Fara í efni

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar

83. fundur 07. júlí 2026 kl. 10:00 - 10:11 í gegnum fjarfundarbúnað
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Nanna Marteinsdóttir
  • Anna Bragadóttir
  • Dóra Rún Kristjánsdóttir
  • Hallgrímur Páll Leifsson
  • Freydís Anna Ingvarsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Snorri Már Snorrason
  • Eyþór Kári Ingólfsson
Starfsmenn
  • Margrét Hólm Valsdóttir
Fundargerð ritaði: Margrét Hólm Valsdóttir
Dagskrá
Oddviti setti fund og kannaði lögmæti fundar. Engar athugasemdir bárust.

1.Þingeyjarsveit - ráðning sveitarstjóra

Málsnúmer 2607002Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur niðurstaða ráðningarferlis og drög að ráðningarsamningi vegna ráðningar Katrínar Sigurjónsdóttur í starf sveitarstjóra Þingeyjarsveitar en staðan var auglýst laus til umsóknar í byrjun júní og rann umsóknarfrestur út þann 14. júní. Mögnum ráðningarþjónusta sá um umsóknarferlið.
Til máls tók: Anna.

Sveitarstjórn samþykkir að ráða Katrínu Sigurjónsdóttur í stöðu sveitarstjóra Þingeyjarsveitar og tekur hún við starfinu 5. ágúst 2026.
Katrín er Borgfirðingur, fædd árið 1968, og hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum og stjórnun. Hún hefur áður gegnt stöðu sveitarstjóra hjá Dalvíkurbyggð og Norðurþingi auk þess að hafa verið kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar. Þá vann hún um árabil við stjórnunar- og útflutningsstörf hjá Sölku-Fiskmiðlun hf.
Katrín er stúdent frá Samvinnuskólanum og hefur lokið námi í rekstrar- og viðskiptafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Þá hefur hún lokið námi í markþjálfun frá Evolvia og er viðurkenndur stjórnarmaður frá Akademias
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar er afar ánægð með þann mikla áhuga sem sýndur var starfi sveitarstjóra og metur mikils það traust sem umsækjendur sýndu með umsóknum sínum. Sveitarstjórn er samstíga um niðurstöðu ráðningarinnar og býður Katrínu innilega velkomna til starfa.

Samþykkt samhljóða.

2.Þingeyjarsveit - kosning í nefndir, ráð og stjórnir 2026-2030

Málsnúmer 2606010Vakta málsnúmer

Lögð er fram eftirfarandi tillaga um skipan í nefndir, ráð og stjórnir á kjörtímabilinu 2026 -2030:



Tilnefning í stjórn Mývatnsstofu:

Katrín Sigurjónsdóttir





Tilnefning varamanns í stjórn SSNE:

Nanna Marteinsdóttir



Fjallskilastjórar:

Halldór Árnason Mývetningadeild.

Erlingur Ingvarsson VesturBárðdæladeild

Daði Lange Friðriksson Austur-Bárðdæladeild

Ketill Tryggvason Fnjóskdæladeild

Ólafur Ingólfsson Kinnardeild

Hermann Aðalsteinsson Reykdæladeild

Böðvar Baldursson Aðaldæladeild.





Til máls tók: Knútur.

Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu.

Samþykkt samhljóða.

3.Endurskoðun fjallskilasamþykktar fyrir svæðið að mörkum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps

Málsnúmer 2607006Vakta málsnúmer

Í gildi er fjallskilasamþykkt fyrir svæðið austan Vaðlaheiðar að mörkum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps sem tók gildi 12. maí 2023. Þó samþykktin sé ekki gömul þá eru frá samþykkt hennar orðnar breytingar varðandi nýtingu og umhverfi fjallskila sem gera að verkum að sveitarstjórn vill kalla til samráðs og yfirfara framkvæmd og skipulag fjallskilamála með hagaðilum. Einnig þarf að uppfæra samþykktina með tilliti til þess að Héraðsnefnd Þingeyinga er ekki lengur starfandi en samþykktin var unnin í umboði hennar.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar leggur til, að þau sveitarfélög sem standa að samþykktinni, skipi í nefnd sem hefur það að markmiði að endurskoða samþykktina með tilliti til breytts stjórnskipulags.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda erindi á aðildarsveitarfélög svo að vinna við endurskoðun geti hafist.

Samþykkt samhljóða.

4.Fulltrúar Þingeyjarsveitar í svæðisráði vestursvæði í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029

Málsnúmer 2606036Vakta málsnúmer

Borist hefur erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem þess er farið á leit með að Þingeyjarsveit tilkynni til ráðuneytisins eins fljótt og við verður komið um breytingar á tilnefndum fulltrúum sveitarfélagsins í svæðisráði vestursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarðs eða staðfesti ef engar breytingar hafa orðið á tilnefndum fulltrúum að loknum sveitarstjórnarkosningum. Núverandi svæðisráð er með skipunartíma til 30. janúar 2029.

Málinu var frestað á fundi sveitarstjórnar 25. júní sl.
Sveitarstjórn samþykkir að eftirtaldir verði skipaðir sem fulltrúar Þingeyjarsveitar í svæðisráði vestursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði:
Aðalfulltrúi:
Þorlákur Páll Jónsson
Varafulltrúi:
Anna Bragadóttir

Samþykkt samhljóða.

5.Fulltrúar Þingeyjarsveitar í svæðisráði norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði 2025-2029

Málsnúmer 2606037Vakta málsnúmer

Borist hefur erindi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem þess er farið á leit að Þingeyjarsveit tilkynni til ráðuneytisins eins fljótt og við verður komið um breytingar á tilnefndum fulltrúum sveitarfélagsins í svæðisráði norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs eða staðfesti ef engar breytingar hafa orðið á tilnefndum fulltrúum að loknum sveitarstjórnarkosningum. Núverandi svæðisráð er með skipunartíma til 30. janúar 2029.

Málinu var frestað á fundi sveitarstjórnar 25. júní sl.
Sveitarstjórn samþykkir að eftirtaldir verði skipaði sem fulltrúar Þingeyjarsveitar í svæðisráði norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði:

Aðalfulltrúar:
Bergþóra Kristjánsdóttir
Kristinn Ingi Pétursson

Varafulltrúar:
Sigurlína Tryggvadóttir
Anton Freyr Birgisson

Samþykkt samhljóða.

6.Þingeyjarsveit - skipulagsfulltrúi

Málsnúmer 2606062Vakta málsnúmer

Rögnvaldur Harðarson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og byggingafulltrúi Þingeyjarsveitar var skipaður tímabundið skipulagsfulltrúi Þingeyjarsveitar til og með 15. ágúst 2026 skv. úrskurði frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Þar sem Brynja Dögg Ingólfsdóttir hefur nú verið ráðin skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins felur sveitarstjórn sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að sækja um undanþágu til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins fyrir Brynju Dögg sem skipulagsfulltrúa Þingeyjarsveitar til næsta árs eða þar til Brynja hefur lokið námi sem uppfyllir hæfisskilyrði til að gegna starfi skipulagsfulltrúa.
Sveitarstjórn samþykkir að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að sækja um tímabundna undanþágu til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins fyrir Brynju Dögg Ingólfsdóttur sem skipulagsfulltrúa Þingeyjarsveitar.

Samþykkt samhljóða.

7.Dvalarheimili aldraðra - aðalfundur 2026

Málsnúmer 2606006Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur til kynningar fundargerð aðalfundar Dvalarheimilis aldraðra sf. frá 24. júní s.l.

Fundi slitið - kl. 10:11.

Getum við bætt efni þessarar síðu?