Fara í efni

Fulltrúar Þingeyjarsveitar í svæðisráði norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029

Málsnúmer 2606037

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 82. fundur - 25.06.2026

Borist hefur erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem þess er farið á leit að Þingeyjarsveit tilkynni til ráðuneytisins eins fljótt og við verður komið um breytingar á tilnefndum fulltrúum sveitarfélagsins í svæðisráði norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarðs eða staðfesti ef engar breytingar hafa orðið á tilnefndum fulltrúum að loknum sveitarstjórnarkosningum. Núverandi svæðisráð er með skipunartíma til 30. janúar 2029.



Málinu er frestað til næsta fundar sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 83. fundur - 07.07.2026

Borist hefur erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem þess er farið á leit að Þingeyjarsveit tilkynni til ráðuneytisins eins fljótt og við verður komið um breytingar á tilnefndum fulltrúum sveitarfélagsins í svæðisráði norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs eða staðfesti ef engar breytingar hafa orðið á tilnefndum fulltrúum að loknum sveitarstjórnarkosningum. Núverandi svæðisráð er með skipunartíma til 30. janúar 2029.

Málinu var frestað á fundi sveitarstjórnar 25. júní sl.
Sveitarstjórn samþykkir að eftirtaldir verði skipaði sem fulltrúar Þingeyjarsveitar í svæðisráði norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði:

Aðalfulltrúar:
Bergþóra Kristjánsdóttir
Kristinn Ingi Pétursson

Varafulltrúar:
Sigurlína Tryggvadóttir
Anton Freyr Birgisson

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 85. fundur - 27.08.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur að breyta skipun í svæðisráð norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029.
Til máls tóku: Knútur og Nanna.

Sveitarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingu á skipan í svæðisráð norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði:
Aðalmenn:
Í stað Bergþóru Kristjánsdóttur og Kristins Inga Péturssonar komi Anna Bragadóttir og Knútur Emil Jónasson sem aðalmenn í svæðisráði.
Varamaður:
Í stað Antons Freys Birgissonar komi Hallgrímur Páll Leifsson.

Samþykkt samhljóða.

Getum við bætt efni þessarar síðu?