Fara í efni

Skipulagsnefnd

54. fundur 16. september 2026 kl. 09:00 - 12:00 í Þingey
Nefndarmenn
  • Knútur Emil Jónasson
  • Sigurður Guðni Böðvarsson
  • Líney Rúnarsdóttir
  • Hallgrímur Páll Leifsson
  • Garðar Finnsson
Starfsmenn
  • Rögnvaldur Harðarson
Fundargerð ritaði: Rögnvaldur Harðarson
Dagskrá

1.Náttúruhamfaratrygging - varðandi upplýsingar til almennings varðandi byggingar á viðkvæmum svæðum

Málsnúmer 2509042Vakta málsnúmer

Fyrir skipulagsnefnd liggur erindi frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands er varðar skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum.
Skipulagsnefnd þakkar fyrir bréfið. Í Þingeyjarsveit eru margskonar náttúruvár sem taka þarf tillit til vegna skipulagsáætlanagerða.

2.Eyjafjarðarsveit - ósk um umsögn er varðar aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar, endurskoðun 2025-2037

Málsnúmer 2506004Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á 680. fundi sínum þann 20.08.2026 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025?2037 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögur eru aðgengilegar á skipulagsgatt.is undi máli nr. 759/2025.



https://skipulagsgatt.is/issues/2025/759
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar eins og það er auglýst en bendir á að reið og gönguleið úr Garðsárdal er ekki sýnd í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044.

3.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2608032Vakta málsnúmer

Unnið er að endurskoðun gjaldskráa Umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Máli frestað. Boðað verður til aukafundar til að fjalla um gjaldskrár þann 30. sept næstkomandi kl:09:00.

4.Laugar - deiliskipulag

Málsnúmer 2406042Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lauga í Reykjadal
Skipulagsfulltrúa falið að láta vinna breytingar í samræmi við umræður á fundinum og hafa samráð við landeigendur í Hólum, Framhaldsskólann á Laugum, Samherja, N1 og undirbúa kynningarfund fyrir íbúa á svæðinu í nóvember.

5.Reykjahlíð - deiliskipulag þéttbýlis

Málsnúmer 2603066Vakta málsnúmer

Í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024 - 2044 eru endurskoðuð þéttbýlismörk Reykjahlíðar. Mörk þéttbýlis eru jafnframt vaxtarmörk fyrir skipulagstímabilið. Í aðalskipulaginu er lögð áhersla á að nýta land innan þéttbýlismarka sem best og að ekki verði gengið að óþörfu á myrkurgæði og víðsýni. Í samræmi við stefnu um gerð deiliskipulags í kafla 3.6. þarf að hefja undirbúning við gerð deiliskipulags í þéttbýlinu í Reykjahlið.
Skipulagsnefnd felur sveitarstjóra að óska eftir samtali við landeigendur um leigu á landi undir þéttbýli. Einnig er skipulagsfulltrúa falið að undirbúa vinnuskjal með áherslum nefndarinnar um framtíðarþróun þéttbýlisins í Reykjahlíð.

6.Stórutjarnir - deiliskipulag þéttbýlis

Málsnúmer 2609031Vakta málsnúmer

Í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024 - 2044 eru endurskoðuð þéttbýlismörk Stórutjarna. Mörk þéttbýlis eru jafnframt vaxtarmörk fyrir skipulagstímabilið. Í aðalskipulaginu er lögð áhersla á að nýta land innan þéttbýlismarka sem best og að ekki verði gengið að óþörfu á myrkurgæði og víðsýni. Í samræmi við stefnu um gerð deiliskipulags í kafla 3.6. þarf að hefja undirbúning við gerð deiliskipulags í þéttbýlinu á Stórutjörnum.
Skipulagsnefnd felur sveitarstjóra að óska eftir samtali við landeigendur um leigu á landi undir þéttbýli. Einnig er skipulagsfulltrúa falið að undirbúa vinnuskjal með áherslum nefndarinnar um framtíðarþróun þéttbýlisins að Stórutjörnum.

7.Lækjarhús -Aðaldal - aðal- og deiliskipulag - breyting á skipulagi

Málsnúmer 2609030Vakta málsnúmer

Jónas Vilhjálmsson og Signý Ormarsdóttir óska eftir heimild til breytingar á aðalskipuagi og deiliskipulagi vegna lóðarinnar Lækjarhúsa í landi Sílalækjar. Lóðin er nú frístundalóð í jaðri frístundasvæðis. Á henni stendur frístundahús og refahús., Eigendur fyrirhuga að stofna á lóðinni lögbýli, breyta frístundahúsi í íbúðarhús og byggja við vinnustofu. Lóðin er með sér aðkomu frá Sílalækjarvegi og því ótengd sumarhúsasvæðinu að mestu og ólíklegt að búseta eða starfsemi á lóðinni hafi í för með sér óþægindi fyrir nágranna. Samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða liggur fyrir.
Skipulagsnefnd heimilar að unnin sé breyting á aðalskipulagi í samræmi við 1,. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem landnotkun lóðarinnar er breytt í landbúnaðarsvæði og að gerð sé óveruleg breyting á deiliskipulagi, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipuagslaga, þar sem tilgreind er heimil notkun lóðarinnar sem lögbýlis til íbúðar og atvinnustarfsemi sbr. 5.mgr. 2. gr. jarðalaga 81/2004 varðandi stofnun lögbýlis. Breytingin lýtur fyrst og fremst að breyttri landnotkun en víkur lítið eða ekki frá nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.

8.Grímsstaðir 2 A - Mývatnssveit - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám.

Málsnúmer 2608060Vakta málsnúmer

Kjartan Sigurðsson Grímsstöðum 2 óskar eftir að fá stöðuleyfi fyrir 6m gám samkv. meðfylgjandi teikningu.
Skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi fyrir 6 metra gám að Grímsstöðum 2 í samræmi við ákvæði byggingareglugerðar. Leyfið skal vera veitt til eins árs frá útgáfudegi.



9.Hólabrekka - Laugum - byggingarheimildir á lóð

Málsnúmer 2608084Vakta málsnúmer

Þar deilskipulagsvinnu er ekki lokið á Laugum, á því svæði sem nær yfir lóð Hólabrekku, er óskað eftir því að fá að grendarkynna byggingarreiti á lóð Hólabrekku samkvæmt greinargerð á meðfylgjandi teikningu. Annarsvegar undir garðskúr og hinsvegar undir bílgeymslu.
Skipulagsfulltrúa falið að grenndarkynna byggingarreiti í samræmi við 44. gr. skipulagslaga. Byggingarfulltrúa er heimilt að skrá garðskúr í fasteignaskrá ef engar athugasemdir berast og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

10.Hólar - Lautir - Laugum - merkjalýsing

Málsnúmer 2608083Vakta málsnúmer

Hafin er vinna við merkjalýsingu lands sveitarfélagins að Lautum.
Lagt fram til kynningar.

11.Öxará - Ljósavatnshrepp - merkjalýsing

Málsnúmer 2608085Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Þóri Agnarssyni f.h. Öxarár rekstrarfélags ehf um stofnun lóðar undir íbúðarhús að Öxará í Ljósavatnshrepp. Fyrir liggur tillaga að staðsetningu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við merkjalýsingu, enda samræmist hún skipulagsáætlunum. Nefndin telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.

12.Birkimelur- Stóru-Tjörnum- merkjalýsing

Málsnúmer 2609029Vakta málsnúmer

Tekin fyrir umsókn frá Ásvaldi Ævari Þormóðssyi um stofnun lóðar undir fyrirhugað íbúðarhús að Stórutjörnum. Fyrir liggur tillaga að staðsetningu. Svæðið er innan þéttbýlis og afmarkað sem íbúðarsvæði í nýju aðalskipulagi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Málinu frestað með tilvísun í mál nr. 6 á fundinum þar sem sveitarstjóra er falið að eiga samtal við landeigendur um deiliskipulag svæðisins.

13.Bjarkalundur 1 - Aðaldal - merkjalýsing

Málsnúmer 2609025Vakta málsnúmer

Karl Sigurðsson Núpum í Aðaldal óskar eftir staðfestingu á merkjalýsingu með afmörkun lóða í Bjarkalundi og stofnun lóðarinnar Bjarkalundar 1. Svæðið er afmarkað sem frístundabyggð í aðalskipulagi. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við merkjalýsingu, enda samræmist hún skipulagsáætlunum. Skipulagsnefnd bendir á að í samræmi við kafla 3.6. í aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2024-2044 þarf að gera deiliskipulag fyrir svæðið ef fyrirhugað er að stofna fleiri lóðir á svæðinu.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni þessarar síðu?