Fara í efni

Þingeyjarsveit - ráðning sveitarstjóra

Málsnúmer 2607002

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 83. fundur - 07.07.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur niðurstaða ráðningarferlis og drög að ráðningarsamningi vegna ráðningar Katrínar Sigurjónsdóttur í starf sveitarstjóra Þingeyjarsveitar en staðan var auglýst laus til umsóknar í byrjun júní og rann umsóknarfrestur út þann 14. júní. Mögnum ráðningarþjónusta sá um umsóknarferlið.
Til máls tók: Anna.

Sveitarstjórn samþykkir að ráða Katrínu Sigurjónsdóttur í stöðu sveitarstjóra Þingeyjarsveitar og tekur hún við starfinu 5. ágúst 2026.
Katrín er Borgfirðingur, fædd árið 1968, og hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum og stjórnun. Hún hefur áður gegnt stöðu sveitarstjóra hjá Dalvíkurbyggð og Norðurþingi auk þess að hafa verið kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar. Þá vann hún um árabil við stjórnunar- og útflutningsstörf hjá Sölku-Fiskmiðlun hf.
Katrín er stúdent frá Samvinnuskólanum og hefur lokið námi í rekstrar- og viðskiptafræðum frá Háskólanum á Akureyri. Þá hefur hún lokið námi í markþjálfun frá Evolvia og er viðurkenndur stjórnarmaður frá Akademias
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar er afar ánægð með þann mikla áhuga sem sýndur var starfi sveitarstjóra og metur mikils það traust sem umsækjendur sýndu með umsóknum sínum. Sveitarstjórn er samstíga um niðurstöðu ráðningarinnar og býður Katrínu innilega velkomna til starfa.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?