Lækjarhús -Aðaldal - aðal- og deiliskipulag - breyting á skipulagi
Málsnúmer 2609030
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 54. fundur - 16.09.2026
Jónas Vilhjálmsson og Signý Ormarsdóttir óska eftir heimild til breytingar á aðalskipuagi og deiliskipulagi vegna lóðarinnar Lækjarhúsa í landi Sílalækjar. Lóðin er nú frístundalóð í jaðri frístundasvæðis. Á henni stendur frístundahús og refahús., Eigendur fyrirhuga að stofna á lóðinni lögbýli, breyta frístundahúsi í íbúðarhús og byggja við vinnustofu. Lóðin er með sér aðkomu frá Sílalækjarvegi og því ótengd sumarhúsasvæðinu að mestu og ólíklegt að búseta eða starfsemi á lóðinni hafi í för með sér óþægindi fyrir nágranna. Samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða liggur fyrir.
Skipulagsnefnd heimilar að unnin sé breyting á aðalskipulagi í samræmi við 1,. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem landnotkun lóðarinnar er breytt í landbúnaðarsvæði og að gerð sé óveruleg breyting á deiliskipulagi, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipuagslaga, þar sem tilgreind er heimil notkun lóðarinnar sem lögbýlis til íbúðar og atvinnustarfsemi sbr. 5.mgr. 2. gr. jarðalaga 81/2004 varðandi stofnun lögbýlis. Breytingin lýtur fyrst og fremst að breyttri landnotkun en víkur lítið eða ekki frá nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.