Fara í efni

Stóru Laugar - breytingar og framtíðarsýn

Málsnúmer 2608042

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 53. fundur - 24.08.2026

Aurora farm hotel fyrirhugar breytingar á starfsemi á Stóru Laugum. Lagðar fram tillögur að breytingum.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við breytta notkun núverandi húsa að því tilskyldu að fjölgun gesta sé innan heimilda í aðalskipulagi. Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna áformin fyrir Lækjarási og Laugagerði. Byggingafulltrúa er falið að gefa út byggingaleyfi ef engar athugasemdir berast við grenndarkynningu, að fenginni jákvæðri umsögn umsagnaraðila og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Breyting á aðkomu, ný hús og golfvöllur kalla á gerð deiliskipulags í samræmi við stefnu um gerð deiliskipulags í kafla 3.6. í Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044.
● Áformin hafa áhrif út fyrir nánustu grennd, t.d. vegna ásýndar, umferðar, mengunar eða annars álags. ● Ástæða er til að ætla að aðilar utan grenndarinnar hafi sjónarmið, upplýsingar eða hugmyndir sem gætu gagnast við mótun hugmynda eða málsmeðferð, t.d. fagstofnanir á sviði náttúru- og minjaverndar eða vistkerfa. ● Áformin víkja verulega frá því sem búast mætti við að myndi gerast á umræddum stað, að eðli eða umfangi, eða eru í ósamræmi við það sem fyrir er. Vegna deiliskipulags þarf að skrá minjar á svæðinu í samræmi við minjalög og vegna breytinga á vegtengingum þarf samráð við Vegagerðina.
Vegna áforma um golfvöll þarf að senda inn ósk um breytingu á aðalskipulagi úr landbúnaðarlandi í ÍÞ svæði. Í kafla 8.1.13 um Landbúnaðarsvæði segir m.a.: "Leitast skal við að raska ekki náttúrulegu landslagi að óþörfu og uppbyggingu beint á þegar röskuð svæði." Við breytingu á aðalskipulagi þarf að leggja fram rök og álit ráðunautar vegna lands sem leyst er úr landbúnaðarnotum í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Getum við bætt efni þessarar síðu?