Fara í efni

Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit

32. fundur 18. ágúst 2026 kl. 14:00 - 16:48 í Þingey
Nefndarmenn
  • Dóra Rún Kristjánsdóttir
  • Anna Dagbjört Andrésdóttir
  • Sigurlína Tryggvadóttir
  • Jón Sverrir Sigtryggsson
  • Hermann Aðalsteinsson
Starfsmenn
  • Gunnhildur Hinriksdóttir
Fundargerð ritaði: Gunnhildur Hinriksdóttir
Dagskrá

1.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd - kosning varaformanns

Málsnúmer 2606032Vakta málsnúmer

Fyrir íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd liggur að kjósa varaformann nefndarinnar.
Sigurlína Tryggvadóttir er samþykkt sem varaformaður nefndarinnar

2.Íþrótta- og tómstundanefnd - erindisbréf

Málsnúmer 2208027Vakta málsnúmer

Erindisbréf ÍTM-nefndar lagt fram og kynnt nefndarfólki
Nefndin þakkar kynninguna og leggur til breytingar þar sem nafn nefndarinnar er samræmt í gegnum allt skjalið auk þess sem innsláttarvillur voru lagaðar og bætt við texta í áttunda lið þriðju greinar varðandi heilsueflandi samfélag.

3.Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd - Önnur mál

Málsnúmer 2606041Vakta málsnúmer

Fundardagatal vetrarins lagt fram
Nefndin leggur til að í fundadagatali verði vísað til nefndarinnar sem ÍTM

4.Ungmennaráð Þingeyjarsveitar - tilnefningar 2026

Málsnúmer 2608015Vakta málsnúmer

Óskað er eftir tilnefningu frá ÍTM-nefnd í Ungmennaráð Þingeyjarsveitar skv. erindisbréfi Ungmennaráðs
Nefndin tilnefnir Kristján Brynjólfsson sem aðalmann í Ungmennaráð og til vara Amelíu Ásdísi Kozaczek.

5.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2608032Vakta málsnúmer

Gjaldskrár íþróttamiðstöðva og félagsheimila Þingeyjarsveitar lagðar fram til fyrstu endurskoðunar
Nefndin telur að samræma þurfi gjaldskrár og upplýsingar íþróttamiðstöðvanna í Reykjahlíð og á Laugum og leggjum til að verkefnastjóri leggi drög að uppfærðum texta fyrir næsta fund.
Nefndin óskar eftir upplýsingum um hvert tekjur ræktarinnar á Laugum renni og hver ástæðan er fyrir muninum á verðskránni.
Nefndin óskar einnig eftir upplýsingum um aðstöðuna fyrir sund og líkamsrækt á Stórutjörnum m.t.t. að sú aðstaða gæti verið betur nýtt.
Nefndin vill skoða möguleika þess að sameiginlegt ræktarkort gildi á alla þessa staði.
Nefndin leggur til að afsláttur af húsaleigu þorrablóta verði 100% gegn því að aldurstakmark sé miðað við 18. aldursárið og sala vínveitinga ekki leyfð og sambærilegur styrkur verði veittur vegna þorrablóts í Kiðagili.

6.Ungmennaráð - opnunartími íþróttahúss

Málsnúmer 2603061Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn samþykkti lengda opnun sundlaugar og íþróttahúss á Laugum í apríl 2026 og út skólaárið sem skyldi endurskoðuð fyrir nýtt skólaár m.t.t. nýtingar.
Nefndin leggur til að þessi lengda opnun haldi áfram út veturinn. Óskað er eftir að skráningar verði nákvæmari svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun varðandi áframhald eftir veturinn. Miðað við framlögð gögn virðist nýtingin við þessa aukaopnun vera sambærileg við meðalopnunartíma sundlaugar og ræktar.

7.FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ

Málsnúmer 2608029Vakta málsnúmer

Alþjóðaknattspyrnusambandið er með verkefni í gangi til uppbyggingar mini-knattspyrnuvalla. Hægt er að sækja um styrk til verkefnisins til 18. september n.k.
Nefndin er mjög áhugasöm um verkefnið og leggur til að sótt verði um Fifa Arena í Þingeyjarsveit. Jafnframt leggur ÍTM til að kostnaðargreining fari fram varðandi undirlag, aðgengi og umhverfisfrágang skv. skilmálum, hvar sé mesta þörfin fyrir slíka velli og hvar sé hagkvæmast að koma þeim fyrir.

8.Almenningssamgöngur - samningur um styrk verkefna

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri auglýsti fyrr í sumar eftir tilboðum í fyrirhugaðan mánaðarlegan akstur í félagsmiðstöðvastarf.
Nefndin leggur til að gengið verði að tilboði Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf.

9.Hreyfidagur eldri borgara - umsókn um styrk

Málsnúmer 2608026Vakta málsnúmer

Styrkbeiðni vegna hreyfidags eldriborgara sem verður á Laugum 12. september og er skipulagður af Félagi eldriborgara á Húsavík og Héraðssambandi Þingeyinga
Nefndin er ánægð með framtak félagsins en telur sig skorta fjárheimildir til þess að styrkja verkefnið. Nefndin telur þó að verkefnið falli undir starfsreglur varðandi heilsueflandi samfélag. Nefndin gerir tillögu til sveitarstjórnar um samstarfsverkefni.

10.Ungmennaskipti - Erasmus+

Málsnúmer 2608030Vakta málsnúmer

Þingeyjarsveit býðst að taka þátt í Erasmus+ ungmennaverkefnum. Um tvenn verkefni ræðir, annars vegar að senda út 2 þátttakendur til Palanga í Litháen í haust og hins vegar að taka á móti ungmennum frá Danmörku að ári í samstarfi við Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og Grýtubakkahrepp
Nefndin leggur til að sveitarfélagið samþykki að taka þátt í þessum verkefnum.

11.Þingeyjarsveit - samningar við ungmenna-, íþrótta- og æskulýðsfélög

Málsnúmer 2209058Vakta málsnúmer

Ljúka þarf gerð þeirra samninga við íþrótta- og ungmennafélög í Þingeyjarsveit sem drög hafa verið lögð að.
Vegna vanhæfis fjögurra nefndarmanna af fimm vísar nefndin málinu til afgreiðslu hjá sveitarstjórn.

Fundi slitið - kl. 16:48.

Getum við bætt efni þessarar síðu?