Fara í efni

Ungmennaskipti - Erasmus+

Málsnúmer 2608030

Vakta málsnúmer

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 32. fundur - 18.08.2026

Þingeyjarsveit býðst að taka þátt í Erasmus+ ungmennaverkefnum. Um tvenn verkefni ræðir, annars vegar að senda út 2 þátttakendur til Palanga í Litháen í haust og hins vegar að taka á móti ungmennum frá Danmörku að ári í samstarfi við Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og Grýtubakkahrepp
Nefndin leggur til að sveitarfélagið samþykki að taka þátt í þessum verkefnum.

Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar - 85. fundur - 27.08.2026

Á 32. fundi íþrótta-, tómstunda- og menningarnefndar var eftirfarandi bókað varðandi lið 10 - Ungmennaskipti - Erasmus en Þingeyjarsveit býðst að taka þátt í tveimur Erasmus ungmennaverkefnum, annars vegar að senda út 2 þátttakendur til Palanga í Litháen í haust og hins vegar að taka á móti ungmennum frá Danmörku að ári í samstarfi við Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og Grýtubakkahrepp:

"Nefndin leggur til að sveitarfélagið samþykki að taka þátt í þessum verkefnum."
Um er að ræða verkefni þar sem búið var að staðfesta þátttöku Þingeyjarsveitar og því er málið lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?