Íþrótta- og æskulýðsstarf - seinni úthlutun styrkja 2026
Málsnúmer 2609067
Vakta málsnúmerÍþrótta-, tómstunda- og menningarnefnd Þingeyjarsveit - 33. fundur - 13.10.2026
Jón Sverrir og Hermann báru upp mögulegt vanhæfi og viku af fundi kl. 15:02
Auglýst var eftir styrkjum til íþrótta- og æskulýðsstarfs í september og bárust 4 umsóknir.
ÍTM þakkar fyrir sýndan áhuga og leggur til við sveitarstjórn að eftirfarandi styrkir verði veittir: Skákfélagið Goðinn 100.000 vegna skákmóts, Umf. Efling 350.000 vegna húsaleigu hjá Laugaskóla og búnaðarkaup, Þjálfi 350.000 vegna æskulýðsstarfs og mótahalds.
Jón og Hermann komu aftur inn á fund kl. 15:18