Reykjahlíð - sala á hluta jarðar - beiðni um umsögn á grundvelli 10. gr. jarðalaga nr. 81 2004
Málsnúmer 2608039
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 53. fundur - 24.08.2026
Fyrir skipulagsnefnd liggur beiðni um umsögn frá atvinnuvegaráðuneyti er varðar kaup núverandi eigenda Reykjahlíðar á 50% hlutí jörðinni Reykjahlíð 3 (landnúmer L153594 og fastanúmer F216-3144 ásamt óskiptri sameign Reykjahliðarjarðarinnar (þ.e. 8,3334% hlutdeild í Landeigendum Reykjahlíðar ehf., kt. 550402-3860, sem samsvarar sömu hlutdeild í óskiptu landi Reykjahlíðar). Með vísan til 8. mgr. 10. gr. a jarðalaga er hér með óskað eftir umsögn sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar vegna ofangreinds. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum sveitarfélagsins um það hvort fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum Þingeyjasveitar, landsskipulagsstefnu eða annarri stefnu um landnýtingu eftir því sem við á. Enn fremur hvort áformuð nýting fasteignar sé að mati sveitarfélagsins í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, sem og gæði og fasteignaréttindi sem fylgja henni og hvort ráðstöfunin styrki landbúnað og búsetu á viðkomandi svæði.
Í greinargerð kaupenda kemur fram að engin áform eru um að breyta landnotkun eða rýra gæði lands eða náttúruauðlinda. Hlunnindi, jarðhiti, vatnsréttindi ofl. verða þannig áfram nýtt með sjálfbærum hætti af landeigendum og sameigendum hins óskipta lands Reykjahlíðar.
Í greinargerð kaupenda kemur fram að engin áform eru um að breyta landnotkun eða rýra gæði lands eða náttúruauðlinda. Hlunnindi, jarðhiti, vatnsréttindi ofl. verða þannig áfram nýtt með sjálfbærum hætti af landeigendum og sameigendum hins óskipta lands Reykjahlíðar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða ráðstöfun fasteignarinnar. Eins og fram kemur í greinargerð kaupenda eru engin áform um breytta landnýtingu. Það er mat skipulagsnefndar að fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum Þingeyjasveitar og landsskipulagsstefnu.
Ennfremur er mat skipulagsnefndar að nýting fasteignar sé í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, sem og gæði og fasteignaréttindi sem fylgja henni. Skipulagsnefnd telur að ráðstöfunin hafi engin áhrif á landbúnað og búsetu á viðkomandi svæði.