Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2608032
Vakta málsnúmerÍþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 32. fundur - 18.08.2026
Gjaldskrár íþróttamiðstöðva og félagsheimila Þingeyjarsveitar lagðar fram til fyrstu endurskoðunar
Skipulagsnefnd - 54. fundur - 16.09.2026
Unnið er að endurskoðun gjaldskráa Umhverfis- og framkvæmdasviðs.
Máli frestað. Boðað verður til aukafundar til að fjalla um gjaldskrár þann 30. sept næstkomandi kl:09:00.
Nefndin óskar eftir upplýsingum um hvert tekjur ræktarinnar á Laugum renni og hver ástæðan er fyrir muninum á verðskránni.
Nefndin óskar einnig eftir upplýsingum um aðstöðuna fyrir sund og líkamsrækt á Stórutjörnum m.t.t. að sú aðstaða gæti verið betur nýtt.
Nefndin vill skoða möguleika þess að sameiginlegt ræktarkort gildi á alla þessa staði.
Nefndin leggur til að afsláttur af húsaleigu þorrablóta verði 100% gegn því að aldurstakmark sé miðað við 18. aldursárið og sala vínveitinga ekki leyfð og sambærilegur styrkur verði veittur vegna þorrablóts í Kiðagili.