Fara í efni

HSN - breyting dvalarrýma í hjúkrunarrými - stuðningur til sjálfstæðrar búsetu

Málsnúmer 2610013

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 38. fundur - 12.10.2026

Fyrir nefndinni liggur póstur frá Jóni Helga Björnssyni, forstjóra HSN um fyrirhugaðar breytingar á núverandi dvalarrýmum á Húsavík yfir í hjúkrunarrými.
Fræðslu- og velferðarnefnd þakkar fyrir tilkynninguna en telur að jafnframt þurfi frekari upplýsingar um áætlun HSN á þessari framkvæmd og áhrif hennar á stöðu þjónustuþega í Þingeyjarsveit. Einnig er þörf á að fá upplýsingar um tímaramma á þessu ferli.

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að kalla eftir nánari upplýsingum um þetta mál.
Getum við bætt efni þessarar síðu?