Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Starfsáætlanir leik- og grunnskóla Þingeyjarsveitar
Málsnúmer 2610014Vakta málsnúmer
Lagðar fram til kynningar eru starfsáætlanir leik- og grunnskóla Þingeyjarsveitar.
Nefndin þakkar skólastjórnendum fyrir kjarngóðar starfsáætlanir og óskar þeim góðs gengis í starfi vetrarins.
2.Leikskólar Þingeyjarsveitar - starfsmannavelta og mannekla
Málsnúmer 2610023Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggur minnisblað frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs vegna stöðugrar manneklu og starfsmannaveltu í leikskólum sveitarfélagsins. Mannekla í leikskólum Þingeyjarsveitar er ekki tímabundið vandamál heldur áskorun sem hefur verið viðvarandi um árabil.
Nefndin lýsir áhyggjum sínum af mönnunarvanda í leikskólum sveitarfélagsins og telur að grípa þurfi til einhverra aðgerða, annars vegar til að halda í starfsfólk sem fyrir er og hins vegar til að laða nýtt starfsfólk til starfa. Nefndin leggur til að Kópavogsmódelið verði skoðað og nefndin kynni sér það hvort raunhæfur möguleiki sé að taka það upp í Þingeyjarsveit. Nefndin felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að afla upplýsinga um framkvæmd, reynslu og upplifun af módelinu meðal starfsfólks og foreldra í Kópavogi.
Aðrir möguleikar sem nefndin ræddi:
- Hámarksvistunartími 36/38 klst.
- Tryggt húsnæði
- Hækkun launa umfram kjarasamning eftir ákveðinn tíma í starfi
Málið tekið upp á næsta fundi.
Aðrir möguleikar sem nefndin ræddi:
- Hámarksvistunartími 36/38 klst.
- Tryggt húsnæði
- Hækkun launa umfram kjarasamning eftir ákveðinn tíma í starfi
Málið tekið upp á næsta fundi.
3.Skólastarf 2026-2027 - Yfirferð skólastjóra
Málsnúmer 2609006Vakta málsnúmer
Skólastjórnendur leik-, grunn- og tónlistardeilda Þingeyjarskóla fara yfir starfsemi deildanna það sem af er hausti.
Nefndin þakkar þeim Nönnu og Jóhanni Rúnari kærlega fyrir greinargóða yfirferð á starfinu í Þingeyjarskóla.
4.Farsæld barna - áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða á Norðurlandi eystra 2027-2030
Málsnúmer 2609033Vakta málsnúmer
Á 87. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi lið 10 á dagskrá - Farsæld barna - áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða á Norðurlandi eystra 2027-2030.
"Sveitarstjórn samþykkir svæðisbundna áætlun um forgangsröðun aðgerða vegna farsældar barna á Norðurlandi eystra 2027-2030. Samkvæmt áætluninni bera sveitarfélög á Norðurlandi eystra ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgd aðgerða á sínu svæði, aðlögun þeirra að staðbundnum þörfum og að tryggja samhæfingu og samstarf milli þjónustuveitenda. Sveitarstjórn vísar áætluninni til umfjöllunar í fræðslu- og velferðarnefnd og íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd. Jafnframt er áætluninni vísað til úrvinnslu hjá sviðsstjóra fjölskyldusviðs og verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála. Samþykkt samhljóða."
"Sveitarstjórn samþykkir svæðisbundna áætlun um forgangsröðun aðgerða vegna farsældar barna á Norðurlandi eystra 2027-2030. Samkvæmt áætluninni bera sveitarfélög á Norðurlandi eystra ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgd aðgerða á sínu svæði, aðlögun þeirra að staðbundnum þörfum og að tryggja samhæfingu og samstarf milli þjónustuveitenda. Sveitarstjórn vísar áætluninni til umfjöllunar í fræðslu- og velferðarnefnd og íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd. Jafnframt er áætluninni vísað til úrvinnslu hjá sviðsstjóra fjölskyldusviðs og verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála. Samþykkt samhljóða."
Nefndin fagnar því út sé komin aðgerðaráætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða á Norðurlandi eystra 2027 -2030. Hins vegar finnst nefndinni vanta frekari upplýsingar með áætluninni t.d. er varðar hvað er verið að gera nú þegar og hvað vantar upp á. Einnig telur nefndin vanta frekari upplýsingar hver ber endanlega ábyrgð og hvernig á að fjármagna framkvæmdarhluta áætlunarinnar.
Nefndin leggur til að sviðsstjóri fjölskyldusviðs sjái um greiningu á aðgerðaráætluninni fyrir Þingeyjarsveit, hvað verið er að uppfylla nú þegar og hvar vantar helst upp á.
Nefndin leggur til að sviðsstjóri fjölskyldusviðs sjái um greiningu á aðgerðaráætluninni fyrir Þingeyjarsveit, hvað verið er að uppfylla nú þegar og hvar vantar helst upp á.
5.HSN - breyting dvalarrýma í hjúkrunarrými - stuðningur til sjálfstæðrar búsetu
Málsnúmer 2610013Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggur póstur frá Jóni Helga Björnssyni, forstjóra HSN um fyrirhugaðar breytingar á núverandi dvalarrýmum á Húsavík yfir í hjúkrunarrými.
Fræðslu- og velferðarnefnd þakkar fyrir tilkynninguna en telur að jafnframt þurfi frekari upplýsingar um áætlun HSN á þessari framkvæmd og áhrif hennar á stöðu þjónustuþega í Þingeyjarsveit. Einnig er þörf á að fá upplýsingar um tímaramma á þessu ferli.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að kalla eftir nánari upplýsingum um þetta mál.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að kalla eftir nánari upplýsingum um þetta mál.
6.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2608032Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggja til samþykktar uppfærðar gjaldskrár sem heyra undir nefndina. Á landsþingi sveitarfélaga var samþykkt að hækka gjaldskrár ekki umfram 2,5% fyrir árið 2027.
Nefndin samþykkir uppfærðar gjaldskrár fyrir 2027.
7.Þjónusta við börn 16-18 ára
Málsnúmer 2610021Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggur bréf sem skólaþjónusta Þingeyjarsveitar óskar eftir að fá að senda til framhaldsskóla í nágrenni sveitarfélagsins. Þar kemur fram að nemendum undir 18 ára aldri sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu standi til boða forgreiningar á ADHD og einhverfu auk greininga á lesblindu hafi nemendur einhverra hluta vegna ekki fengið þá þjónustu í grunnskólum sveitarfélagsins.
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að skólaþjónustan sendi bréfið frá sér og þar með sé þjónusta aukin fyrir börn 16 -18 ára í Þingeyjarsveit.
8.Beiðni um reglubundna viðveru hjúkrunarfræðings á LAugum
Málsnúmer 2610024Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggur tölvupóstur frá áheyrnarfulltrúa N-lista þar sem óskað er eftir því að kannaðir verði möguleikar á reglubundinni viðveru hjúkrunarfræðings frá HSN á Laugum.
Nefndin tók erindið til umræðu og óskar eftir því við HSN að athuga möguleika á reglubundinni viðveru hjúkrunarfræðings á Laugum.
9.Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - yfirferð
Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fer yfir helstu verkefni mánaðarins.
Nefndin þakkar sviðsstjóra fyrir greinagóða kynningu á starfssemi sviðsins.
Fundi slitið kl. 17:30
Fundi slitið - kl. 16:30.
Fyrir hönd kennara - Birna Friðriksdóttir - Stórutjarnaskóla
Fyrir hönd foreldra - Valerija Kiskurno - Reykjahlíðarskóla
Formaður setti fund kl. 14:30