Þjónusta við börn 16-18 ára
Málsnúmer 2610021
Vakta málsnúmerFræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveit - 38. fundur - 12.10.2026
Fyrir nefndinni liggur bréf sem skólaþjónusta Þingeyjarsveitar óskar eftir að fá að senda til framhaldsskóla í nágrenni sveitarfélagsins. Þar kemur fram að nemendum undir 18 ára aldri sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu standi til boða forgreiningar á ADHD og einhverfu auk greininga á lesblindu hafi nemendur einhverra hluta vegna ekki fengið þá þjónustu í grunnskólum sveitarfélagsins.
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að skólaþjónustan sendi bréfið frá sér og þar með sé þjónusta aukin fyrir börn 16 -18 ára í Þingeyjarsveit.