Skipulagsnefnd
Dagskrá
Hallgrímur, Garðar og Líney sátu fundinn í fjarfundarbúnaði.
1.Skipulagsnefnd - erindisbréf
Málsnúmer 2608049Vakta málsnúmer
Lagt fram erindisbréf nenfdarinnar til kynningar og umræðu.
Lagt fram til kynningar
2.Stóru Laugar - breytingar og framtíðarsýn
Málsnúmer 2608042Vakta málsnúmer
Aurora farm hotel fyrirhugar breytingar á starfsemi á Stóru Laugum. Lagðar fram tillögur að breytingum.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytta notkun núverandi húsa að því tilskyldu að fjölgun gesta sé innan heimilda í aðalskipulagi. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna áformin fyrir Lækjarási og Laugagerði. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Breyting á aðkomu, ný hús og golfvöllur kalla á gerð deiliskipulags í samræmi við stefnu um gerð deiliskipulags í kafla 3.6. í Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044.
● Áformin hafa áhrif út fyrir nánustu grennd, t.d. vegna ásýndar, umferðar, mengunar eða annars álags. ● Ástæða er til að ætla að aðilar utan grenndarinnar hafi sjónarmið, upplýsingar eða hugmyndir sem gætu gagnast við mótun hugmynda eða málsmeðferð, t.d. fagstofnanir á sviði náttúru- og minjaverndar eða vistkerfa. ● Áformin víkja verulega frá því sem búast mætti við að myndi gerast á umræddum stað, að eðli eða umfangi, eða eru í ósamræmi við það sem fyrir er. Vegna deiliskipulags þarf að skrá minjar á svæðinu í samræmi við minjalög og vegna breytinga á vegtengingum þarf samráð við Vegagerðina.
Vegna áforma um golfvöll þarf að senda inn ósk um breytingu á aðalskipulagi úr landbúnaðarlandi í ÍÞ svæði. Í kafla 8.1.13 um Landbúnaðarsvæði segir m.a.: "Leitast skal við að raska ekki náttúrulegu landslagi að óþörfu og uppbyggingu beint á þegar röskuð svæði." Við breytingu á aðalskipulagi þarf að leggja fram rök og álit ráðunautar vegna lands sem leyst er úr landbúnaðarnotum í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004.

3.Reykjahlíð - sala á hluta jarðar - beiðni um umsögn á grundvelli 10. gr. jarðalaga nr. 81 2004
Málsnúmer 2608039Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur beiðni um umsögn frá atvinnuvegaráðuneyti er varðar kaup núverandi eigenda Reykjahlíðar á 50% hlutí jörðinni Reykjahlíð 3 (landnúmer L153594 og fastanúmer F216-3144 ásamt óskiptri sameign Reykjahliðarjarðarinnar (þ.e. 8,3334% hlutdeild í Landeigendum Reykjahlíðar ehf., kt. 550402-3860, sem samsvarar sömu hlutdeild í óskiptu landi Reykjahlíðar). Með vísan til 8. mgr. 10. gr. a jarðalaga er hér með óskað eftir umsögn sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar vegna ofangreinds. Sérstaklega er óskað eftir sjónarmiðum sveitarfélagsins um það hvort fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum Þingeyjasveitar, landsskipulagsstefnu eða annarri stefnu um landnýtingu eftir því sem við á. Enn fremur hvort áformuð nýting fasteignar sé að mati sveitarfélagsins í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, sem og gæði og fasteignaréttindi sem fylgja henni og hvort ráðstöfunin styrki landbúnað og búsetu á viðkomandi svæði.
Í greinargerð kaupenda kemur fram að engin áform eru um að breyta landnotkun eða rýra gæði lands eða náttúruauðlinda. Hlunnindi, jarðhiti, vatnsréttindi ofl. verða þannig áfram nýtt með sjálfbærum hætti af landeigendum og sameigendum hins óskipta lands Reykjahlíðar.

Garðar Finnsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða ráðstöfun fasteignarinnar. Eins og fram kemur í greinargerð kaupenda eru engin áform um breytta landnýtingu. Það er mat skipulagsnefndar að fyrirhuguð ráðstöfun fasteignar og áformuð nýting hennar samrýmist skipulagsáætlunum Þingeyjasveitar og landsskipulagsstefnu.
Ennfremur er mat skipulagsnefndar að nýting fasteignar sé í samræmi við stærð, staðsetningu og ræktunarskilyrði hennar, sem og gæði og fasteignaréttindi sem fylgja henni. Skipulagsnefnd telur að ráðstöfunin hafi engin áhrif á landbúnað og búsetu á viðkomandi svæði.

4.Sólvangur 3 - nýr vegur á vegaskrá
Málsnúmer 2608045Vakta málsnúmer
Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Vegagerðinni um Sólvang 3, nýjan veg á vegaskrá.
Skipulagsnefnd fagnar því að verið sé að bæta vegum á vegaskrá í sveitarfélaginu.
5.Mývatn og Laxá - endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar verndarsvæðis
Málsnúmer 2512010Vakta málsnúmer
Haldinn var fundur vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Mývatns og Laxár í starfshópi þann 18. ágúst sl. Öll gögn vegna vinnunnar má nálgast á heimasíðu Náttúruverndarstofnunar https://www.nattura.is/myvatn-og-laxa. Gögn frá fundunum og samþykkt verkefnalýsing lögð fram til kynningar og umræðu.
Lagt fram til kynningar.
6.Aldeyjarfoss - deiliskipulag
Málsnúmer 2406041Vakta málsnúmer
Vegna tillagna um breytinga á salernum var deiliskipulag fyrir Aldeyjarfoss ekki sett í auglýsingu. Lagt er til að salernin verði sett á Eyri sunnan við brúna Aldeyjarfossmegin. Þar er hægt að ná í vatn og rafmagn og vera með almennileg vatnsklósett sem hægt er að nota allt árið.
Skipulagsfulltrúa falið að taka saman þá tvo kosti sem liggja fyrir á svæðinu m.t.t. vatnsöflunar, staðsetningar rotþróa og aðgengi að rafmagni.
Fundi slitið - kl. 16:24.