Íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit
Dagskrá
1.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2608032Vakta málsnúmer
Fyrir nefndinni liggur að samþykkja gjaldskrár sveitarfélagsins sem snúa að íþróttamannvirkjum og félagsheimilum
Jón Sverrir bar upp mögulegt vanhæfi sitt og vék af fundi kl. 14:52
2.HSÞ - rekstarsamningur, kynning og reikningur vegna samnings
Málsnúmer 2610020Vakta málsnúmer
Fyrir íþrótta-, tómstunda og menningarnefnd liggur erindi frá HSÞ er varðar áframhaldandi rekstrarsamning við Þingeyjarsveit.
ÍTM tekur jákvætt í erindi HSÞ og vill gjarnan fá kynningu frá framkvæmdastjóra HSÞ. Nefndin óskar eftir því að verkefnastjóri boði framkvæmdastjóra HSÞ á næsta fund ÍTM ásamt fulltrúum frá sveitarstjórn.
Jón Sverrir kom aftur inn á fund kl. 15:00
Jón Sverrir og Hermann báru upp mögulegt vanhæfi og viku af fundi kl. 15:02
3.Íþrótta- og æskulýðsstarf - seinni úthlutun styrkja 2026
Málsnúmer 2609067Vakta málsnúmer
Auglýst var eftir styrkjum til íþrótta- og æskulýðsstarfs í september og bárust 4 umsóknir.
ÍTM þakkar fyrir sýndan áhuga og leggur til við sveitarstjórn að eftirfarandi styrkir verði veittir: Skákfélagið Goðinn 100.000 vegna skákmóts, Umf. Efling 350.000 vegna húsaleigu hjá Laugaskóla og búnaðarkaup, Þjálfi 350.000 vegna æskulýðsstarfs og mótahalds.
Jón og Hermann komu aftur inn á fund kl. 15:18
Anna Dagbjört bar upp mögulegt vanhæfi og vék af fundi kl. 15:18
4.Menningarmál - seinni úthlutun styrkja 2026
Málsnúmer 2606056Vakta málsnúmer
Auglýst var eftir styrkjum til menningarstarfs í september og bárust alls 9 umsóknir.
ÍTM þakkar fyrir þær fjölmörgu umsóknir sem bárust vegna menningarmála. Því miður sá nefndin sér ekki fært að styrkja alla umsækjendur. ÍTM leggur til við sveitarstjórn að eftirfarandi hljóti styrki: Leikdeild Eflingar 300.000 vegna kaupa á tæknibúnaði, Umf. Einingin 150.000 til að koma blaðinu Neista á tölvutækt form, Urðarbrunnur 200.000 vegna örnefnaskráningar, Bryndís Fjóla 150.000 vegna Álfastígs og Félag sauðfjárbænda 100.000 vegna hrútasýningar.
Að auki leggur nefndin til að gerður verði samstarfssamningur vegna Brúarkynninga og að viðbót verði gerð við samstarfssamning Mývetnings vegna menningarviðburða.
Að auki leggur nefndin til að gerður verði samstarfssamningur vegna Brúarkynninga og að viðbót verði gerð við samstarfssamning Mývetnings vegna menningarviðburða.
Anna Dagbjört kom aftur á fund kl. 16:11
5.SSNE - Virkjum íbúana
Málsnúmer 2610003Vakta málsnúmer
Verkefnið Virkjum íbúana miðar að því að auka virkni, samveru og þátttöku íbúa á Norðurlandi eystra með því að efla samfélagshús og aðra staðbundna samkomustaði sem lifandi miðstöðvar í heimabyggð.
Sveitarfélagið getur sent inn verkefnahugmyndir í samstarfi við félagasamtök, íbúahópa og einstaklinga.
Sveitarfélagið getur sent inn verkefnahugmyndir í samstarfi við félagasamtök, íbúahópa og einstaklinga.
ÍTM fagnar þessu verkefni frá SSNE og hvetur íbúa og félagasamtök til þess að hafa samband við verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála vegna hverra þeirra hugmynda sem þau hafa. Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur rennur út 29. október.
6.Farsæld barna - áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða á Norðurlandi eystra 2027-2030
Málsnúmer 2609033Vakta málsnúmer
Á 87. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað og samþykkt varðandi lið 10 á dagskrá - Farsæld barna - áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða á Norðurlandi eystra 2027-2030.
"Sveitarstjórn samþykkir svæðisbundna áætlun um forgangsröðun aðgerða vegna farsældar barna á Norðurlandi eystra 2027-2030. Samkvæmt áætluninni bera sveitarfélög á Norðurlandi eystra ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgd aðgerða á sínu svæði, aðlögun þeirra að staðbundnum þörfum og að tryggja samhæfingu og samstarf milli þjónustuveitenda. Sveitarstjórn vísar áætluninni til umfjöllunar í fræðslu- og velferðarnefnd og íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd. Jafnframt er áætluninni vísað til úrvinnslu hjá sviðsstjóra fjölskyldusviðs og verkefnastjóra æskulýðs-, tómstunda- og menningarmála. Samþykkt samhljóða."

ÍTM hefur kynnt sér áætlunina og mun hafa hana til hliðsjónar varðandi framtíðarákvarðanir um þessi málefni.
7.UMF Efling - formlegt erindi til sveitarstjórnar um íþróttastefnu
Málsnúmer 2610005Vakta málsnúmer
Fyrir íþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd liggur erindi frá UMF Eflingar um íþróttastefnu sveitarfélagsins.
ÍTM þakkar erindið og sýnir skilning á aðstæðum félagsins.
ÍTM leggur til við sveitarstjórn að samstarfssamningar við íþróttafélögin verði kláraðir sem allra fyrst. Í skólastefnu Þingeyjarsveitar er sérstaklega fjallað um samþættingu skóla, íþrótta- og frístundastarfs. Nefndin hvetur skólastjórnendur til þess að hafa það í huga við stundatöflugerð.
ÍTM leggur til við sveitarstjórn að gerð verði heildstæð stefna um íþróttir, tómstundir og menningarmál fyrir nefndina og sveitarfélagið til þess að starfa eftir. Jafnframt verði búnaðarmál í íþróttahúsum og sölum til íþróttaiðkunar könnuð.

Fundi slitið - kl. 16:53.
ÍTM minnir sveitarstjórn jafnframt á tillögu nefndarinnar frá 32. fundi varðandi afslátt á húsaleigu vegna þorrablóta innan Þingeyjarsveitar.