum. Sveitarstjórn bendir líka á eldra mál þar sem foreldrafélag Stórutjarnaskóla óskaði eftir samvinnu við sveitarfélag varðandi svipaða aðstöðu.

Samþykkt samhljóða.

22.Hreyfidagur eldri borgara - umsókn um styrk

Málsnúmer 2608026Vakta málsnúmer

Á 32. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi dagskrárlið 9 - Hreyfidag eldri borgara - umsókn um styrk en hreyfidagur eldri borgara verður á Laugum 12. september og er hann skipulagður af Félagi eldri borgara á Húsavík og Héraðssambandi Þingeyinga:

"Nefndin er ánægð með framtak félagsins en telur sig skorta fjárheimildir til þess að styrkja verkefnið. Nefndin telur þó að verkefnið falli undir starfsreglur varðandi heilsueflandi samfélag. Nefndin gerir tillögu til sveitarstjórnar um samstarfsverkefni."
Til máls tók: Dóra Rún.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að útbúa samning um verkefnið.

Samþykkt samhljóða.

23.Ungmennaskipti - Erasmus

Málsnúmer 2608030Vakta málsnúmer

Á 32. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi lið 10 - Ungmennaskipti - Erasmus en Þingeyjarsveit býðst að taka þátt í tveimur Erasmus ungmennaverkefnum, annars vegar að senda út 2 þátttakendur til Palanga í Litháen í haust og hins vegar að taka á móti ungmennum frá Danmörku að ári í samstarfi við Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og Grýtubakkahrepp:

"Nefndin leggur til að sveitarfélagið samþykki að taka þátt í þessum verkefnum."
Um er að ræða verkefni þar sem búið var að staðfesta þátttöku Þingeyjarsveitar og því er málið lagt fram til kynningar.

24.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög

Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer

Á 32. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi dagskrárlið nr. 11 - Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög en ljúka þarf gerð þeirra samninga:

"Vegna vanhæfis fjögurra nefndarmanna af fimm vísar nefndin málinu til afgreiðslu hjá sveitarstjórn."
Dóra Rún vakti athygli á mögulegu vanhæfi sínu vegna þessa liðs. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða vanhæfi Dóru Rúnar. Hún vék af fundi kl. 15.14.

Sveitarstjórn þakkar þá vinnu sem unnin hefur verið við að taka saman og greina styrkjamál sveitarfélagsins gagnvart ungmennafélögum, íþróttafélögum og æskulýðsfélögum. Ljóst er að málið er umfangsmikið og að baki tillögum liggja ítarlegir útreikningar og greiningar.

Sveitarstjórn telur mikilvægt að gefa sér frekari tíma til að fara yfir fyrirliggjandi gögn og afla sér fullnægjandi yfirsýnar, þannig að unnt sé að taka upplýsta ákvörðun um úthlutun styrkja á sanngjarnan og málefnalegan hátt.

Málinu er frestað til næsta fundar.

Samþykkt samhljóða

Dóra kom aftur inn á fund kl. 15.15.

25.Almenningssamgöngur - samningur um styrk verkefna

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Á 32. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt undir lið 8 - almenningssamgöngur - samningur um styrk verkefna en verkefnastjóri auglýsti fyrr í sumar eftir tilboðum í fyrirhugaðan mánaðarlegan akstur í félagsmiðstöðvarstarf:

"Nefndin leggur til að gengið verði að tilboði Fjallasýnar Rúnars Óskarssonar ehf."
Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að ganga frá samningum við Fjallasýn Rúnars Óskarssonar á grundvelli tilboðs.

Samþykkt samhljóða.

26.Reykjahlíð - sala á hluta jarðar - beiðni um umsögn á grundvelli 10. gr. jarðalaga nr. 81 2004

Málsnúmer 2608039Vakta málsnúmer

Á 53. fundi skipulagsnefndar var eftirfarandi bókað og samþykkt undir lið þrjú - Reykjahlíð - sala á hluta jarðar - beiðni um umsögn á grundvelli 10. gr. jarðalaga nr. 81/2004 en atvinnuvegaráðuneyti hefur óskað eftir umsögn er varða kaup núverandi eigenda Reykjahlíðarjarðar á 50% hlut í jörðinni Reykjahlíð 3 ásamt óskiptri sameign Reykjahlíðarjarðarinnar þ.e. 8,3334% hlutdeild í Landeigendum Reykjahlíðar ehf., kt. 550402-3860, sem samsvarar sömu hlutdeild í óskiptu landi Reykjahlíðar.

"Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða ráðstöfun fasteignarinnar. Eins og fram kemur í greinargerð kaupenda eru engin áform um breytta landnýtingu. Það er mat skipulagsnefndar að fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum Þingeyjasveitar og landsskipulagsstefnu.

Enn fremur er mat skipulagsnefndar að nýting fasteignar sé í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, sem og gæði og fasteignaréttindi sem fylgja henni. Skipulagsnefnd telur að ráðstöfunin hafi engin áhrif á landbúnað og búsetu á viðkomandi svæði."

Garðar Finnsson nefndarmaður í skipulagsnefnd vék af fundi undir þessum lið.
Sveitarstjórn tekur undir bókun skipulagsnefndar um að fyrirhuguð ráðstöfun og áform um nýtingu hennar sé í samræmi við skipulagsáætlanir Þingeyjarsveitar og landsskipulagsstefnu, að nýting fasteignar sé í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar sem og gæði og fasteignaréttindi sem fylgja henni og hafi ekki áhrif á landbúnað og búsetu á viðkomandi svæði. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að koma umsögn sveitarstjórnar á framfæri við Atvinnuvegaráðuneytið.

Samþykkt samhljóða.

27.Kostur ehf.- Þverá Laxárdal - umsagnarbeiðni gistileyfis

Málsnúmer 2606022Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar jákvæð umsögn sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs varðandi umsókn Kosts ehf. um gistileyfi að Þverá í Laxárdal.
Lagt fram til kynningar.

28.Jafnréttisstofa - landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga

Málsnúmer 2608038Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundarboð á landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga sem haldinn verður fimmtudaginn 17. september á Akureyri.
Til máls tók: Knútur.

Lagt fram til kynningar.

29.Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 - fjárframlag ríkisins til sveitarfélaga

Málsnúmer 2608043Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar tölvupóstur frá Landskjörstjórn þar sem vakin er athygli á því að samkvæmt 2. mgr.139. gr. kosningalaga nr. 112/2021, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 442/2024 um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga í kosningum, greiðist kostnaður sveitarfélaga við framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst nk. úr ríkissjóði.



Samkvæmt 2. gr. 7. gr. reglugerðar um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga í kosningum, sbr. breytingarreglugerð nr. 885/2026 skal ríkissjóður greiða hverju sveitarfélagi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 1.027 kr. fyrir hvern kjósanda á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi og 764.000 kr. fyrir hvern kjörstað.
Til máls tók: Knútur.

Lagt fram til kynningar.

30.Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra - fundargerðir 2022-2026

Málsnúmer 2209048Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja til kynningar fundargerðir 84. og 85. fundar stjórnar SSNE.
Lagt fram til kynningar.

31.Farsældarráð Norðurlands eystra - fundargerðir og stofnskjöl

Málsnúmer 2512037Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð 7. fundar stjórnar Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 12.ágúst s.l.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:22.

Getum við bætt efni þessarar síðu?